Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 16
HEILBRIGÐISMÁL
108 þúsund gestir heimsóttu Bláa lónið á sl. ári og á fyrstu þremur mánuöum þessa árs
hefur gestum fjölgaö um 40% frá sömu mánuöum á sl. ári. Ljósm. ímynd. Guömundur
Ingólfsson.
Þróun framleiðslu
HBL hefur í samvinnu við Lyfja-
verslun ríkisins og Delta hf. verið að
þróa heilsu- og fegrunarvörur úr Bláa
lóninu. Er undirbúningur vegna
framleiðslu heilsubaðsalts á loka-
stigi. Hafa þessir aðilar ráðið lyfja-
fræðing sem sérstakan verkefnis-
stjóra vegna þessa þróunarverkefnis.
Hefur verið lögð áhersla á ræktun
þörungs þess sem er uppistaða líf-
ríkis Bláa lónsins, en margir eru
sannfærðir um að þar sé að finna
lykilinn að lækningamætti lónsins.
Hefur þörungurinn verið ræktaður í
litlu sérbyggðu gróðurhúsi og er nú
unnið að undirbúningi þess að hefja
ræktun hans í meiri mæli.
Fengist hefur heimild fyrir þremur
stöðugildum frá Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði til að nýta við þróun fram-
leiðslunnar.
Fyrirspumir hafa borist frá
Bandaríkjunum og nokkrum stöðum
í Evrópu um úrvinnslu heilsu- og
fegrunarvara úr Bláa lóninu.
Helstu vörur sem verið er að þróa
eru:
Baðsölt með og án þörunga.
Rakakrem með söltum og þörung-
um.
Baðolía.
Kísileðjupakkar.
HBL á einkarétt á vörumerkinu
„BLÁA LÓNIГ í öllum helstu
vöruflokkum á íslandi. Skráning á
vörumerkinu „BLUE LAGOON" er
nú í gangi í Evrópu, í Bandaríkjunum
og í Japan. Vinna við hönnun um-
búða og vörumerkis stendur nú yfir.
Gert er ráð fyrir að vörurnar komi
á markað hér á landi nú í vor fyrir
aðalferðamannatímann.
Framtíðaruppbygging
Kynningargögn í samræmi við
hugmyndir þýskra ráðgjafa, sem
HBL réð til að gera tillögur um
framtíðaruppbyggingu við Bláa lón-
ið, hafa nú verið gerð.
Kynning framtíðaruppbyggingar
við Bláa lónið fyrir erlendum fjár-
festum er nú hafin.
Er samningum við landeigendur
nú lokið og hefur HBL tryggt sér allt
land sem áhugavert getur talist á
Svartsengissvæðinu til uppbyggingar.
Þá hefur verið fylgst með dæling-
artilraunum Hitaveitu Suðumesja á
Bláa lónsvökva. Fyrstu vísbendingar
um niðurstöður sýna að allar líkur
eru á að engin tæknileg vandkvæði
séu bundin því að dæla lónvökvan-
um. Enn liggja ekki fyrir vísbend-
ingar um reksturskostnað vegna
dælingar.
Starfsmannafjöldi og skipting
hans
I baðhúsi starfa nú átta manns á
tveimur vöktum. Þeim verður fjölgað
í samræmi við álag en áætlanir gera
ráð fyrir að þeir verði u.þ.b. 16-20 í
sumar. Auk þess er nú verið að ráða
þrjár manneskjur til þess að sinna
ræstingum í allri þjónustuaðstöðu
félagsins við Bláa lónið.
Við framleiðslu vinna nú tveir
starfsmenn, lyfjafræðingur og að-
stoðarmaður. A.m.k. tveimur starfs-
mönnum verður bætt við á næstunni
í tengslum við aukin umsvif þar.
Við meðferðarþjónustu starfa nú
tveir húðlæknar og þrír hjúkrunar-
fræðingar í hlutastörfum.
Á skrifstofu og við yfirstjóm vinna
nú fjórir starfsmenn.
Næstu skref
Nú þegar hefur 60 milljónum
króna verið varið í undirbúning og
rannsóknir við Bláa lónið vegna
heilsu- og ferðaþjónustu og framtíð-
aruppbyggingar.
Helstu verkefni næstu mánaða
eru:
1. Áætlanagerð vegna 1995.
2. Markaðsaðgerðir vegna ferða-
þjónustu.
3. Áframhaldandi undirbúningur og
markaðsaðgerðir vegna meðferð-
arþjónustu.
4. Áframhaldandi þróun framleiðslu
og markaðsaðgerðir vegna heilsu-
og fegrunarvöru.
5. Áframhaldandi undirbúningur og
kynningarstarf vegna framtíðar-
uppbyggingar.
78