Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 42
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
Símon
Birgisson
simon@frettabladid.is
Suzanne Collins fékk hug-myndina að bókunum um Hungurleikana og baráttu Katnissar Everdeen fyrir lífi sínu þegar hún lá uppi í rúmi og flakkaði milli
stöðva í sjónvarpinu. Milli þess
sem fréttamyndir úr Íraksstríðinu
birtust á skjánum sá hún ungt fólk
keppa um milljónir dollara í raun-
veruleikaþáttum. Það var á þessu
augnabliki, þar sem stríð og sjón-
varp runnu saman í eitt á skjánum,
sem hugmyndin að Hungurleikun-
um kviknaði.
Fyrsta bókin í þríleiknum kom út
árið 2008. Bækurnar urðu á endan-
um þrjár og hafa selst í milljónum
eintaka og njóta vinsælda hjá öllum
aldurshópum. Og kvikmyndirnar
hafa slegið aðsóknarmet og virðist
framhaldið ætla að toppa þá fyrri.
Kúgaður minnihluti
Hungurleikarnir eru dæmi um
dystópíu: framtíðarsýn þar sem
dregin er upp mynd af verra
samfélagi en við búum við í dag.
Dystópían er andstæða útópíunnar
– draumsins um hið fullkomna sam-
félag. Í Hungurleikunum er þjóðinni
skipt í tvennt. Hinn ríki minnihluti
býr í höfuðborginni Kapitól við alls-
nægtir. Þar snýst allt um yfirborðið,
litrík föt, skemmtun og mat. Þau eru
svo rík að þau þurfa ekki lengur á
peningum að halda. Og drekka kok-
teila sem fá þau til að æla til að þau
geti haldið áfram að borða.
Hinn fátæki minnihluti býr í lok-
uðum umdæmum, tólf talsins, þar
sem fólk vinnur í verksmiðjum
og lifir við stanslausan ótta. Það
er hinn andlitslausi múgur. Hinn
skelfilegi almenningur. Föt þeirra
sem honum tilheyra eru ofin úr ull,
þeir nota jurtir til að gera að sárum
eftir ofbeldisverk stormsveita for-
setans og þá dreymir um byltingu.
Óvæntur sigur Katnissar og unn-
usta hennar, Peeta Mellark, sem
greint er frá í fyrstu bókinni hefur
einmitt gefið sauðsvörtum almúg-
anum von. Og það er vonin sem
einræðisherrann Snow vill útrýma
framar öllu.
Hann fylgist með hverri hreyf-
ingu fátæklinganna í beinni útsend-
ingu. Þetta er fólk sem býr í eftir-
litsríki, Stóri bróðir (hugtak sem
rakið er til einnar frægustu dyst-
ópíu allra tíma, 1984) fylgist með
hverri hreyfingu þeirra. Til að
friða lýðinn hefur einræðisherrann
Snow sótt sér innblástur til Róma-
veldis. „Panem et circenses“. Til
að halda múgnum ánægðum þarf
að höfða til yfirborðslegra hvata
fólks. Það sem lýðurinn þarf á að
halda er brauð og leikar. Og í Hung-
urleikunum þurfa tveir fulltrúar
hvers umdæmis – börn að aldri –
að berjast til síðasta manns.
Ólst upp við stríð
Faðir Suzanne Collins barðist
sjálfur í stríði. Hann var hermað-
ur í Víetnam. Í viðtali við Guard-
ian fyrir nokkrum árum lýsti Suz-
anne áhrifum þess þegar myndir
úr stríðinu birtust í sjónvarpinu.
„Móðir mín reyndi eins og hún gat
að vernda okkur en stundum sá ég
fréttir í sjónvarpinu og myndir frá
átakasvæðum og ég heyrði orðið
Víetnam og varð hrædd því ég vissi
að pabbi var þar.“
Eftir stríðið lifði fjölskylda
Suzanne Collins á faraldsfæti eftir
því hvar faðir hennar þurfti að
mæta í þjónustu. Á þessum tíma
heillaðist Suzanne af Rómaveldi og
grískri goðafræði. Hungurleikarnir
sækja að hluta til innblástur sinn í
söguna um Þeseif og Mínótárinn en
sú saga segir frá Mínosi, konungi
Krítar, sem herjar á íbúa Aþenu.
Til að friða hinn herskáa konung
bjóðast íbúar Aþenu að senda sjö
ungar stúlkur og sjö unga drengi á
níu ára fresti til Krítar til þess að
eins að verða étin af Mínótárnum –
ógnvænlegu skrímsli sem býr í völ-
undarhúsi á eynni.
Í sögunni af Þeseifi og Mínót-
árnum er það prinsinn Þeseifur
frá Aþenu sem drepur skrímslið
með hjálp Aríadne, prinsessunn-
ar á Krít. Kannski er Aríadne fyr-
irmynd Katnissar Everdeen. Að
minnsta kosti á sú staðreynd að Suz-
anne Collins velur stúlku í hlutverk
hetjunnar í Hungurleikunum einna
stærstan þátt í velgengni bókanna.
Katniss Everdeen er ný tegund af
hetju sem heillar bæði kvenkyns
og karlkyns lesendur. Þrátt fyrir
óhuggulegan bakgrunn, leika þar
sem börn drepa börn, er það þroska-
saga stúlkunnar Katnissar – löngun
hennar til að elska og vera elskuð
og hvernig hún breytir veikleikum
sínum í styrk – sem gerir sögurnar
jafn vinsælar og raun ber vitni.
