Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Blaðsíða 18
Kristjana Skúladóttir með fákinn í Króatíu.
H
ópur íslenskra kvenna hjólaði um
Króatíu á dögunum og skemmti
sér konunglega. „Eyrún Björns-
dóttir rekur Hike&Bike, ferða-
þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í
göngu- og hjólaferðum og hún sá um þessa
frábæru ferð þar sem 20 konur fóru saman
til Króatíu til þess að njóta lífsins á sjó og
landi og um leið hreyfa sig og kanna nýjar
slóðir,“ segir Kristjana Skúladóttir í sam-
tali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
„Við skvísurnar gistum á bátnum Lindu
í tveggja manna káetum höfðum keypt fullt
fæði. Báturinn sigldi með okkur milli eyja
á Adríahafi og lagðist upp að bryggju í
smábæjum þar sem farið var í land til að
reyna við hinar ýmsu hjólaleiðir. Við vor-
um á hjólunum meginpart dagsins og farið
var um fjölbreytt landslag eyjanna, við
stungum okkur til sunds í tærum sjónum
og einnig var komið við á vín- og ólífuökr-
um á leið okkar,“ segir Kristjana.
„Hjólastígarnir voru bæði brattir og
grýttir og margir hverjir mjög krefjandi.
En inni á milli var hjólað á malbiki og
léttari leiðum,“ segir hún.
„Ferðin heppnaðist með ólíkindum vel,
saman voru komnar bráðhressar og
skemmtilegar konur og húmorinn var í fyr-
irrúmi. Það var mikið hlegið en þegar
brekkurnar voru sem brattastar og hæð
yfir sjávarmáli orðin yfir 900 metrar fór að
kárna gamanið hjá sumum. Gekk ein svo
langt að segjast algjörlega hafa misst lífs-
viljann og önnur bauð okkur í sína eigin
jarðarför! Allar lifðu ferðina þó af; það
voru náttúrlega algjörir snillingar þarna
með í för.“ Kristjana segir ferðina hafa
verið vel heppnaða í alla staði. „Hver og
ein gat ákveðið hve mikla áskorun hún
vildi hvern dag. Þetta var bara algjör
snilld og allar gátu leyst þau verkefni sem
þær vildu.“
HJÓLAFERÐ UM KRÓATÍU
Frábær
upplifun
KRISTJANA SKÚLADÓTTIR VAR Í
HÓPI KVENNA SEM HJÓLUÐU UM
KRÓATÍU OG VAR HIMINLIFANDI.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Hjólastígarnir voru bæði brattir og grýttir og margir hverjir mjög krefjandi. En inni á milli var hjólað á malbiki og léttari leiðum, segir Kristjana.
Ferðalög
og flakk
Ævintýri neðansjávar
*Ertu á leið til draumaeyjarinnar Laucala á Fiji? Þá er líklega nóg á kortinuog óhætt að benda á skemmtilega leið til að skoða sig um. Nýverið varbryddað upp á þeirri nýjung að túristar geta virt fyrir sér lífríkið neð-ansjávar úr tveggja manna, rafdrifnum og vistvænum kafbáti og þannig veltsér um með höfrungum og skoðað hvali í návígi. Hægt er að fara niður áallt að 120 metra dýpi í bátnum. Vert er að geta þess að lægsta verð fyrirdvöl á dag á Laucala-eyju, fyrir einn, er 220 þúsund krónur. Gisting og
matur eins og hver getur í sig látið innifalinn. En ekki bátsferðin eða annað
jafn skemmtilegt sem ku boðið upp á …
Í Franska hverfinu í New Orleans er slegið upp veislu á hverju ein-
asta kvöldi. Tónlist tekur að óma frá börunum og hljóðfæraleikarar
telja í á fjölförnum götuhornum. Mannlífið er skrautlegt, arkitekt-
úrinn fagur og ekki þarf mikið tilefni til að skrúðganga bresti á með
lúðrasveit í fararbroddi. Maturinn er engum öðrum líkur og eflaust
er handfylli af vúdú-galdri blandað út í Gumbo-súpuna. Hingað
hafa margir andans jöfrar sótt sér innblástur eins og Tennessee
Williams, William Faulkner og Truman Capote. Skemmtanalífið
vinnur bug á hvaða ritstíflu sem er og oft dugar líka að ganga niður
að Missisippi-fljótinu. Þeir sem vilja eilítið öðruvísi fjör ættu að
sigla út á fenjasvæðið og heilsa upp á hvasstennta krókódíla.
Kveðja Gerður Kristný skáld. Allra handa tónlist er mjög áberandi í New Orleans, segir Gerður Kristný. Krókódíll á fenjasvæðinu.
Handfylli af vúdú-galdri
Gerður Kristný í New Orleans.
PÓSTKORT F
RÁ NEW ORL
EANS