Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Side 4
FORUSTUGREIN
Afangi að settu marki
I júní sl. skipaði menntamálaráðherra þrjár nefndir til
að vinna að undirbúningi yfirfærslu alls grunnskóla-
kostnaðar frá ríki til sveitarfélaga og verkefnisstjóm til
að stýra og samræma vinnu nefndanna. Nefndimar eru
nú að ná þeim áfanga, sem þær settu sér í upphafi starfs-
ins, að skila áfangaskýrslum til verkefnisstjórnarinnar.
Samband íslenskra sveitarfélaga lagði strax í byrjun
mikla áherslu á að fulltrúar ríkis, kennara og sveitarfé-
laga hefðu sem nánasta samvinnu um allan undirbúning
yfirfærslunnar. Samkomulag um mat á kostnaði, tekju-
stofnaflutning frá ríki til sveitarfélaga og réttinda- og líf-
eyrissjóðsmál kennara er forsenda þess að yfirfærslan
öðlist gildi 1. ágúst 1996. Jafnframt þarf að tryggja öll-
um sveitarfélögum tekjur til að reka skólana og Jöfnun-
arsjóður sveitarfélaga kemur til með að gegna mikil-
vægu hlutverki í því sambandi. I áfangaskýrslum nefnd-
anna birtist sameiginleg tillögugerð þessara aðila um
fjölmarga þætti málsins.
Sambandið og fulltrúar þess í verkefnisstjóminni og
nefndunum hafa lagt áherslu á að sem víðtækust kynn-
ing færi fram varðandi allan undirbúning yfirfærslunnar.
Stjóm sambandsins hefur fylgst náið með framvindunni
og staða þess hefur verið kynnt fyrir formönnum og
framkvæmdastjórum landshlutasamtakanna. Einnig hafa
landshlutasamtökin tekið málið til sérstakrar umfjöllun-
ar á sínum vettvangi, m.a. á ársfundum samtakanna þar
sem fulltrúar sambandsins í verkefnisstjóm og nefndun-
um eða einstakir starfsmenn þess hafa gert grein fyrir
undirbúningi yfirfærslunnar. Sams konar kynning hefur
jafnframt farið fram á ársfundum kennarafélaga víða um
land. Slík kynning með miðlun upplýsinga og skoðana-
skiptum er mikilvægur þáttur í undirbúningi yfirfærsl-
unnar, sem að lokum ætti að leiða til vandaðri niður-
stöðu.
Landshlutasamtökin og sveitarstjómarmenn í einstök-
um landshlutum eru nú að undirbúa yfirtöku sveitarfé-
laga á verkefnum fræðsluskrifstofanna. Skólamir þurfa
að hafa aðgang að sálfræði- og sérkennsluþjónustu, al-
mennri kennsluráðgjöf og aðstoð við mat og þróun á
skólastarfi. Einnig þurfa sveitarfélögin að eiga aðgang að
faglegri ráðgjöf varðandi ákvarðanatöku um kennslu-
kvóta í hverjum einstökum skóla í samræmi við lög-
bundnar skyldur, sem jafnframt tryggi að kennarafjöldi
og þar með kostnaður sé í samræmi við þær tekjur sem
sveitarfélagið fær vegna þessa nýja verkefnis. Eðlilegast
er að sveitarfélögin fái slíka þjónustu heima í landshlut-
unum eftir ákvörðunum sveitarstjóma á hverju svæði.
Samkvæmt ályktunum XV. landsþings sambandsins
og síðasta fulltrúaráðsfundar þess er gert ráð fyrir að
sambandið annist kjarasamningagerð við stéttarfélög
kennara fyrir hönd allra sveitarfélaga. I samræmi við þá
niðurstöðu em nú til skoðunar breytingar á samþykktum
Launanefndar sveitarfélaga, þ.e. skipan samninganefndar
við kennara, skipan stjórnar, skipting kostnaðar o.fl.,
með tilliti til þess að nefndin geri kjarasamninga við
stéttarfélög kennara fyrir hönd allra sveitarfélaga. Nauð-
synlegt er að öll sveitarfélög í landinu gefi launanefnd-
inni fullnaðarumboð til slíkrar samningagerðar. Sam-
hliða þarf sem fyrst að komast að niðurstöðu um hvaða
verkefnum öðrum sambandið á að sinna í skólamálum.
Með hliðsjón af því verður síðan að efla sambandið til að
gegna sínu hlutverki á sviði skólamála.
Sveitarfélögin hafa um langan tíma gegnt þýðingar-
miklu hlutverki varðandi uppbyggingu og rekstur grunn-
skólanna. Eðlilegt er því, og í samræmi við það sem gert
hefur verið í nálægum löndum, að færa þeim meiri
ábyrgð og ákvarðanavald í þeim málaflokki. Metnaður
sveitarstjóma hlýtur að beinast að því að þjónusta við
nemendur, foreldra og starfsfólk skólanna verði betri en
verið hefur af hálfu ríkisins. Markmiðið er aukin skil-
virkni og betri menntun grunnskólabama. Eftir sem áður
verða sveitarfélögin að gæta aðhalds og ýtrustu hag-
kvæmni í rekstri grunnskólanna. Algjör forsenda þess að
verkefnatilfærslan skili þeim árangri sem að er stefnt
veltur þó að lokum á því að sveitarfélögin fái nægar tekj-
ur til að standa undir öllum rekstri grunnskólans.
Þórður Skúlason
1 94