Helgafell - 01.06.1942, Síða 71

Helgafell - 01.06.1942, Síða 71
TVEIR ÍSLENZKIR LISTAMENN 201 þakka það hinum sterku persónulegu séreinkennum Finns Jónssonar, að hann, ungur og óþekktur, skyldi vera valinn liðsmaður í þessum samtökum. Því hefur verið haldið fram, að Finnur hafi orðið fyrir áhrifum af Sturm-hreyfingunni í verkum sínum, en það er fjarri sanni, því að þessi hreyfing hélt aldrei fram neinni ákveð- inni stefnu né listformi, en var aðeins samtök mjög svo ólíkra listamanna, er áttu svipuð áhugamál. Enda hef ég ekki orðið var við, að myndir Finns frá þessu tímabili líktust verkum neins af Sturm-listamönnunum. Myndir hans frá þessu tímabili ber nú að skoða að- eins sem þrep á þroskastiganum, það er ,,abstrakt“-leikur í litum, línum og flötum, og í rauninni býst ég við að þetta listform sé í innsta eðli sínu ó- skylt Finni, enda þótt hann tæki það upp um tíma sem tilraun. Það eru enn í dag til menn, sem álykta þannig, að vegna þess að ,,Litla stúlkan í heim- sókn hjá afa“ og „Síðasta landsýn út- flytjandans“, og hvað þau nú hétu öll þessi ,,skilderí“, sem prýddu veggi lið- innar aldar, voru engin list, hljóti hver einasta mynd, sem segir nokkra sögu, að vera ólistræn. Sannleikurinn er sá, að góður lista- maður, sem málar lifandi fólk, getur ekki komizt hjá því að segja sögu þess, og ef til vill nær hún oft miklu dýpra, en orðsins list er unnt að ná. Þessa er getið hér, sökum þess, að Finni Jóns- syni hefur ekki alls fyrir löngu verið borið það á brýn, að sumar myndir hans væru ,,bóklegar“. Myndir Guð- mundar Thorsteinsson og fleiri ágætra málara, lífs og liðinna, hafa líka oft ákveðna sögu að segja, enda yrði lítið eftir af listaverkum, bæði liðinna alda og einnig nútímans (t. d. ,,Guernicka“ eftir Picasso), ef öllum slíkum mynd- um yrði komið fyrir í kjöllurum, og þær stimplaðar ,,bókmenntalist“. * * * Sá, sem þetta ritar, hefur haft mikla ánægju af að fylgjast með þroskaferli Finns Jónssonar nú í nærri tuttugu ár, frá fyrstu tilraununum, sem voru ef til vill nokkuð fálmandi á stundum. Það hefur verið gaman, að taka eftir hvern- ig þroski hans og festa eykst ár frá ári, og ná hámarki nú síðast í hinum mikilfenglegu sjávarmyndum, er hann sýndi á listsýningunni síðast- liðið haust. Ef til vill er aukning þroskans greini- legust, ef fylgzt er með sjómanna- myndunum frá fyrstu byrjun, og tekið eftir, hvernig bygging þeirra, svipur, áferð, litameðferð, breytast til hins betra með hverju ári. Onnur sjávar- myndin, sem var á listsýningunni, og höfundurinn nefnir ,,Rok“, er eins og ■ævintýri um íslenzku sjóhetjuna, sem siglir einn á bát upp á líf og dauða gegnum hamslaust öldurótið, æðru- laus þótt stormurinn hvíni og brimlöðr- ið þeytist himinhátt, en marbendlar og alls kyns illþýði fylli djúpin. Myndin er auk þess ágætlega byggð, sterk og lifandi í litum og línum, og áferðin mjög skemmtileg, því svo virðist sem formið sé mótað á léreftið með olíulit- um. Sama er að segja um hina mynd- ,ina, sem á sýningunni var, og er þó ; kompositionin enn sterkari þar. Enn sem komið er finnst mér þessar mynd- ir vera hámark í list Finns Jónsson- ar, en því má ekki gleyma, að hann hefur valið list sinni mörg fleiri við- fangsefni, en sjómennina og líf þeirra. Skilningur hans á íslenzku landslagi er víða mjög sjálfstæður og frábrugðinn skilningi annarra íslenzkra málara. í landslagsmyndum leggur hann, eins og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.