Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Side 28

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Side 28
SAMEINING SVEITARFÉLAGA Uppdrátturinn sýnir hiö nýja sveitarféiag i Mýrasýslu. Það er þrískipt. Norðurárdals- hreppur og Stafholtstungnahreppur mynda samfellt svæði, Borgarnesbær er eins og eyja í Borgarhreppi og Hraunhreppur er síðan handan Borgarhrepps og Álftanes- hrepps. Fjórir hreppar Mýrasýslu sameinast í I. tbl. var skýrt frá viðræðum fulltrúa þeirra fjögurra sveitarfélaga í Mýrasýslu sem samþykktu samein- ingu í endurtekinni atkvæðagreiðslu 19. febrúar. Sveitarfélögin eru Norð- urárdalshreppur með 114 íbúa hinn 1. desember 1992, Stafholtstungna- hreppurmeð 181 íbúa, Borgarnesbær með 1.788 íbúa og Hraunhreppur með 106 íbúa miðað við sama tíma. Samanlögð íbúatala sveitarfélaganna var því 2.189. Niðurstaðan úr þessum viðræðum er sameining þessara sveitarfélaga og hefur félagsmálaráðuneytið staðfest hana og auglýst hinn 28. mars. Sam- einingin öðlast gildi hinn 11. júní. 1 sveitarstjórn hins nýja sveitarfé- lags verða 9 fulltrúar. I auglýsingu ráðuneytisins er mælt fyrir um skoð- anakönnun um nafn á sveitarfélagið og skuli nafnið ákveðið á grundvelli hennar. Greidd verða atkvæði um nokkrar tillögur um nafn á nýja sveitarfélagið samhliða kosningun- um 28. maí. Sveitarfélögin sem sameinast í Mýrasýslu liggja ekki saman. Álfta- neshreppur og Borgarhreppur kljúfa hið nýja sveitarfélag að endilöngu. Snæfellsbær Á sameiginlegum fundi allra sveitarstjórna byggðanna sem sameinast vestast á Snæfellsnesi hefur verið samþykkt að hið nýja sveitarfélag beri nafnið Snæfellsbær. Eyjarhreppur og Miklaholts- hreppur sameinast Við atkvæðagreiðslu um samein- ingu Eyjarhrepps og Miklaholts- hrepps hinn 26. mars var tillaga um að sameina hreppana samþykkt í þeim báðum. I Eyjarhreppi greiddu atkvæði 28 af 36 á kjörskrá eða 78%. Samþykkur sameiningu var 21 eða 75% þeirra sem atkvæði greiddu. Andvígir voru 7 eða 25%. 1 Miklaholtshreppi greiddu at- kvæði 46 af 64 á kjörskrá eða 72%. Já sögðu 40 eða 87%, en nei 3 eða 6,5%. Þrír atkvæðaseðlar voru auðir. Hinn 1. desember 1992 voru í 90

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.