Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 26
Stórviðburður verður á Akureyri
þar sem Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands og Point Dansstúdíó sam-
eina krafta sína og setja upp hið
sígilda verk Hnotubrjótinn í Hofi.
Tónlistin er eftir Pjotr Tsjaj-
kovskí en Hnotubrjóturinn var
með hans síðustu verkum. Dans-
arnir eru samdir í sameiningu af
kennurum og nemendum skólans.
Hnotubrjóturinn
Sígild jólasaga
Listamaðurinn Ólafur Sveinsson
opnar málverkasýningu á veit-
ingahúsinu Friðriki V. á laugar-
daginn. Til sýnis verða leikfanga-
myndir Ólafs sem hann málar á
striga. Myndirnar eru að hans
sögn minningar um eitthvað sem
var, skírskotun í samtímann eða
myndir með pólitískan undirtón.
Ólafur hefur síðustu tólf ár málað
leikföng og sýnt myndirnar bæði
hér heima og erlendis. Þetta eru
þó ekki endilega málverk handa
börnum heldur líka fyrir „barnið
í hinum fullorðnu“. Sýningin
verður opnuð klukkan 15.00 á
laugardaginn og verður opin yfir
hátíðarnar og fram á næsta ár.
Sýning á veitingahúsi
Málar leikföng
Óður til dans og tónlistar er
nafnið á jólasýningu Dance center
Reykjavík sem haldin verður í
Gamla bíói. Nemendur hafa æft af
miklum móð fyrir sýninguna og
fá nú útrás fyrir sköpunarþörfina.
Aðalkennari skólans, Kameron
Bink úr hinum þekktu þáttum So
You Think You Can Dance verður
heiðursgestur á sýningunni en
hann hefur unnið með nemend-
um og kennurum skólans síðustu
misseri. Boðið verður upp á óvænt
skemmtiatriði og jólaandinn mun
svífa yfir vötnum. Sýningin hefst
klukkan 14.00 í Gamla bíói.
Óður til dans
Jóladans í
Gamla bíói
HELGIN
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR
Það verða majónes-jól í Silfurbergi, Hörpu, á sunnudaginn þegar Stórsveit Reykjavíkur ásamt Bogomil Font heldur sína árlegu jóla-
tónleika. Jólaplata Bogomils,
Majónes jól, sem kom út fyrir
nokkrum árum, verður spiluð
í heild sinni en stjórnandi er
Samúel J. Samúelsson.
„Þessi plata var nú upphaf-
lega svolítið prívat grín en það
er auðvitað frábært þegar fólk
hefur gaman af því sem þú ert að
gera,“ segir Sigtryggur Baldurs-
son – Bogomil Font. Majónes jól
eru óðum að komast í hóp hinna
„klassísku“ jólaplatna og hljóma
lög af henni reglulega í útvarpinu
yfir hátíðarnar.
Viljum njóta jólanna
„Þetta átti nú aldrei að verða ein-
hver vinsældaplata. Okkur fannst
þetta bara skemmtileg músík
og reyndum að nálgast þetta á
einlægan hátt. Þó að sumir text-
arnir virki svolítið kaldhæðnir
þá erum við einlægir í því að
skemmta okkur og njóta jólanna.“
Sigtryggur segir Majónes jólin
vera innblásin af kalypsó-músík.
„Galdurinn á bak við kalypsó
liggur í textagerðinni. Maður
þarf að geta gert grín að hlutum
en þykja vænt um þá í leiðinni.
Þannig eru Majónes jólin. Við
Samúel erum báðir miklir jóla-
drengir en svo eru ákveðnir
hlutir við jólin sem fara líka í
taugarnar á okkur – öll þessi
neyslugeðveiki og sölumennska
og við gerum grín að þessu en
þykir vænt um allt þetta stúss á
sama tíma.“
Tónleikarnir hefjast á sunnu-
daginn klukkan 17.00. Sigtrygg-
ur segir þetta enga risatónleika
heldur kærkomið tækifæri til að
tylla sér niður, hlusta á jólatónlist
og njóta augnabliksins.
„Þetta eru afslappaðir fjöl-
skyldutónleikar þar sem við
spilum lögin af plötunni. Bara
svona klukkutími. Þetta eru ekki
risajólatónleikar í Laugardals-
höll heldur hugsaðir sem léttir
síðdegissunnudagstónleikar fyrir
kvöldmatinn.“
ERU BÁÐIR JÓLADRENGIR
BOGOMIL FONT OG SAMÚEL
JÓN SAMÚELSSON Mennirnir
á bak við majónes-jólin.
