Helgafell - 01.06.1942, Side 55

Helgafell - 01.06.1942, Side 55
ÁVANI OG OFREGLA 189 manninum er farið að fara svo mikiÖ aftur við eittkvert létt starf um sextugt, fimmtugt eða jafnvel fertugt, að talið er betra, að hafa yngri mann í starf- inu, á þessi afturför fyrst og fremst rót sína að rekja til vanans, en ekki til ellihrörnunar. Sorgarsaga hins aldraÖa manns er oftast í því fólgin, aS hann hefur ekki verið vel á verði gagnvart vananum. Sakir sífelldrar endurtekn- ingar hins sama hefur starfiÖ, eins og hann hefur iðkað það, mótað hann í sinni mynd. Hann er steingervingur á- kveðinna starfshátta, tilfinningahátta og skoðanahátta. Persónuleika hans skortir sízt festu, en hann brestur víð- sýni og aSIögunarhæfileika. Sakir þessa ágalla gerist hann ófær til að taka upp nýja starfsháttu. Hann beitir sínum gömlu vinnubrögðum, þótt þau séu orÖin úrelt, sakir breyttra að- stæðna, og nær því lélegum ár- angri. Þræll vinnunnar er ekki sá, sem getur aldrei verið óvinnandi, heldur hinn, sem vinnan hefur svipt þroska- möguleikum, sem vaninn hefur fjötr- að svo, að hann getur engum framför- um lengur tekið og ekkert nýtt lært. Vaninn gerir flesta menn gamla löngu áður en ellihrörnun lamar þá. Með réttri lífsstjórn geta menn forðast hin skaðsamlegu áhrif vanans. Menn verða að kunna tök á að brjóta óhollar og þroskastöðvandi venjur á bak aft- ur og setja aÖrar nýjar og betri í þeirra stað. Glíman við vanann er ævilöng, því að hún er barátta fyrir andlegu frelsi og þroska. Ajleíðing o/- Amerískur sálfræð- reglunnar: ingur nokkur segir frá afturför í starfi. 58 ára gömlum sölu- manni, sem leitaði ráða hjá honum. — Lá við borð, að sölumanninum yrði sagt upp starfi sakir þess, hve lítið hann seldi. Síðast- liðin fimm ár hafði honum farið um 40% aftur, þ. e. hann seldi 40% minna en fyrir fimm árum. En einu sinni hafði hann veriÖ annar bezti sölumað- urinn hjá þessu fyrirtæki. Maðurinn reyndist við rannsókn vel skynsamur. Greindarvísitala hans var 1.15. (Meðalgreindur maÖur hefur greindarvísitöluna 1.00). Hann var mannglöggur og hafði ágætt minni á mannanöfn. Hann þjáðist af ríkri van- máttarkennd og var hræddur um aS missa atvinnuna. Tók hann sér nærri, að vera nú orÖinn hornreka, þar sem hann á yngri árum hafði verið einn beztu starfsmanna fyrirtækisins. Hann var orÖinn hlédrægur og mannfælinn og lifÖi mest í innra hugarheimi. Hann var ókvæntur og umgekkst sjaldan kvenfólk. Hann fór jafnan heim að lokinni vinnu og leitaÖi sér aldrei neinnar skemmtunar eða tilbreytingar, sótti ekki kvikmyndahús, leikhús, hljómleika né fyrirlestra. Hann átti fáa kunningja, heimsótti þá sjaldan og fór sjaldan út meS þeim. Hann sat nálega öll kvöld heima hjá fjörgamalli móður sinni. Þegar hann var á ferÖalagi, var hann einnig mjög ómannblendinn og gaf sig sjaldan á tal viS ferðafélaga sína. Þegar hann hafði lokið nauð- synlegum erindum, fór hann til her- bergis síns í gistihúsinu, þar sem hann bjó, og húkti þar. Hann las ekkert nema dagblöðin. Hann kynnti sér aldrei nýjar bækur um sölumennsku og hafði yfirleitt hætt að fylgjast meS á sínu sviði, enda voru söluhættir hans hinir sömu og fyrir 20 árum. SálfræSingurinn skýrði nú fyrir manni þessum, aS afturför hans í starf- inu væri ekki því að kenna, hve gam- all hann væri, heldur stafaði hún af því, að hann hefði stirðnað í venjum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.