Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Qupperneq 48
STJORNSYSLA
BÆKUR OG RIT
haldandi töluröð.
Undirritaðar fundargerðir skulu
reglulega hundnar inn í fundar-
gerðahók bœjarstjórnar, til varan-
legrar varðveislu. “
Samkvæmt þessu ákvæði er
áfram gert ráð fyrir að notuð verði
gerðabók sveitarstjórnar, en þar
verði einungis skráð nokkur grund-
vallaratriði, svo sem númer fundar,
fundartími, fundarstaður, að fundar-
gerð sé færð í tölvu o.s.frv. I ákvæði
þessu er jafnframt tryggt eins og
kostur er að ekki séu gerðar breyt-
ingar á fundargerð án þess að það
sjáist. Er það gert með því að fyrir-
mæli eru um að fundarmenn undir-
riti fundargerð í gerðabók svo og út-
prentun hinnar tölvuskráðu fundar-
gerðar og skulu forseti bæjarstjómar
og a.m.k. einn fundarmanna jafn-
framt setja upphafsstafi sína undir
hverja blaðsíðu fundargerðarinnar.
Fyrirmæli eru um að fundargerð-
irnar skuli blaðsíðusettar í áfram-
haldandi töluröð og að þær skuli
bundnar inn reglulega til varanlegr-
ar varðveislu. Ráðuneytið telur þetta
ákvæði sérstaklega mikilvægt, því
með þeim hætti minnki verulega
hættan á að frumrit fundargerða
glatisl.
Það varð því niðurstaða ráðuneyt-
isins að ofangreint ákvæði 2.-4.
mgr. 35. gr. samþykktar um stjórn
Isafjarðarkaupstaðar og fundarsköp
bæjarstjórnar samræmdist 53. gr.
sveitarstjómarlaga.
Eins og áður segir telur félags-
málaráðuneytið ekki óeðlilegt í ljósi
ört vaxandi útbreiðslu tölvutækn-
innar að fundargerðir sveitarstjóma
verði í auknum mæli færðar á tölvu.
Hins vegar verður að leggja ríka
áherslu á að skýr fyrirmæli séu fyrir
hendi í samþykkt um stjórn og
fundarsköp sveitarfélags um fyrir-
komulag slíkrar skráningar og um
varðveislu fundargerða, svo tryggt
verði að upplýsingar og ákvarðanir
og annað markvert, sem gerist á
fundum sveitarstjórna, varðveitist
með eins öruggum hætti og unnt er.
Sveitarstjórnarlög
ásamt skýringum og
athugasemdum
Sambandið hefur gefið út í þriðja
sinn sveitarstjórnarlögin nr. 8/1986
ásamt skýringum og athugasemd-
um, sem Björn Friðfinnsson, lög-
fræðingur og fyrrum formaður sam-
bandsins, tók saman.
I þessari þriðju útgáfu er í skýr-
ingum og athugasemdum Björns
stuðst við umfjöllun fræðimanna,
dóma og úrskurði félagsmálaráðu-
neytisins vegna framkvæmdar lag-
Aöaldælahreppur
Bárödælahreppur
Borgarfjarðarhreppur
Dalvíkurbær
Egilsstaðabær
Eyrarbakkahreppur
Fellahreppur
Garðabær
Gnúpverjahreppur
Grindavíkurbær
Hafnarfjarðarbær
Hálsahreppur
ísafjörður
Kaldrananeshreppur
Lýtingsstaðahreppur
Mosfellsbær
anna.
„Mikilvægt er fyrir alla þá er að
sveitarstjómarmálum starfa að hafa
greiðan aðgang að þeirri löggjöf
sem þeim ber að fara eftir og endur-
nýjaðar skýringarnar og athuga-
semdir ættu að vera til enn frekari
glöggvunar varðandi framkvæmd
laganna," segir Þórður Skúlason,
framkvæmdastjóri sambandsins, í
bréfi til sveitarfélaganna, þar sem
hann kynnir útkomu ritsins.
Bókin er í sama broti og Sveitar-
stjórnarmál, 86 bls. að stærð og
kostar 1.800 krónur eintakið.
Neskaupstaður
Raufarhafnarhreppur
Reyðarfjarðarhreppur
Reykholtsdalshreppur
Reykjavíkurborg
Sauðárkrókskaupstaður
Selfoss
Seltjarnarnes
Skaftárhreppur
Stokkseyrarhreppur
Súðavíkurhreppur
Sveinsstaðahreppur
Tálknafjarðarhreppur
Torfalækjarhreppur
Vopnafjarðarhreppur
Öxarfjarðarhreppur
Félagsmálaráðuneytið
Húsaleigubætur 1996
Eftirtalin sveitarfélög hafa ákveðið
að greiða húsaleigubætur á árinu 1996: