Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Blaðsíða 98
Byggðamál
Elísabet Benedikts-
dóttir framkvæmda-
stjóri Þróunarstofu
Austurlands
Stjórn Þróunarfélags Austur-
lands hefur ráðið Elísabetu Bene-
diktsdóttur framkvæmdastjóra
þróunarstoíu félagsins og At-
vinnuþróunarsjóðs Austurlands.
Elísabet tekur við starfinu af
Gunnari Vignissyni rekstrarfræð-
ingi sem gegnt hefur stöðu fram-
kvæmdastjóra frá árinu 1993.
Elísabet er rekstrarhagffæðing-
ur frá Háskólanum í Alaborg í
Danmörku. Hún starfaði að
loknu námi sem verkefnisstjóri í
átaksverkefni í atvinnumálum á
Egilsstöðum og Seyðisfirði og
sinnti í framhaldi af því ýmsum
sérverkefnum fyrir Byggðastofn-
un á Austurlandi. Hún var for-
stöðumaður útibús Byggðastofn-
unar á Austurlandi ffá 1992 til
1998, síðan afgreiðslustjóri hjá
Sparisjóði Norðfjarðar á Reyðar-
firði og nú síðast rekstrarstjóri
við Heilbrigðisstofnun Austur-
lands í Fjarðabyggð. Elísabet sit-
ur í stjórn Norrænu Atlants-
c ) FJARHITUN H/F VERKFRÆÐISTOFA Borgartúni 17, 105 Reykjavík. sími 562 8955, fax 562 8950.
■ Alhliða verkfræðiþjónusta
■ Áætlanagerð
■ Hönnun
■ Framkvæmdaeftirlit
■ Verkefnastjórnun
■ Veitukerfi
■ Burðarvirki
■ Lagnakerfi
■ Gatnakerfi
■ Umhverfismál
■ Skipulag
nefndarinnar, NORA, sem er
skammstöfun fyrir Nordisk Atl-
antssamarbejde, varamaður
í stjórn Byggðastofnunar, á sæti
í bæjarstjórn Fjarðabyggðar og
er formaður atvinnumálanefndar
sveitarfélagsins auk þess sem
hún hefur gegnt trúnaðarstörfum
í verkefnum tengdum atvinnu-
málum kvenna.
Gunnar Vignisson for-
stöðumaður viðskipta-
sviðs Þróunarstofu
Austurlands
Gunnar Vignisson, fyrrum
framkvæmdastjóri Þróunarstofu
Austurlands, hefur tekið við
forstöðu viðskiptasviðs þróunar-
stofu. Nýtt starfssvið Gunnars
felur í sér uppbyggingu á við-
skiptasviði þróunarstofunnar,
eflingu tengsla við austfirskt
atvinnulíf og sérstök þróunar-
verkefni. Gunnar er í hópi þeirra
atvinnuráðgjafa sem hafa hvað
lengsta starfsreynslu hér á landi
og hefur verið í framvarðarsveit
þeirra sem byggt hafa upp núver-
andi skipulag atvinnuþróunar-
starfs í landinu.
Aðsetur Þróunarstofu Austur-
lands er við Miðvang 2 á Egils-
stöðum.
Símanúmer þar er 471 2545.