Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.10. 2014
Degi Leifs Eiríkssonar 9. október varfagnað af Amerísk-íslenska við-skiptaráðinu með umræðu um fríversl-
unarviðræður Bandaríkjanna og Evrópusam-
bandsins (TTIP) sem áður hefur verið minnst á í
þessum dálki. Sérstakur ræðumaður á fundi um
málið var Tim Benett sem fer fyrir frjálsum fé-
lagasamtökum alþjóðafyrirtækja sem hafa höf-
uðstöðvar í Bandaríkjunum og Evrópu (Trans-
Atlantic Business Council) og eru mjög áfram
um að viðræðum um TTIP ljúki með fullgildingu
fríverslunarsamnings. Önnur atvinnulífssamtök,
bæði í Bandaríkjunum og Evrópu, eru sama
sinnis og eftir því sem á líður viðræðurnar og
fyrirbærið TTIP er meira kynnt fyrir almenn-
ingi fjölgar þeim sem vilja leggjast á árarnar í
þeim tilgangi að ná jákvæðri niðurstöðu úr við-
ræðunum. Kostir fríverslunarsamnings milli
þessara tveggja efnahagsstórvelda eru enda svo
augljósir, ekki síst fyrir Evrópu sem glímir nú
við efnahagsvanda sem ekki sér fyrir endann á
þrátt fyrir sértækar stjórnvaldsaðgerðir í tilefni
vandans. Stöðnunin í Evrópu verður ekki rofin
öðruvísi en með afléttingu beinna og óbeinna
hafta í viðskiptum við lönd utan Evrópu. Það
getur hreinlega skilið á milli lífs og dauða lítilla
og meðalstórra fyrirtækja ef hægt er að draga
úr beinum skrifræðiskostnaði við viðskipti yfir
Atlantshafið. TTIP er einmitt ætlað að draga úr
skrifræði og tilheyrandi kostnaði. Í þessu ljósi
mætti ætla að það væri ekki mikið sem þyrfti að
ræða í þessum viðræðum. En þá gleyma menn
úrtölumönnunum. Ekki má vanmeta áhrif
þeirra.
Margir hafa auðvitað beina hagsmuni af því
að viðskipti aukist ekki, það er að segja, við-
skipti annarra. Sá sem framleiðir skrúfur og sel-
ur á tilteknu svæði er ekkert æstur í að skrúfur
frá öðrum framleiðendum komi á markaðinn.
Hann vill auðvitað ekki segja það beint, slíkt
gæti beinlínis gert út af við hann og jafnvel
komið honum í fangelsi ef samkeppnisyfirvöld
geta mögulega komið því við. Miklu þægilegri
leið til að halda öðrum skrúfum frá markaðinum
er að gera þær tortryggilegar í augum neyt-
enda. Fá jafnvel einhverja löggilta fræðinga með
sér lið og halda því fram að skrúfgangurinn sé
grunsamlegur því hann sé ekki í samræmi við
„það sem við eigum að venjast“. Skrúfum má
skipta hér út fyrir ost, kjúkling, stækkunargler,
farsíma, vaðstígvél …
Neikvæð umræða á þessum nótum mun koma
upp hér á landi eins og annars staðar, ef réttar
upplýsingar liggja ekki fyrir. Menn þurfa að
geta myndað sér skoðun á kostum og göllum
TTIP og vera upplýstir um viðræðurnar eins og
þeim vindur fram. Fundur AMÍS sem nefndur
var í upphafi var liður í þeirri viðleitni.
