Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2014
Í vikunni ritaði fjárfestir og stjórnarmaður íVÍS og Högum grein þar sem hann lýstiánægju sinni með kynjakvóta í stjórnum fyr-
irtækja. Taldi hann æskilegt að kynjakvótar
fengju að standa óhaggaðir en ráðherra hafði ýj-
að að endurskoðun laganna. Greinin vakti mikla
lukku, a.m.k. í netheimum, og heyrði ég því
fleygt að almenn sátt væri bara í atvinnulífinu
um kynjakvótann. Það er kannski eins og að
varpa sér fyrir ljónin að gera athugasemdir við
málflutning hins réttsýna fjárfestis. Ég þekki
það hins vegar úr störfum mínum að það er eng-
in almenn sátt í atvinnulífinu um kynjakvóta í
stjórnum fyrirtækja. Sumir eru kampakátir en
aðrir ekki þótt þeir láti það yfir sig ganga.
Ég tek undir fullyrðingu fjárfestisins um að
það hefur verið fullt af óhæfum körlum í stjórn-
um íslenskra fyrirtækja. Um það vitna til dæmis
fjölmargir Hæstaréttardómar. Það líka rétt að
kynjakvótinn leiðir ekkert sérstaklega til þess
að óhæfar konur veljist í stjórnir. En hann er
heldur ekki til þess fallinn að hæfar konur velj-
ist til starfans. Ekki frekar en almenn ákvæði í
lögum um stjórnir félaga tryggi að í þær setjist
hæfir einstaklingar. Spurningin um hæfi er al-
gerlega óviðkomandi umræðu um kynjakvóta.
Það sem skiptir máli er að eigendur fyrirtækja
stjórni þeim eins og þeir sjálfir kjósa. Ef þeir
vilja skipa í stjórn fulla frændann, félaga úr
boltanum, gamla skólasystur „for old time sake“,
nú eða sig sjálfa jafnvel þótt þeir hafi aldrei
hugsað heila hugsun til enda þá verður að unna
þeim þess. Þeir standa og falla með þeirri
ákvörðun. Hæfi verður ekki tryggt með kynja-
kvóta.
Í grein fjárfestisins segir: Árið 2009 var hlut-
fall [kvenna] tíu prósent. Var eingöngu valið í
stjórnir árið 2009 á forsendum hæfis? Líkurnar
á því eru vitaskuld mjög nálægt núlli. Stór hluti
þessara stjórnarmanna varð fyrir valinu í krafti
kynferðis síns.
Í stjórn VÍS og Haga er aðeins háskóla-
menntað fólk, 35-50 ára. Háskólamenntað fólk á
þessum aldri er um 5% þjóðarinnar. Er líklegt
að hæfustu stjórnarmennirnir í landinu séu allir
úr þessu þrönga mengi? Varla. Hvað hafa Hagar
og VÍS á móti iðnaðarmönnum sem eiga enga
fulltrúa í stjórnunum? Er enginn verslunar-
maður með næga þekkingu á verslun til að setj-
ast í stjórn Haga? Hverjar eru líkurnar á því?
Litlar. Og starfsfólkið, sem heldur þessum fyr-
irtækjum á floti og hefur mikla hagsmuni af því
að reksturinn gangi vel. Á það ekki að eiga full-
trúa í stjórn? Hávær krafa var um slíkt fyrir um
áratug, áður en krafan um kynjakvóta komst í
tísku. Það versta við tískuna er að hún fer í
hringi. Það er hins vegar ekki til ein uppskrift
að vel heppnaðri stjórn.
Vinsældakosning í stjórnir fyrirtækja
* Það er þægilegt fyrir at-vinnufjárfesti að setjastsjálfur í stjórn en láta lífeyr-
issjóðum og öðrum hluthöfum
eftir að fylla kynjakvótana.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Björk Vilhelmsdóttir borg-
arfulltrúi fór 12 daga á Heilsustofn-
un NLFÍ í Hveragerði og var gríð-
arlega ánægð með þá dvöl.
