Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Blaðsíða 41
12.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Á hvaða stað er fólk statt í lífinu þegar það er farið að fótósjoppa sjálft af sér myndirnar sem það deilir á samfélagsmiðlinum Instagram? Ekki nóg með að fílt- erar séu notaðir heldur er ungviðið farið að ganga mörgum skrefum lengra til þess að koma sinni fullkomnu mann- eskju á framfæri. Hingað til hefur fótósjoppið verið stór partur af tískuheiminum enda ekki hægt að kaupa glanstímarit nema búið sé að afmá allt sem þykir óprýði. Reglulega koma upp á yfirborð- ið hrikalegir fótósjopp-skandalar erlendis þar sem frægðarfólk er „ampúterað“ eða líkamsvöxturinn gerður þannig að Barbie og frænkur hennar allar frá Mattel gætu bara pakkað saman. Þrátt fyrir frjótt ímyndunarafl hafði undirritaðri ekki dottið í hug að þessi valmöguleiki væri fyrir hendi. Það er kannski ekkert skrýtið því fótósjopp-kunnátta undirritaðrar er þannig að það villtasta sem mér hefur hingað til dottið í hug er að klippa haus af fólki og setja á líkama Pamelu Anderson … Og svo kann und- irrituð einnig að klippa saman fyr- ir og eftir myndir og reyndar líka að klippa saman partímyndir til að nota sem mynd- efni á landið smarta. Þess vegna brá mér töluvert þeg- ar mér fóru að berast Instagram-myndir af 23 ára gamalli stúlku sem hefur notið töluverðra vinsælda í bloggheiminum. Myndirnar sem ég fékk sendar voru mynd- ir sem stúlkan hafði póstað sjálf og einnig myndir sem vinkonur hennar höfðu póstað. Á þessum nákvæmlega sömu myndum mátti sjá greinilega hvað hún var miklu mittismjórri á sínum eigin myndum en á myndum vinkvenna sinna. Þegar þessar myndir voru bornar saman var munurinn mikill. Mín fyrstu viðbrögð voru að þetta hlyti að vera eitthvert grín en þegar ég lagðist yfir þetta og fékk að sjá fleiri mynd- ir varð ég aðallega hissa. Að- allega vegna þess að stúlkan er svo prýðilega vel heppnuð í grunninn, gáfuð, í góðu formi og afar hugguleg á allan hátt. Ég hugsaði með mér að ef þessi stúlka þyrfti að fótósjoppa sig þá mættum við hinar venjulegu Guggurnar varla lifa. Þegar ég hringdi í stúlkuna til að spyrja hana nánar út í þetta sagði hún að þetta hefði verið algert hugsunarleysi og hún skammaðist sín fyrir þetta og vildi alls ekki að alheimurinn vissi af þessu. Ég ákvað að sýna myndirnar ekki opinberlega þótt ég sé með þær undir höndum því ég vorkenni henni. Ég var nefnilega einu sinni 23 ára og vitlaus og er meðvituð um það að ég geti aldrei þakkað nægilega heitt fyrir það að internetið hafi ekki verið komið á þann stað sem það er í dag á þessum ár- um. Ég er til dæmis þakklát fyrir það að mínar ljósmyndir frá þess- um árum hafi aldrei ratað á internetið enda eiga þær ekkert er- indi þangað. Þær eru tryggilega geymdar á stað þar sem enginn kemst í þær nema ég sjálf. Það er nefnilega svo ósköp margt sem lífið átti eftir að kenna mér á þessum árum og ég hefði pottþétt fótósjoppað mig í drasl, stækkað á mér varirnar í tölvunni, mjókkað andlitið og ég veit ekki hvað ef tæknin hefði verið komin á þennan stað … martamaria@mbl.is Þegar ég var 23 ára … EIKJUVOGUR 29 - 104 RVK. - S:694-7911 www.facebook.com/spennandi www.spennandi.com OPIÐ: MÁN-FIM: 12-18 - FÖS: 12-16 GALLABUXUR Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is - mán-föst 10-18 - lau 11-15 Allt fyrir gluggana á einum stað Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.