Frúin - 01.01.1963, Page 18

Frúin - 01.01.1963, Page 18
Auður Auðuns. Fædd á ísafirði 1911, dóttir hjónanna Jóns Auðuns Jónssonar bankaútibússtjóra og síðar alþingismanns, og konu hans Margrétar Guðrúnar Jónsdóttur. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1929. Lauk embættisprófi í lögfræði við Háskóla íslands fyrst íslenzkra kvenna vorið 1935. Stundaði málflutningsstörf á ísafirði næsta ár á eftir, en hefur síðan 1940 starfað sem lögfræðingur mæðrastyrksnefndarinnar í Reykjavík. Er það starf í því fólgið að veita efnalitlum konum lögfræðilegar upplýsingar og aðstoð á sviði sifjaréttar. Borgarfulltrúi í Reykjavík síðan 1946. Forseti borgarstjórnar síð- an 1954, utan árið 1959—1960, er hún gegndi borgarstjórastarfi í Reykjavík. Hefur átt sæti í borgarráði síðan 1952 og starfað í ýms- um nefndum á vegum borgarstjórnar, þ. á m. fræðsluráði síðan 1946. Tók sæti á Alþingi 1947 og 1949, sem varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þingmaður Reykjavíkur síðan 1959. Hefur átt þátt í endurskoðun ýmissa laga og samningu lagafrum- varpa, aðallega á sviði félagsmála og sifjaréttar^ og starfað að fé- lagsmálum innan ýmissa kvennasamtaka. Húsmóðir í Reykjavík síðan 1936. Á 4 börn á aldrinum 8 til 23ja ára. 18 FRÚIN

x

Frúin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.