Kvikmyndin Ófullgert verk fyrir
sjálfspilandi píanó, frá árinu 1977,
verður sýnd í Bæjarbíói á laugar-
daginn. Það er leikritið Platónov
eftir Anton Tsjekhov sem liggur til
grundvallar myndinni en viðfangs-
efnið er, eins og í mörgum verkum
Tsjekhovs, örvænting og tilgangs-
leysi í lífi rússneskrar millistéttar
um aldamótin 1900. Fjölskylda og
vinir Önnu Petrovnu koma saman á
sveitasetri ekkjunnar. Undir stofu-
leikjum og innantómu tali um rétt-
indi kvenna og getu bændastéttar-
innar vakna ástir þeirra Sofíu og
Misja á ný. En eru þau tilbúin að
hlaupast á brott frá fjölskyldu og
vinum til að láta gamla drauma
rætast?
Myndin vann til verðlauna á San
Sebastian-kvikmyndahátíðinni á
sínum tíma. Hún skartar stjörnum
á borð við Aleksander Kaljagin en
þetta er það hlutverk sem hann er
þekktastur fyrir. Rússnesk-amer-
íska leikkonan Jelena Solovey er
einnig þekktust fyrir þær myndir
sem hún lék í undir stjórn Nikita
Mikhalkov.
Sýningar Kvikmyndasafns
Íslands fara fram í Bæjarbíói í
Hafnarfirði á þriðjudagskvöldum
klukkan 20.00 og á laugardögum
klukkan 16.00. Þema vetrarins er
rússneskar kvikmyndir og er dag-
skráin um leið rannsókn á þeim
menningararfi sem MÍR eftirlét
safninu.
Tsjekhov á hvíta tjaldið í Bæjarbíói
Ófullgert verk fyrir píanó er hluti af rússneskum vetri Kvikmyndasafns Íslands.
ÚR MYNDINNI ÓFULLGERT VERK FYRIR PÍANÓ Ein frægasta mynd leikstjórans
Nikita Mikhalkov.
Það er majones heimur um jólin
þegar mjallhvítur hjúpurinn er
og landið frýs
eins og rjómaís
nánast alltaf í desember.
Það liggja fannhvítir
flókar um jólin
í fanginu á furunni hér
og konfektskál
innst í minni sál
svo dísætur draumurinn er.
Já, kúlan að framan vex og hún vex
eftir tuttugu og sex
súkkulaðikex
belgurinn góði hann blæs svolítið út
Það sést ekki lengur í stút.
Það er krúttlegt og kósý um jólin
og
kæustupörin á sveim
útí mjöllinni,
skautahöllinni
í vetrarklæddum majones heim.
Texti: Sigtryggur Baldursson
➜ Majones jól
Andleg uppbygging
Jón Gunnar Geirdal athafnamaður
Í kvöld fer ég á jólahlaðborð æskufélaganna, hins
svokallaða LokaGroup, í borg óttans. Morgundagurinn fer
í andlega uppbyggingu þar sem hitt gamalmennið, Ryan
Giggs, hressir mig vonandi við með sigri á Tottenham.
Snorri Ásmundsson
myndlistarmaður
Teiknar og dansar
Ég ætla að teikna og dansa.
Og svo ætla ég að kíkja í Týs-
gallerí til að skoða verk bróður
míns.
Gunnlaugur Bragi Björnsson
ráðgjafi
Jólahlaðborð og söngur
Það stendur mikið til. Helst má
nefna jólahlaðborð með vinnu-
félögunum og æfingar fyrir jóla-
tónleika Hinsegin kórsins sem
haldnir verða um næstu helgi.
Símon
Birgisson
simon@frettabladid.is
Galdurinn á bak við
kalypsó liggur í textagerð-
inni. Maður þarf að geta
gert grín að hlutum en
þykja vænt um þá í leiðinni.
Þannig eru Majónes jólin.
Sigtryggur Baldursson
Anna Lea Friðriks dótt ir
útgefandi
Myndlist og jólaljós
Ég ætla á opnun myndlistarsýn-
ingar í Anarkíu, horfa á tendrun
jólaljósa, á hinsegin bókavöku
og tónleika Mark Lanegan. Svo
eru tvö útgáfuhóf á dagskránni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bogomil Font og Samúel J. Samúelsson halda jólatónleika með Stórsveit Reykjavíkur í Hörpu á sunnu-
daginn. Platan Majónes jól verður spiluð í heild sinni en þar er gert létt grín að neyslugeðveikinni um jólin.