Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Blaðsíða 54
Í
þessari bók er safn uppá-
haldsmynda frá Íslandi,“ seg-
ir svissneski ljósmyndarinn
Marco Paoluzzo um nýjustu
bók sína, Iceland – My Zen
Garden and Other Stories. Þetta er
fjórða bók hans um Ísland, sú þriðja
með svarthvítum myndum; bók í
stóru broti, fagurlega hönnuð og
prentuð.
Paoluzzo kom fyrst til Íslands ár-
ið 1991 og hefur síðan snúið aftur á
nánast hverju ári; hann kemur
ásamt eiginkonu sinni með Nor-
rænu, á stórum trukki, á ólíkum
árstímum og þau aka um í nokkrar
vikur í hvert sinn, og hann tekur
ljósmyndir af náttúru og stöðum
sem vekja áhuga hans. Paoluzzo
vann lengi sem auglýsinga- og iðn-
aðarljósmyndari en síðan hann gaf
út fyrstu bókina um Ísland, fyrir
tveimur áratugum, hefur hann eink-
um sinnt persónulegri ferða-
ljósmyndun. Hann hefur meðal ann-
ars einnig sent frá sér bækur um
Færeyjar, Bandaríkin og Kína.
Af hverju valdi hann þessar ljós-
myndir í nýju bókina; annars vegar
formhreinar ljósmyndir af náttúru
þar sem svartir sandar, vatn, hraun
og ís eru áberandi, og hins vegar
fólk og mannvirki?
„Þegar maður setur saman bók á
alltaf eitthvert val sér stað,“ segir
ljósmyndarinn. „Ég vinn einn að
verkinu, vel myndirnar, hanna bók-
ina sjálfur og þegar opnurnar og
flæðið er komið í jafnvægi þá er ég
sáttur.“
Paoluzzo hefur eytt afar miklum
tíma hér á liðnum áratugum; má sjá
í bókinni hvar hann kýs helst að
dvelja?
„Í rauninni á ég nokkra uppá-
haldsstaði,“ segir hann og brosir.
„Það eru staðir þar sem allt er
svart! Svartir staðir. Ég dái Suður-
land milli Víkur og Dyrhólaeyjar,
eins Mælifellssand og svæðið kving-
um Landmannalaugar og Veiðivötn.
Þetta eru svartir staðir.“
– Hvers vegna laðastu svona að
svörtum stöðum?
„Ég á erfitt með að útskýra það.
Kannski vegna þess að þeir líta svo
vel út í svarthvítu.“ Hann hlær.
„Þeir eru dulúðugri en margir aðrir.
Þessir staðir tala sterkar til mín en
aðrir.“
Hleður batteríin á Íslandi
– Þú hefur bæði ljósmyndað í lit og
svarthvítu hér á landi, og gefið út
bækur með hvoru tveggja, en þetta
er svarthvítt úrval.
„Ég tók samtímis litmyndir og
svarthvítar hér til svona 2008 en
þegar stafræna öldin tók yfir að
fullu, kaus ég að láta litinn eiga sig.
Þá var enginn spenntur fyrir að
kaupa litmyndir af mér lengur, þá
ákvað ég að einbeita mér að því
sem ég kann best að meta – mér
finnst svarthvítt áhugaverðara.“
– Hvers vegna hefur þú snúið
hingað, aftur og aftur?
„Því er erfitt að svara,“ segir
hann hikandi. „Hér er ég ekki
heima hjá mér, en mér líður vel hér.
Heilt ár án Íslands er ekki gott fyr-
ir heilsu mína. Ég verð að koma til
að hlaða batteríin, það er ein ástæð-
an. Önnur er einfaldlega sú að hér
bíða mín alltaf nýjar myndir að taka
og ég er alltaf ánægður með þær.
Enn finnst mér ekki að ég sé bú-
inn að afgreiða Ísland.
Kannski er ég hættur að gera
bækur um landið. Ég býst ekki við
því að mér takist aftur að finna út-
gefanda sem er viljugur til að gefa
út nýja Íslandsbók í svarthvítu. En
ég kann að meta landið, ég er
ánægður með myndirnar og því sný
ég aftur. Mér líður vel hér, ég er
mikið úti við, sem ég næ ekki að
gera annars staðar, ég tek það ró-
lega, les bækur. Ég á mér annars
konar líf hér en annars staðar.“
– Þú ert samt mikið á ferðalög-
um.
„Ég hef ekki hætt að fara til ann-
arra landa.“
Gráðugir Íslendingar
– Hverjar eru mestu breytingarnar
sem þú hefur upplifað á Íslandi á
þessum tveimur áratugum?
„Því er fljótsvarað,“ segir hann.
„Nú kemur ein milljón ferðamanna
hingað! Það hefur breytt gríðar-
Land fyrir svarthvítan
ljósmyndara
„FERÐAMENN ERU VITASKULD GÓÐIR FYRIR ÍSLAND, ÞJÓÐIN ÞURFTI Á ÞEIM AÐ HALDA TIL AÐ KOMA SÉR ÚT ÚR KREPPUNNI. EN ÞIÐ GETIÐ VALIÐ,
ÞIÐ ÞURFIÐ EKKI AÐ EYÐILEGGJA ALLT BARA TIL ÞESS AÐ FÁ FERÐAMENN,“ SEGIR SVISSNESKI LJÓSMYNDARINN MARCO PAOLUZZO. HANN VAR AÐ
SENDA FRÁ SÉR FJÓRÐU BÓKINA UM ÍSAND OG HEFUR FERÐAST HÉR UM Í NOKKRAR VIKUR Á HVERJU ÁRI Í TVO ÁRATUGI.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
„Ég fer alltaf á sömu staðina að mynda. Líklega gæti ég gert heila bók með
myndum sem ég hef tekið við Dyrhólaey og Vík,“ segir Marco Paoluzzo.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bláa lónið, 2009. Kreppa við Herðubreið, 2006.
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.10. 2014
Menning