Stígandi - 01.01.1944, Page 17
STÍGANDI
Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum:
GAMALT SENDIBRÉF
Yfir heiðar fimm, yfir fjöllin sjö,
yfir fljót og ár
kom sendibréf sunnan að.
Með áritun skýra og innsigli traust,
það engrar náðar bað.
Því sýnd voru grið að gömlum sið
og gestrisni á hverjum stað.
Svo fór það um landið bæ írá bæ,
gekk frá bjartri hönd
í harða, moldbrúna mund.
Var stundum vafið í vaðmálsklút,
hjá vasafleyg undi um stund.
En smámeyjan bar það barminn við,
er brá hún sér inn að Grund.
Og margs konar sýnir seiddi í hug
þetta sendibréf
og vakti spurnir og spár.
Hver upphafsstafur var dreginn djarft,
en dult hið smágjörva pár.
Hvort voru þess blettir veðraspor,
eða voru það máske tár?
En forvitnin reyndi við rökkureld
að rýna í gegn
og frétta forlagadóm.
Og ágirndin lagði eyrun við,
ef ætti það gullsins hljóm.
En harðlæsta bréfið brenndi og stakk
hinn breyska fingurgóm.