Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Blaðsíða 33
12.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Sá yngsti, Andréas Lapas, skemmti sér konunglega í boðinu.
Morgunblaðið/Þórður
Fiskrétturinn hennar Jóhönnu er í eftirlæti hjá barna-
börnunum.
Fyrir 4
800 g ýsuflök
½ sítróna, safinn
1 tsk. arómat
1-2 egg
örlítið hveiti
1 peli rjómi
1 tsk. karrí
2 dl hrísgrjón
Látið ýsuflökin liggja í sítrónusafa og arómat í korter
og sjóðið hrísgrjón á meðan. Pískið eggin og dýfið ýsu-
flökunum, skornum í mátulega bita, í eggin og veltið
þeim svo upp úr hveiti. Steikið flökin örstutt á heitri
pönnu. Smyrjið eldfast form og setjið soðnu hrís-
grjónin í botninn og fiskinn þar ofan á. Hrærið pela og
rjóma og karrí saman og hellið yfir. Bakið í ofni 15-20
mínútur við 190°C.
SINNEPSSÓSA
½ dós sýrður rjómi
½ dós majónes
franskt sinnep eftir smekk
Blandið öllu saman og smakkið til með franska sinn-
epinu. Passið að sósan verði ekki of sterk.
Berið fram með soðnum kartöflum, góðu rúgbrauði
og gulrótarsalati; með því að raspa saman gulrætur,
dreypa smá sítrónusafa yfir og rúsínum.
Bessastaðafiskur
Systkinin Margrét Anna og Jóhann Þór einbeitt að snæðingi.
50 g smjörlíki
1 egg
8 msk. hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. möndludropar
mjólk eftir þörfum
Bræðið smjörlíkið við vægan hita. Hrærið saman hveiti, lyftiduft,
egg og hellið smjörlíkinu saman við. Bætið mjólk út í þar til æskilegri
þykkt er náð. Hellið dropunum saman við. Steikið pönnukökurnar
og berið fram með rjóma og rabarbarasultu.
Klassískar pönnukökur
ömmu