Stígandi - 01.01.1944, Page 41
STÍGANDI
EINKENNILEG TILVILIUN - EÐA ÖRLÖG?
Stærsta bifreiðaverksmiðja Frakklands er kennd við Citroen. Hún stóð
ekki nema steinsnar frá fljótinu Rín í borginni Strassburg og tæpar 70 míl-
ur enskar frá landamærum Svisslands.
Skömmu áður en Þjóðverjar óðu yfir Frakkland, lét verksmiðjustjórnin
taka öll áhöld verksmiðjunnar og vélar stærri og minni og hlaða þeim á
800 stórar flutningabifreiðar, og hélt vagnalestin af stað yfir þvert Frakk-
land. Var förinni heitið til Bordeaux. Þegar vagnalestin náði til Bordeaux,
höfðu Þjóðverjar lagt allt Norður-Frakkland undir sig; þeir höfðu tekið
París, og bjóst verksmiðjustjórnin við, að Þjóðverjar myndu taka vagna-
lestina. Afréð hún því að reyna að koma lestinni til Sviss, en þegar sam-
komulag hafði náðst við svissnesku stjórnina, voru Þjóðverjar öllu ráðandi
á vegum Frakklands, og er lestin nálgaðist svissnesku landamærin, féll hún
í hendur Þjóðverja. Þeir sendu lestina beint til Strassburg, og þar endaði
fyrsti áfangi bifreiðanna, er þeim hafði verið ekið um 1000 mílur. Frá
Strassburg var lestinni ekið yfir landamærin og inn í Þýzkaland.
Þjóðverjar virðast ekki hafa vitað, hvað heppilegast væri að gera við
flutninginn, og afréðu að taka hann ekki af vögnunum að sinni. Um þessar
mundir var enn vinátta milli Þjóðverja og Rússa, þó töldu Rússar, að Þjóð-
verjar uppfylltu ekki samninga við þá um vélar, er Þjóðverjar óttu að láta
þá fá í stað hveitis og olíu, er þeir fengu frá Rússum. Þjóðverjar svöruðu
þessu nauði Rússa með þvi að fá þeim í hendur vélarnar og áhöldin úr
Citroén-verksmiðjunni frönsku, og hófst þá síðasti áfangi lestarinnar, en
hann endaði ekki fyrr en austur við Úralfjöll. Rússar hófust handa og tóku
af vögnunum og reistu verksmiðjuna og höfðu lokið því, er Þjóðverjar réð-
ust inn í Rússland. Og nú framleiðir þessi verksmiðja allar beztu flugvélar
Rússa, sem reynzt hafa Þjóðverjum hinar skæðustu á austurvígstöðvunum.
(Þýtt úr ensku af F. H. B.).