Úrtölumenn allra þjóða
* Þótt það blasi við aðaflétting áratugagamalla hafta í viðskiptum
milli Evrópu og Bandaríkj-
anna sé forsenda hagvaxtar
í Evrópu verða úrtöluradd-
irnar alltaf háværar.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Rithöfundurinn Eiríkur Örn
Norðdahl kom með örlitla játn-
ingu á Facebook-síðu sinni á
fimmtudag þegar hann skrifaði:
„Ég verð svo mið-
ur mín af minni-
máttarkennd af að
bíða þess að til-
kynnt verði um
nýjan nóbels-
verðlaunahafa að mér gengur ekk-
ert að vinna sjálfum. Í dag hefur
mér tekist að færa eina málsgrein
úr þátíð í nútíð. Jú og minnka á
henni letrið. Hún er núna tíu
punkta. Það fær enginn nóbels-
verðlaun fyrir tíu punkta máls-
greinar. Ekki einu
sinni þótt þær séu
í nútíð.“
Jólabókavertíðin
er framundan en
matargúrúið
Nanna Rögnvaldardóttir hjá
Forlaginu deilir því á Facebook
hvernig er á starfsstöðvum þessa
dagana. „Nýjar bækur streyma
hingað úr prentun þessa dagana
svo ört að maður hefur ekki und-
an að fletta þeim og skoða. En
hér á ritstjórninni erum við komin
á fullt í útgáfu ársins 2015. Það er
af sú tíð þegar handrit bóka sem
áttu að fara í jólabókaflóðið voru
upp til hópa enn ókomin um þetta
leyti árs – eða jafnvel óskrifuð.“
Og annar snillingur í eldhúsinu,
Sigurveig Káradóttir, tók til
sinna ráða í baráttunni við eig-
endur hunda sem þrífa ekki upp
skítinn eftir gæludýrin sín. Hún
birti mynd á Facebook þar sem
hún hafði krítað á stéttina hjá sér:
„Hreinsið upp eftir hundinn ykk-
ar.“ Og ekki nóg með það heldur
hafði hún fest undir stein plast-
poka sem eigendur hunda geta
nýtt sér ef þeir gleymdu sínum
pokum heima. „Sko! Nú ætti
þetta ekki að vefjast fyrir neinum.
Meira að segja kominn poki og
allt, þannig að engar afsakanir
lengur. Það er nefnilega ekkert
skemmtilegt að byrja vinnudaginn
á því að þrífa upp eftir sóða. Fuss-
um svei.“
AF NETINU
Fyrir fjórum árum gerði Magnús Ingva-son aðstoðarskólameistari FB sér lítiðfyrir og keppti í 28 mismunandi
íþróttagreinum í tilefni af fimmtugsafmæli
sínu. Afrekið var tekið upp og nú er kominn
út klukkustundar langur mynddiskur sem
heitir einfaldlega Íþrótta(f)árið.
Markmið Magnúsar var að keppa í öllum
greinum sem rúmast innan Íþróttasambands
Íslands á almanaksárinu 2010 – og það tókst.
Um er að ræða ólíkar greinar eins og knatt-
spyrnu, skylmingar, skautadans, skotíþróttir,
tennis og júdó, svo fátt eitt sé nefnt. Magnús
bjó aðeins að kunnáttu í fáum greinanna en
reyndi að æfa sig eftir föngum. Þannig fylgdi
Morgunblaðið honum á júdóæfingu, þar sem
Bjarni Friðriksson, bronsverðlaunahafi frá
Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984, kast-
aði honum upp um alla veggi.
Í samtali við Morgunblaðið undir lok verk-
efnisins sagði Magnús: „Ég var tvímælalaust
í mestri lífshættu í mótókrossi. Ég var á 450
kúbika hjóli á erfiðustu braut landsins í Þor-
lákshöfn. Mikið var búið að róta í brautinni
þegar kom að mér og sandurinn náði mér í
hné. Það var ekkert grín að festa hjólið með-
an aðrir keppendur brunuðu hjá. Ég svitnaði
mest í þessari grein.“
Margir komu að gerð myndarinnar en
Magnús tilgreinir sérstaklega Sigurð Hannes
Ásgeirsson og Bjarna Svan Friðsteinsson
sem myndatökumenn og svo Sigurð Hannes
sem framleiðanda og einnig sá hann að
mestu leyti um klippingu og eftirvinnslu.
Tvö hundruð diskar voru framleiddir og
verða þeir seldir „áhugasömu“ fólki. Verðið
er kr. 2.000 (heimsending innifalin) og tekið
er við pöntunum á netfangið min@fb.is.
Magnús Ingvason einbeittur í skautadansinum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimildarmynd
um íþrótta(f)árið
Í HEIMILDARMYNDINNI ÍÞRÓTTA(F)ÁRIÐ ER HERMT AF MIKLU ÍÞRÓTTAÆÐI
SEM RANN Á MAGNÚS INGVASON AÐSTOÐARSKÓLAMEISTARA FB.
Borðtennis lá alveg ágætlega fyrir Magnúsi.
Morgunblaðið/Kristinn
Vettvangur