Helgafell - 01.06.1942, Page 102

Helgafell - 01.06.1942, Page 102
232 HELGAFELL er vafalaust vel að sér í þeim greinum, sem hann hefur lagt stund á, verkfræði og guðfræði, og kemur menntun hans í síðari greininni skýrt fram í bókinni og mótar hana að verulegu leyti. Hann skortir hins vegar tilfinnanlega skilning á hagfræðilegum viðfangsefnum, en án hag- fræðiþekkingar verður ekki ritað um þjóðfélags- mál, svo vel sé. Þetta virðist Sigurði Nordal pró- fessor hafa sézt yfir, er hann ritaði formála sinn fyrir bókinni og mælir með henni. Hann segist ekki efast um, að höfundurinn segi satt, telur, að Bretar séu ekki ,,lygin þjóð“, og kveður bókina hafa verið gjörla athugaða. Síð- an segir hann: ,,Það kann að vera, að dóm- prófasturinn í Kantaraborg geti leyft sér ó- sannanlegar tilgátur um annan heim. En hann gæti ekki leyft sér fölsun jarðneskra staðreynda án þess að fljótlega yrði flett ofan af henni — og flett af honum prófastsskrúðanum um leið. í þeim efnum eru Bretar kröfuharðir til manna, þótt í lægri trúnaðarstöðum séu. Mikið af vin- sældum bókarinnar mun hún eiga þessu trausti á höfundinum að þakka". Lesandanum virðist ætlað að álykta, að haldi prófasturinn enn hempunni, hljóti allt, sem hann segir í bók- inni um veraldleg efni, að vera satt og rétt. Minnir þetta á vísuorðin alkunnu: „Annar eins maður og Oliver Lodge fer ekki með neina lygi"! í bókinni eru samt víða rangar staðhæfing- ar, sem bera vott um fáfræði um hagfræðileg efni. Sem dæmi má nefna eftirfarandi setning- ar (bls. 152—153): „Það hefur engin sjáan- leg áhrif á vöruverð eða starfsmannalaun, hvort mikið eða lítið safnast fyrir af gjaldeyri í Ráð- stjórnarríkjunum. Köruoerðið er fast,*) alveg eins og verð á gasi eða vatni í bæjum í Eng- landi, og geiur ckki breytzt eftir upphœb þess gjaldeyris, sem er í umferS."*) Þessi ummæli bera með sér, að höfundurinn þekkir ekki eða skilur ekki eitt hið elzta lögmál hagfræðivís- indanna, ,,kvantitets“-lögmálið, sem fjallar, í sem fæstum orðum sagt, um það, að verðlagið ákvarðist af hlutfallinu milli vörumagnsins og peningamagnsins í umferð, þegar jafnframt sé tekið tillit til umferðahraða peninganna. Sé verðmyndun ekki frjáls, en þó ekki um að ræða algera skömmtun, og ákveði hið opinbera hærra eða Iægra verð á vöru en svarar til markaðsað- stæðna, svo sem framjeidds magns vörunn- ar og eftirspurnar neytendanna, verður hún ann- að hvort óseljanleg eða skortur verður á henni. *) Leturbreyting mín. G. Þ. G. Um sumt af því, sem á verður að deila í bókinni, virðist þó fremur mega kenna óvand- virkni í framsetningu en fáfræði, svo sem þeg- ar höfundur ber saman kjör verkamanna í Ráð- stjórnarríkjunum nú og á tfmum keisarastjórn- arinnar (bls. 98) og segir frá breytingum á launum í peningum, en getur ekkert um breyt- ingar á verðlagi á sama tíma. Slíkur samanburð- ur, rétt gerður, er raunverulega mjög glæsi- legur fyrir Ráðstjórnarríkin, og mér finnst ó- þarfi að gefa óvinum þeirra kærkomið tæki- færi til þess að henda gaman að „einíeldni Rússlandsvinanna", eins og ég hef heyrt gert út af samanburðinum í bókinni. Nú á tímum vita flestir, að ekki verður dæmt um breyting- ar á kjörum eftir breytingum á peningalaunum, nema jafnframt sé tekið tillit til verðlagsins. Mér hefur þó verið sagt, að frambjóðandi til Alþingis við síðustu kosningar hafi sagt á fundi, þar sem rætt var um gengismálið, að „króna sé alltaf króna, hvert sem gengið er“, svo að einhverjum hér á landi finnst samanburður dómprófastsins líklega réttur. Þá er í bókinni allmikið um mjög barnaleg- ar staðhæfingar. Sem dæmi þess má nefna eft- irfarandi (bls. 181—182) : „Það er óþarfi að taka fram, að líkamlegar refsingar þekkjast ekki : skólum Ráðstjórnarríkjanna, né á heim- ilunum,*) því að ólöglegt er að refsa börnum með líkamshirtingu“. Ætli það sé ekki erfitt fyrir ferðamann að ganga úr skugga um, hvort krakki sé aldrei flengdur í ríki, sem hefur 180 milljónir íbúa? Slík fullyrðing sem þessi, að líkamshirtingar þekkist ekki, af því að þær séu bannaðar með lögum, er hins vegar ef til vill einfeldnislegri en svo, að hún verði talin „föls- un jaröneskra staðreynda". En víst er um það, að málstað Ráðstjórnarríkjanna er ekkert gagn gert með slíkum málflutningi, heldur þvert á móti. Mætti tilfæra fjölmörg ummæli, áþekk þessum. Hér skal þó til viðbótar aðeins getið fáeinna, sem valin eru af handahófi. í upphafi kaflans, Af neistanum kviknar bálið (bls. 288), er rætt um nýskipun Ráðstjórnarríkjanna og segir þar: ,,Enn*) koma fyrir svik, öfundsýkt og smávegis óráðvendni, sem raskar jafnvægi þjóðlífsins, og sumt*) af því ljóta er fjarrt því að vera horfið". Á bls. 171 segir: „Ráðstjórn- aráætlunin kippir grundvelli undan lyginni" og á bls. 170: „Áætlunin gerir óþarfa lygi, svik og undanbrögð við vinnu". Gildi slíkrar bókar sem þeirrar, sem hér er *) Leturbreyting mín. G. Þ. G.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.