Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 4

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 4
FORUSTUGREIN Umhveifismál í brennidepli Umhverfismál í víðtækum skilningi er málaflokkur sem sífellt er meiri gaumur gefinn enda varðar hann daglegt líf okkar allra. Á undanförnum misserum hafa sveitarfélögin lagt stóraukið fjármagn í umhverfisbætur og er nærtækast í því sambandi að nefna kostnaðarsamar framkvæmdir sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu bæði varðandi úrbætur í sorp- og holræsamálum. Víðar á landinu hafa sveitarfélögin ráðist í hliðstæðar framkvæmdir og unn- ið hefur verið að undirbúningi samstarfs sveitarfélaga um sorphirðu og eyðingu sorps í einstökum landshlut- um og eru úrbætur að komast á framkvæmdastig. Lánasjóður sveitarfélaga hefur veitt sveitarfélögunum lán til þessara framkvæmda í auknum mæli og einnig haft milligöngu um lánafyrirgreiðslu frá Norræna fjár- festingarbankanum. Nú þegar hafa sveitarfélögin því á eigin spýtur markað upphafið að því kostnaðarsama átaki sem framundan er í umhverfisbótum. Ríkið og íbúar sveitarfélaganna gera stöðugt meiri og strangari kröfur um úrbætur í umhverfismálum og á næstunni virðist óhjákvæmilegt að varið verði til þessa málaflokks nriklu meiri fjármunum en gert hefur verið til þessa. I stefnu og starfsáætlun núverandi ríkisstjórnar, Vel- ferð á varanlegum grunni, frá í október 1991 segir m.a.: „Ríkisstjórnin mun styðja sveitarfélögin við að koma upp móttökustöðvum fyrir sorp svo að förgun þess verði komin í viðunandi horf í öllum sveitarfélögum landsins fyrir árslok 1995.“ í skýrslu umhverfisráðu- neytisins, Á leið til sjálfbærrar þróunar, frá í mars 1993 er það markmið áréttað og þar segir ennfremur: „Stuðlað verður að því að framkvæmdir í frárennslis- málum verði hafnar um land allt ekki síðar en árið 1995.“ Fráveitunefnd umhverfisráðuneytisins segir í skýrslu sinni frá f nóvember 1993: „Að til að fylgja þessurn málum eftir og koma þeim á skrið fari ráðherra fram á að ríkið veiti sveitarstjórnum styrk til fram- kvæmda í fráveitumálum. Lagt er til að þessi styrkur jafngildi um það bil fjórðungi af kostnaði við fram- kvæmdir í fráveitumálum og greiðist þegar verkinu eða tilteknum verkþætti er lokið.“ Stjórn sambandsins hefur lýst yfir eindregnum stuðningi við tillögur fráveitunefndarinnar og lýst sig reiðubúna til viðræðna við umhverfisráðuneytið um framkvæmd tillögunnar og nánari útfærslu hennar. Að undanförnu hefur sambandið átt samstarf við umhverfisráðuneytið um úttektir á sorphirðumálum í einstökum landshlutum og marga viðræðufundi um umhverfismál og hlutverk sveitarfélaga í því sam- bandi. Hingað til hafa störf umhverfisráðuneytisins þó fyrst og fremst beinst að því að herða ákvæði í lögum og reglugerðum um umhverfismál þar sem auknar kvaðir af margs konar tagi eru lagðar á sveitarfélög, sem leiða munu til rnikils útgjaldaauka fyrir þau á næstu árum. Þó er upplýst að sveitarfélögin áttu langt í land með að uppfylla ákvæði eldri laga og reglugerða en margar breytinganna munu gerðar til að uppfylla ákvæði EES- samningsins og tilskipana Evrópusambandsins, t.d. tímasett ákvæði um hreinsun á skólpi frá þéttbýli. Jafnframt virðist ákveðin tilhneiging til þess að draga úr valdsviði og ábyrgð sveitarstjóma og auka miðstýr- ingu umhverfisráðuneytisins eins og t.d. í frumvarpi til laga um náttúruvernd. Slík miðstýringarárátta er óskiljanleg í ljósi umræðunnar um aukna valddreifingu og eflingu sveitarstjórnarstigsins. Miklu fremur ber að efla frumkvæði og áhuga þeirra er næst vettvangi standa á umhverfismálum og náttúruvernd. Urbætur í þeim málum ráðast ekki síst af frumkvæði, forystu og samvinnu sveitarfélaganna. Ágætt og nauðsynlegt er að setja sér háleit markmið í umhverfismálum en tímasetning, hvort sem er í stefnumörkun, lögum eða reglugerðum, stenst því að- eins að fjármunir séu tryggðir til framkvæmda. Stefnu- mörkun ríkisstjórnarinnar um fjárhagslega aðstoð við sveitarfélögin þarf því að koma sem fyrst til fram- kvæmda og vera í takt við tímasetningu í reglugerðum. Viðleitni sveitarfélaganna til að vinna að úrbótum þarf að njóta stuðnings umhverfisyfirvalda og skilningur þarf að vera á því að aðstæður sveitarfélaganna eru misjafnar bæði af fjárhagslegum og landfræðilegum ástæðum. Þórður Skúlason 66

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.