Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Blaðsíða 52
274
Öryggismál
Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri á Siglufirði:
Snjóflóðavamir í Siglufirði
Áður en nýbyggðir snjóflóðavarnargarðar voru
reistir var suðurhluta Sigluijarðarkaupstaðar ógnað
af snjóflóðum úr Strengsgili og Jörundarskál. Snjó-
flóð úr giljurn á þessu svæði hafa verið tíð og fyrir
tilkomu garðanna er vitað urn 16 snjóflóð úr Jör-
undarskál og 31 snjóflóð úr Ytra- og Syðra-
Strengsgili síðan 1939. Þeirra á meðal er flóð sem
féll í sjó fram þar sem nú er byggð.
í kjölfar mannskæðra snjóflóða sem féllu á
Súðavík og Flateyri 1995 og urðu 34 manns að
bana mörkuðu stjórnvöld stefnu um skipulega upp-
byggingu snjóflóðavarna. Strax á árinu 1996 hófst
bygging snjóflóðavarna á Flateyri og hafinn var
undirbúningur aðgerða annars staðar, þ.á m. á
Siglufirði. Tillögur sérfræðinga að vörnum fyrir
syðsta hluta byggðar á Siglufirði lágu fyrir 1997
og miðuðust þær við að reistir yrðu tveir leiðigarð-
ar, annar undir Jörundarskál og hinn undir Ytra-
Strengsgili.
Markmið með byggingu varnarmannvirkjanna er
að tryggja svo sem kostur er öryggi fólks gagnvart
snjóflóðum. Með mótun lands og gerð leiðigarð-
anna er snjóflóðum úr hlíðinni ofan þeirra beint
fram hjá byggð í sjó fram.
Bygging leiðigarðanna hófst í júni 1998 og lauk
framkvæmdum í september 1999. Nú stendur yfir
Guðmundur Guðlaugsson
lauk stúdentsprófi frá fram-
haldsdeild Samvinnu-
skólans í Reykjavík 1979
og BEd-prófi frá Kennara-
háskóla Islands 1985.
Hann var fjármálastjóri
Brúnáss hf. á Egilsstöðum
frá febrúar 1988 til desem-
ber 1989 ogframk\’œmda-
stjóri þess frá janúar 1990 til ársloka 1996. Hann
var skrifstofustjóri Siglufjarðarbœjar l.janúar til
1. október 1997 og hefur verið bœjarstjóri á Siglu-
firði frá 1. október 1997. Hann var kynntur nánar
í 1. tbl. Sveitarstjórnarmála 1997.
vinna við þriggja ára uppgræðsluverkefni á fram-
kvæmdasvæðinu. Mannvirkin sönnuðu gildi sitt
veturinn 1998-1999 þegar allstórt snjóflóð féll
óvænt á Strengsgilsgarð (Stóra bola) ófúllgerðan.
Flugsanlegt er talið að flóðið hefði valdið tjóni í
byggð ef garðsins hefði ekki notið við. Á sl. vetri
féll síðan snjóflóð úr Jörundarskál á Litla bola sem
einnig sannaði þar gildi sitt. Ef litið er til aðstæðna
á þessu svæði er nrikil mildi að ekki féllu þar snjó-
flóð eftir að byggð reis sem ollu skaða og mann-
tjóni.
Flelstu stærðir varnargarðanna eru þessar:
Lengd leiðigarða: 910 m (670 m, 240 m)
Hæð leiðigarða: 18 m, 15 m
Heildarrúmmál efnis: 480.000 m3
Heildarkostnaður: 309 milljónir kr. (2000).
Verkkaupi var Siglufjarðarkaupstaður/Ofanflóða-
sjóður, en samningagerð og yfirumsjón með
framkvæmdum hafði Framkvæmdasýsla ríkisins.
Frumathugun snjóflóðavarna önnuðust Verk-
fræðistofa Siglufjarðar sf. og Norges Geotekniske
Institutt en Veðurstofa íslands hafði eftirlit með
henni.
Verktakaíyrirtækið Héraðsverk ehf. sá um upp-
Horft til vesturs yfir fjörðinn. Litli og Stóri boli blasa við. Snjóflóð
hafa fallið á þá báða og hafa þeir því nú þegar sannað gildi sitt.