„Árangurinn er svo
stórkostlegur að eg
hef ákveðið að
fresta liðskipta-
aðgerð á hné 21.
janúar og þess í
stað stunda sjúkraþjálfun og æfingar
í vatni samhliða borgarpólitík og
kosningabaráttu. Fer nú heim en
kem aftur hingað 17. febrúar í meiri
styrkingu í stað endurhæfingar eftir
liðskipti. Húrra fyrir frábæru starf
HNLFÍ.“
Einar Örn
Jónsson stendur í
ströngu þar sem
hann lýsir leikjum
Íslands á RÚV. Einar
er virkur á Twitter
og spurði fyrir leikinn gegn Ung-
verjum: „Jæja, nú vil ég fá spá fyrir
leikinn á eftir. Ekkert múður og
ekkert rugl.“ Hann fylgdi þessu eftir
með: „Ég spái öðru hvoru liðinu
sigri, til vara segi ég jafntefli. #Nost-
radamusStrikesAgain.“
Guðjón Guðmundsson er
einnig staddur á EM í Danmörku
þar sem hann stendur vaktina fyrir
Bylgjuna. Guðjón kann sitthvað fyr-
ir sér í handboltanum og sagði á
Twitter: „Menn leika sér í fótbolta.
Svo er hitað upp.“ Samstarfsmaður
hans, Hörður Magnússon, spyr á
móti: „En ætti það ekki að vera öf-
ugt?“ Guðjón svaraði um hæl: „Jú
minn kæri. En það eru svo margir
Liverpoolmenn í
landsliðinu. Þeir
elska fótbolta.“
Atli Fannar
Bjarkason, að-
stoðarmaður Guð-
mundar Steingrímssonar, formanns
Bjartrar framtíðar, tísti: „11. janúar
sagði ég að 2014 yrði árið sem allir
byrjuðu á Twitter. 12. janúar hóf
@stefanhilmars að tísta á ný,“ og
beindi orðum sínum til söngvarans,
sem svaraði um hæl: „Lífið er til-
viljun. Það var þó að áeggjan @gisli-
marteinn að ég endurræsti Twitter,
sem ég hafði ekki notað lengi.“
AF NETINU
Asphalt 8: Airborne er stórleikur sem nýverið
kom út fyrir snjallsíma og spjaldtölvur og hef-
ur leikurinn farið sigurför um heiminn síðan
hann kom út.
Ísland er viðkomustaður leiksins og er ein
brautin tileinkuð Íslandi. Einnig er hægt að
keyra í Bandaríkjunum, Ítalíu og Frakklandi
Milljónir notenda munu keyra um Ísland.
Skjáskot
Íslensk hraðbraut
auk fleiri landa. Í leiknum má sjá ýkta mynd af
Kirkjufelli við Grundarfjörð og leiðina framhjá
Vatnajökli þar sem jökullinn skríður fram. Þá
má einnig sjá íslensk sveitabæjarskilti.
Metacritic gefur leiknum 91 af 100 mögu-
legum í einkunn og GameRankings gefur
leiknum 92% af 100%.
Umhverfið í íslensku brautinni minnir ekki mik-
ið á Ísland. Þó má sjá glitta í nokkur kennileiti.
Metsöluhöfundurinn og hárgreiðslukonan
Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack, sem
gerði garðinn frægan með bókunum sín-
um Hár annars vegar og Lokkar hins
vegar, ætlar að stíga úr rituðu máli og
gerast stofugestur hjá landsmönnum. 365
hefur tryggt sér krafta Theodóru þar
sem hún mun kenna sjónvarpsáhorf-
endum réttu handtökin í hárhirðu og
hárgreiðslu.
Theodóra kom sem stormsveipur inn á
bókamarkaðinn hér á landi þegar bókin
hennar Hárið var ein af mest seldu bók-
unum árið 2012. Undir lok síðasta árs
kom svo bókin Lokkar en hún var gerð á
aðeins þremur mánuðum.
Töluverð spenna er fyrir komu hennar
á skjáinn en hárgreiðsluþættir hafa verið
vinsælir vestanhafs en lítið hefur verið
framleitt af slíkum þáttum hér á landi.
Hárgreiðsla
á skjánum
Theodóra
Mjöll Skúla-
dóttir Jack.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vettvangur