Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Blaðsíða 76
Brunavarnir
Um 150 starfsmenn SHS
veita 170 þúsund íbúum
sjö sveitarfélaga þjónustu
á sviði brunavarna, sjúkra-
flutninga, forvarna og
gegna auk þess veiga-
miklu hlutverki í viðbúnaði
vegna mengunaróhappa
og almannavarna.
stöðina í Flatahrauni. Um leið verður tekinn í notk-
un nýr slökkvibíll sem verður gerður út frá nýju
stöðinni. Um verður að ræða 1600 fermetra bygg-
ingu á tíu þúsund fermetra lóð þar sem aðstaða fyr-
ir starfsmenn verður eins og best verður á kosið.
Tólf útkeyrsluhurðir fyrir slökkvi- og sjúkrabíla
verða í húsinu og á lóðinni verður meðal annars
æfingasvæði vegna mengunaróhappa, geymslu-
svæði fyrir birgðagáma almannavarna og hús fyrir
leitarhunda björgunarsveita. Stöðin í Skútahrauni
verður jafnframt bækistöð almannavarna.
SHS hefúr sem fyrr segir yfir að ráða öflugum
flota bíla, tækja og báta til þess að sinna hlutverki
sínu. Dælu- og körfubílar eru við allar stöðvar liðs-
ins. Auk þess hefur liðið til umráða lagnabíla,
gámabíl, sérbúinn bíl til björgunar utan alfaraleiða,
bíl með búnaði fýrir kafara liðsins og fleiri bíla og
tæki.
Sjúkrabifreiðar liðsins eru 11 talsins en þær eru í
eigu Rauða kross Islands. Sjúkrabílarnir eru allir af
gerðinni Ford Econoline og eru sérútbúnir til
sjúkraflutninga. Bílunum er breytt hér á landi, þeir
innréttaðir og búnir þeim tækjum sem þarf. Neyð-
arbíll og sex aðrir sjúkrabilar eru gerðir út frá stöð-
inni í Skógarhlíð, þrír eru gerðir út frá Tunguhálsi,
þrír frá Flatahrauni og einn frá Reykjavíkurflug-
velli. Neyðarbifreiðin er mönnuð neyðarflutnings-
manni og lækni en á öllum stöðvunum eru til taks
varaneyðarbifreiðar sem eru mannaðar sjúkraflutn-
ingamönnum sem hafa réttindi til að nota hjartaraf-