Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Síða 32
É
g hef mjög gaman af eldamennsku og þær
bókmenntir sem ég les þessa dagana eru
fyrst og fremst matreiðslubækur,“ segir
Heimir Haraldsson, náms- og starfsráðgjafi
á Akureyri. Hann og eiginkona hans, séra Hildur
Eir Bolladóttir, buðu góðum vinum í sannkallaða
villibráðarveislu.
„Ég elda ekki, er ekki mikil áhugamanneskja á
því sviði, og hef ekki sjálfstraust þegar kemur að
matreiðslu en Heimir er hins vegar rosalegur
kokkur. Við áttum mikið af villibráð í frystinum og
eftir að ég fór að borða kjöt í fyrra, í fyrsta skipti í
16 ár, hefur villibráð komist efst á vinsældalistann
hjá mér,“ segir Hildur sem segist í stað elda-
mennskunnar leggja á borð, velja vín og skreyta og
hefur gaman af því. „Ég er svolítið eins og klínik-
dama hjá honum í eldhúsinu – geri bara það sem
Heimir segir mér að gera og rétti honum áhöldin.“
Heimir hefur fíleflst í skotveiðinni eftir að eiginkona hans fór að borða kjöt á ný
og kom heim með rjúpur í jólamatinn og fjölskyldan er öll sammála um að villibráðin
sé besta kjötið.
„Ég hef ekki gert mikið af því að elda villibráð enda nýfarinn að stunda skotveiði
en það er sérstaklega gaman að elda eitthvað sem maður hefur veitt sjálfur.“
Heimi langaði að bjóða vinafólki þeirra hjóna upp á ólíka villibráðarrétti þannig að
hægt væri að smakka alls konar útfærslur á kjötinu. „Þeir virðast vera endalausir
möguleikarnir hvernig á að elda gæsina,“ segir Heimir.
Hann bætir við að borðsamfélagið í kringum matarboðið skipti miklu máli og mat-
ur bragðist alltaf betur innan um skemmtilegt fólk eins og þau eyddu kvöldinu með.
Þau hjón eru þá meðal annars í matarklúbbi með gömlum menntaskólavinum Hildar.
„Þetta fylgir aldrinum að halda matarboð held ég. Þá er maður hættur að skreppa
út og fær fólk frekar í heimsókn,“ segir Hildur Eir og hlær. Þetta var fyrsta mat-
arboð þeirra hjóna á nýju ári og drengirnir þeirra snæddu að sjálfsögðu með og
hundurinn Kári var sérlega áhugasamur um störfin í eldhúsinu.
Kári sýndi
matarboðinu
mikinn áhuga.
Vinkonurnar Hildur Eir og
Lára Sóley nutu villibráð-
arinnar sem Heimir eldaði.
NOTALEG KVÖLDSTUND Á AKUREYRI
Villt fyrir norðan
*Ég ersvolítiðeins og klínik-
dama hjá
honum í eld-
húsinu – geri
bara það sem
Heimir segir
mér að gera.“
HJÓNIN HEIMIR HARALDSSON OG HILDUR EIR BOLLADÓTTIR BUÐU GÓÐUM VINUM Í
KVÖLDVERÐARBOÐ, MEÐ VILLIBRÁÐ Í ALLS KYNS ÚTFÆRSLUM.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2014
Matur og drykkir
1 gæsabringa
2 msk. sykur
1½ dl gróft salt
½ msk. rósapipar
½ msk. rósmarín
½ msk. timían
½ msk. basilíka
½ msk. estragon
½ msk. sinnepsfræ
½ msk. dill
BLÁBERJASÓSA MEÐ
GRÖFNU GÆSINNI
1 dl bláberjasulta
1 msk. balsamedik
½ bolli timían, ferskt
pipar
1 dl olía
Allt hrært vel saman.
Grafin bringa
500 g ávextir að eigin
vali
250 ml vanillujógúrt
150 ml rjómi
½ tsk. vanilludropar
myntulauf
Til að gera jógúrtina að
froðu þarf að nota tvö hylki
í rjómasprautuna.
Jógúrt-
eftirréttur