Helgafell - 01.06.1942, Page 53

Helgafell - 01.06.1942, Page 53
Símon Jóh. Agústsson: Avam og ofregla Vaninn gerir menn frjálsa, og van- inn hneppir menn í ánauð. Vaninn er ein mesta andstæða lífsins. Vaninn tíarn- Merkilegar rannsóknir ar manninum hafa verið gerðar um á- að laga sig hrif vanans á afköst og aS nýjum aS- námsgetu eða aðlögun- stœSum. arhæfileika miðaldra manna. En því miður eru niðurstöður þessar enn lítt kunnar almenningi, jafnmikilvægar sem þær þó eru. Það hefur komið í Ijós, að að- alástæðan til þess, hve rosknir menn eiga yfirleitt örðugt með að tileinka sér ný vinnubrögð og starfshætti erekki sú, að námsgetu þeirra sé í sjálfu sér tek- ið að fara aftur, að þeir geti ekki lært vegna líkamlegrar og andlegrar hrörn- unar, heldur hin, að þeir hafa lagt nið- ur þá venju, að læra nokkuð nýtt í starfi sínu. Þeir eru stirðnaðir í göml- um athafnavenjum og eru ófúsir að breyta þeim. Sálfræðingur nokkur, Miles að nafni, rannsakaði t. d. hand- lagni 863 manna frá 6—95 ára. Valdi hann þá þannig, að jafnmargir menn skiptust á hvern áratug. Sýndi hann fram á, að ellin á miklu minni þátt í hrörnun þessa hæfileika en ætla mætti að óreyndu. Taugakerfið verður reynd- ar seinvirkara með aldrinum og ónæm- ara, en aðalástæðan til þess, hve rosknum mönnum gengur illa að laga sig að nýjum aðstæðum er sú, að öll orka þeirra rennur í gömlum farveg- um, og starfshættir þeirra eru stirðnað- ir í rótgrónum venjum, svc að enginn tími né afl verður aflögu til að ryðja nýjar brautir. Líffærið mótast smám saman af starfi því, sem það vinnur. Starfið skapar líffærið, eins og La- marck sá endur fyrir löngu. í þessu er lífeðlisleg aðlögun manna að lífsskil- yrðunum fólgin. Og taugakerfið mótast af venjunum, endurtekningu sömu at- hafnanna. Það er eins og venjurnar brjóti sér vegi í taugakerfinu. Því oft- ar sem þeir eru farnir, því sléttari og greiðfærari verða þeir. Smám saman verða þeir að eins konar fari eða renni- braut, sem sendiboðar heila og hugs- unar skunda eftir mótstöðulaust. Rót- gróinni venju má og líkja við fljót. Því lengur sem það rennur í sama far- veginum, því dýpri verður hann og því minni líkindi eru til þess, að það breyti um farveg. Þannig fjötra venj- urnar manninn því fastar sem lengra líður á ævina. Öll orka hans rennur um farvegi þeirra, og þess vegna hindra þær framtakssemi hans til nýj- unga. Maðurinn verður fangi vanans, ekki eingöngu af leti og meðfæddri hneigð til að forðast áreynslu og velja þann veg, sem hægastur er, heldur hefur og taugakerfið sjálft lagt hann í fjötra. Því þarf meira en sterka ósk og viljaákvörðun til að breyta venjum sín- um. Viljaákvörðunin er einungis upp- hafið, hún ein getur ekki breytt far- vegum venjanna í taugakerfinu, til þess þarf athafnir. Þegar hinn nýi vegur er orðinn jafngreiðfær og hinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.