Frúin - 01.01.1963, Blaðsíða 49
GÆTIÐ VEL AB!
Verðlauna-
getraun
Tiu þúsund hránu
teppi
AXMINSTER A 1
Þessar tvær myndir eru eins — næst-
um því. í efri myndina vantar fimm
hluti, sem eru á þeirri neðri og þér
getið auðveldlega fundið þá, ef að
þér gætið vel að. Gerið hring með
blýanti eða penna utan um þá hluti
á neðri myndinni, sem vantar á þá
efri. Klippið myndina frá og sendið
hana ásamt heimilisfangi yðar og
nafni til afgreiðslu blaðsins, Grund-
arstíg 11, í opnu bréfi.
*
í þessu og næstu tveim tbl. munu
birtast getraunir, sem allir núver-
andi og nýir áskrifendur „Frúarinn-
ar“ á næstu 2 mánuðum geta tekið
þátt í. Lausnir verða að vera póst-
lagðar fyrir 1. apríl n. k. eða hafa
borizt afgreiðslu blaðsins á annan
hátt.
Verðmæti vinningsins er fyrsta
flokks teppi, eftir eigin vali, frá hinni
kunnu teppaverksmiðju Axminster
í Reykjavík. Blaðið óskar hinni
heppnu frú fyrirfram til hamingju
með vinninginn og gleðst yfir að enn
eitt heimili á fslandi verður prýtt
með A 1 teppi frá verksmiðjunni
Axminster.
-K
Hér er lausn á verðlaunagetraun
í 5. tbl.: ,,Sólskinsskap.“
Verðlaunin hlaut frú Aðalbjörg
Baldursdóttir Langholtsv. 26, Reykja-
vík.
FRÚIN
49