Helgafell - 01.06.1942, Page 82

Helgafell - 01.06.1942, Page 82
212 HELGAFELL hlýtur að hneyksla hvern góðan borg- ara, sem með eigin augum sér höfuð- borg sína vaxa daglegum vexti, þenj- ast út, teygja sig í allar áttir og upp í loftið, stækka öllum hinum þremur við- urkenndu stærðum. Og yfir borginni svífa dag og nótt fullkomnustu hern- aðarflugvélar, reiðubúnar að verja hana gegn fjandsamlegri árás, en hver > gata er ekin óteljandi bílum, af frá- brugðnustu gerðum, með hinum breyti- legasta hraða, í alls konar augnamiði. Sprengingar þruma, skot heyrast, vopnaglamur og stígvélaþramm, her- mannaskálar spretta, loftskeytahrókar rísa, og rauð ljós sjást á kirkjuturnum á kvöldin. Er þetta ekki stækkun ? Er það ekki útþensla, að hávaði styrjald- arinnar skuli hafa náð hingað, reyndar aðeins sem bergmál (g.s.l.) ?Ogerþað ekki vöxtur, blessuð stærð, sem felst í öðrum hljómi, sem hríslast um alla borgina, ekki sem bergmál, heldur upprunalegur, ósvikinn og sígildur — hljómur gullsins ? Hefur ekki líka átt sér stað fjölgun, ekki einungis eftir venjulegum leiðum, af eðlisbundnum orsökum, heldur og fyrir atbeina erl. þjóðhöfðingja, sem hafa sent hingað tugi þúsunda manna, sem eru búnir að taka út vöxt ? — Minnka, hvílík fjar- stæða! En þetta afbakaða hugtak hans um þrengslin yfirgefur hann ekki. — Borgin minnkar. Og þó vildi hann sízt- ur manna fella rýrð á þessa borg, þar sem vagga hans stóð og draumur hans hófst. Hvern morgun, rúmrar hálfrar aldar, hefur hann vaknað í hennar trygga, en nokkuð svala faðmi, fetað um fátæklegar götur hennar, glaðzt við and- lit barna hennar og notið hins töfrandi útsýnis af holtum hennar og hæðum, meðan mátti ganga þangað óhindrað af gaddavírnum, sem fylgir þessum er- lenda her eins og skuggi. Hann hefur fylgzt með þroska hennar, aldrei borið neinar vingulslegar vonir í brjósti um fullkomnun hennar, en litið með bjart- sýni á framtíð hennar, þegar aðrir spáðu henni hrakspám. Hún er draum- ur hans, í honum hefur hann lifað sínu hamingjusama lífi, án brasks og fíkn- ar. — Svo rennur upp hinn 7. júlí 1941. Enn gengur hér erlendur her á land, að þessu sinni eftir beiðni landsmanna sjálfra. Voru þeir búnir að rýja brezka heimsveldið, hugðust þeir nú að veita yfir sig auði Ameríku ? Nema nú fær- ist stríðið í húsi Auðuns Auðunsson- ar í algleyming. Þetta síðara hernám fer með hinzta snefilinn af umburðarlyndi Þorbjarg- ar Þorbjarnardóttur, en um leið eykst þróttur hennar, blossar uppi vilji henn- ar til dáða, hverfur tregðan og úrræða- leysið. Nú heimtar hún, að hann selji hús sitt og leggur fram tilboð um æv- intýralegt verð frá bráðókunnugum manni, þylur upp útreikninga á því, hvernig margfalda má það verð í nýj- um húsakaupum eða verzlun. En þessi smávaxni, ljúfi vitringur hefur einnig tekið breytingum, hann vísar á bug til- boðinu, kurteis en ósveigjanlegur. Hús eru til að búa í þeim, ekki til að selja þau. Hún gerir harða hríð að honum, heldur fram rétti sínum til ákvörðunar til móts við hann, álasar honum fyrir leti og heimsku. En hann bifast hvergi. Og enn lyftir forsjónin undir bagga hans, sannar réttmæti bjartsýni hans með því að senda honum verkefni. Eitt stórmenni borgarinnar á embætt- isafmæli. Vinir hans senda honum skrautritað ávarp með upptalningu á mörgum fleiri kostum, en hann hafði grunað, að hann væri búinn, og þeir greiða verkið sannarlegu dýrtíðarverði. Auðunn Auðunsson erísjöundahimni,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.