Stígandi - 01.01.1944, Síða 62

Stígandi - 01.01.1944, Síða 62
60 HURÐ SKELLIR NÆRRI HÆLUM STÍGANDI mýsnar. Allt í einu urðu drunur boo-boosanna hvellari, burðar- mennirnir ílýðu sem fætur toguðu niður stíginn, en þrifið var heljartaki í bak mér. 1 þetta skipti lék ég enga hugprýði, en rak upp skelfingaróp. Nær því í sömu andrá heyrði ég Martin kalla örvæntingarfullri röddu, að ég skyldi minnast skammbyssunnar í vasa mér. Svo skipaði hann blökkumönnunum reiðulega að sleppa sér. Ég sá, að hann hafði einnig verið gripinn. „Martin!" æpti ég. Villimaður einn hjó þyrnigrein í bak hon- um. Mér varð illt og hvarf hugur. Ég varð þess óljóst vör, að ég var dregin öfug í áttina til skógarins. Ég æpti aftur og aftur. Ég veit raunar ekki fremur, hvað gerðist næst, en maður, sem er troðin möru, veit, hvað fyrir hann ber. Það eina, sem ég veit, er, að villimennirnir urðu allt í einu hljóðir og störðu út á flóann. Boo-boosurnar þögðu, og Nagapate gekk í annað sinn inn í rjóðr- ið. Ég leit í sömu átt og hann starði yggldum sjónum og sá, hvað olli þögn þeirra. Brezkur varðbátur sigldi inn flóann. Martin sleit sig af þeim, sem héldu honum, og stóð andspænis Nagapate. „Herskip — herskip — herskip!" hrópaði hann ógnandi, og gaf í skyn með bendingum, að það kæmi okkar vegna. Nagapate yggldi sig á Martin og trúði honum ekki meir en svo. En Martin hvikaði hvergi, svo að Nagapate urraði önuglega skipun til manna sinna um að láta okkur laus. Því næst hvarf hann inn í skóginn. Með fegins snökti þaut ég af stað í áttina til stígsins, en Martin náði mér þegar og neyddi mig til að ganga hægum skrefum, unz við vorum komin í hvarf við skógarþykknið, þar sem Nagapate og menn hans héldu sig. Þá tókum við til fótanna niður brattan stíginn. Reyrgresið slóst um andlit okkur. Við duttum og stukkum á fætur oftar en ég gat talið. Sums staðar voru hengiflug á aðra liönd hundruð feta há yfir frumskóginum neðan undir, en við linntum aldrei á sprettinum. Bæði vissum við, án þess að við minntumst á það, að við yrðum þegar gripin, ef varðbáturinn sigldi strax úr flóanum. Eina lausnarvon okkar var, að við næð- um báti okkar, áður en fallbyssubáturinn færi. Okkur fannst við hafa hlaupið þannig klukkustundum saman, er við komum í rjóður eitt í hlíð þessari, og þá sáum við fall- byssubátinn snúa hægt við og sigla á burt! Nú kváðu drunur boo-boosanna við á nýjan leik. Nagapate og lýður hans uppi í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.