Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Page 30
UMHVERFISMÁL
Heimilin og efni sem geta
orðið að hættulegum
efnaúrgangi - spilliefnum
Guðrún S. Hilmisdóttir verkfrœðingur, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Sífellt eykst áhugi og skilningur almennings á um- ur við efnum sem berast þangað, flokkar þau og sendir
hverfisvemd og fleiri verða sér meðvitaðir um að dagleg til förgunar. Til skamms tíma var allur hættulegur efna-
umgengni þeirra getur skipt máli um vernd
náttúrunnar. Sem dæmi um þetta er meðferð á
hættulegum efnaúrgangi eða spilliefnum sem
falla til á heimilum. Á heimilum eru mörg efni
sem falla undir þennan úrgangsflokk og verð-
ur að meðhöndla þessi efni með varúð og
koma þeim til réttrar förgunar.
43. grein mengunarvarnareglugerðar nr.
48/1994 hljóðar svo:
„Spilliefni (hættulegan efnaúrgang) sam-
kvœmt viðauka 4 með reglugerð þessari og
annan úrgang sem inniheldur spilliefni skal
flytja til móttökustöðva sem hafa fengið staifs-
leyfí til að taka á móti slíkum úrgangi, sbr. 8.
kafla þessarar reglugerðar. “
Næstu greinar fjalla síðan nánar um með-
ferð olíuúrgangs og annarra spilliefna. Rétt er
að benda á að hér er verið að fjalla um hættu-
legan efnaúrgang, þ.e.a.s. um úrgang. Mörg
efni sem notuð eru í takmörkuðu magni, t.d.
daglega, eru hættuleg umhverfinu og því
spilliefni ef losna á við mikið magn af efninu.
Sem dæmi um slík efni má nefna málningu,
hreinsiefni, áburð og þvottaefni. Rafhlöður,
rafgeymar, þrýstihylki og úðabrúsar eru aftur
á móti dæmi um hættulegan efnaúrgang að
lokinni notkun.
Spilliefnum verður að koma í spilliefnamót-
tökur þar sem þau eru flokkuð og þeim komið
í þá förgun sem þau þurfa. Best er að skila
efnunum í þeim umbúðum sem þau voru
keypt í því það auðveldar mjög rétta með-
höndlun. Víða hafa verið settar upp móttöku-
stöðvar sem taka við spilliefnaúrgangi frá
fólki, því að kostnaðarlausu, en fyrirtæki þurfa
að greiða kostnað sem felst í meðferð efn-
anna. Efnamóttaka Sorpu bs. í Reykjavík tek- Framhliö upplýsingablaös umhverfismálaráðs Húsavíkur um flokkun sorps.
4fk
(§forpið
SUMVIÐ? /HVERNIC
HVAR LOSUM VIÐ? / HVERNIG FLOKKUM VIÐ?
Garðaúrgangur
Brennanlegt sorp
Obrennanlegt sorp
Pappír
(AÐEINS FILMUPLAST,
Þ.E. PIASTPOKAR O.Þ.H ) 11051
Gosdrykkjaumbú&ir
Gler
Lyf
Lífrænn úrgangur
Isskápar og frystikistur
Gámur vi& sorpbrennslustö&
Gámur vi& sorpbrennslustö&
Gámur vi& sorpbrennslustö&
Móttaka í Kaupfélagsskemmu
Móttaka í Kaupfélagsskemmu
Móttaka í Kaupfélagsskemmu
Móttaka í Kaupfélagsskemmu
Móttaka í Apóteki
Rotkassinn í gar&inum iefhannerhu
Sorpbrennslustö&
SORPBRENNSLUSTOÐIN
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 08:00 TIL 19:00.
AÐ AUKI: MÁNUD , MIÐVIKUD. OG FÖSTUD. FRÁ KL. 20:00 TIL 22:00.
LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA FRÁ Kl. 13:00 TIL 17:00.
KAUPFÉLAGSSKEMMAN
OPIÐ: MÁNUD.-FÖSTUD. FRÁ KL. 08:00 Tll 12:00.