Börnin berjast fyrir lífi sínu
Dystópía þýðir á grísku „vondur staður“. Hinar geysivinsælu bækur um Hungurleikana lýsa dystópískri framtíðarsýn þar sem
fólk lifir í stanslausum ótta og fátækt. Höfundurinn sækir sér innblástur í grískar goðsögur, Rómaveldi og Stephen King.
➜ Suzanne Collins fékk hug-
myndina að bókunum þegar
hún lá uppi í rúmi og horfði
á stríðið í Írak og raunveru-
leikaþætti í sjónvarpinu.
SNOW FORSETI Hinn illi einræðisherra í Hungurleikjunum. MYND/MURRAY CLOSE
BYLTING Í AÐSIGI Í seinni myndinni um Hungurleikanna sem nú er í kvikmyndahúsum er bylting í aðsigi. MYND/MURRAY CLOSE
➜ A Brave New World (Veröld ný og góð) eftir Aldous Huxley.
Útgefin 1939.
Ein þekktasta framtíðarsaga allra tíma. Nýtt samfélag er risið upp úr rústum
annars heim. Ríkið er kallað Alheimsríkið. Trúarbrögð og sagnfræði eru
bönnuð, líkt og barneignir. Í stað þess að fólk eignist börn eru þau ræktuð
í sérstökum líftækniverksmiðjum. Þau eru klónuð. Þegnar samfélagsins eru
heilaþvegnir og lágstéttirnar ræktaðar til að vera heimskari en hástéttirnar
svo almúginn uni sér betur í vinnu í kolanámum og dreymi ekki um betra
hlutskipti.
MYRK FRAMTÍÐARSÝN NOKKUR DÆMI UM ÞEKKTAR DYSTÓPÍUR
➜ 1984 eftir George Orwell. Útgefin 1949.
1984 gerist í heimi þar sem endalaust stríð geisar. Flokkurinn stjórnar
heiminum og stjórnandi flokksins er Stóri bróðir. Aðalpersóna bókarinnar er
Winston Smith sem vinnur í „Sannleiksmálaráðuneytinu“. Andóf hans hefst
er hann kaupir sér dagbók og tekur til við að skrifa niður hugsanir sínar. Að
skrifa dagbók er refsivert athæfi. Tungumálið er tæki til að gera árás á kerfið
og því er tungumálið óvinur. Mörg hugtök sem notuð eru til að lýsa eftirlits-
samfélagi og kúgun má rekja til bókarinnar. „Stríð er friður; frelsi er áþján;
fáfræði er styrkur.“
➜ Gúlag-eyjaklasinn eftir
Alexander Solzhenitsyn. Útgefin
1973 (skrifuð 1958 -1968)
Sovétríkin voru byggð á hugmyndinni
um útópíu. Hið fullkomna fram-
tíðarríki þar sem jafnræði ríkti meðal
þegna og engan þyrfti að skorta mat
eða menntun. En í raun má segja
að hrun kommúnismans hafi átt
sinn þátt í að skapa hina dystópísku
bókmenntahefð. Draumurinn um
útópíu breyttist í martröð þar sem
skoðanakúgun og eftirlitssamfélagið
lifði góðu lífi. Gúlag-eyjaklasinn er
byggður á eigin reynslu Solzhenitsyns
úr hinum myrku afkimum fyrir-
myndarríkis Sovétmanna. Með bók-
unum afhjúpaði hann samfélag sem
hneppti milljónir í þrældóm. Þegar
hann tók við Nóbelsverðlaununum
sagði hann: „Eitt orð mælt sannleik-
anum samkvæmt vegur þyngra en
allur heimurinn.“
➜ The Long Walk (Gangan langa) eftir Stephen King. Útgefin 1979
Gangan langa er fyrsta bókin sem Stephen King skrifaði í fullri lengd.
Hún hefur oft verið nefnd ásamt Battle Royale sem hugsanlegur inn-
blástur Suzanne Collins. Í bókinni skipuleggur „Borgarstjórinn“ Gönguna
löngu til að halda þegnum ríkisins ánægðum. Þátttakendur í göngunni
eru 100 unglingsdrengir sem þurfa að halda um fimm kílómetra hraða á
göngunni, annars eru þeir skotnir. Göngunni er sjónvarpað til allra þegna
ríkisins. Einn af öðrum láta drengirnir lífið. Til að mynda fremur einn
þeirra sjálfsmorð með því að rífa úr sér barkakýlið á göngunni. Annar
reynir að halda fimm kílómetra hraða með því að toga sig áfram á hönd-
unum eftir að fætur hans hafa breyst í blóðuga stubba. Sigurvegarinn í
göngunni á að fá allar óskir sínar uppfylltar– þó það komi fram að margir
af fyrri sigurvegurum hafi fyrirfarið sér eða látist skömmu eftir keppnina
vegna álags og streitu.
➜ Battle Royale (Batoru Rowaiaru) eftir Koushun Takami.
Útgefin 1999.
Höfundurinn lauk við bókina árið
1996 en hún fékkst ekki útgefin
fyrr en þremur árum seinna þar
sem söguefni hennar var
talið of hrottalegt. Bókin gerist í
dystópískri framtíð þar sem hópur
af menntaskólanemum vaknar á
eyju og komast nemarnir að því að
þeir eru hluti af sérstöku rann-
sóknarverkefni hersins. Verkefnið
gengur út á það að bæla niður
allar hugmyndir almennings um
andóf með því að lama fólk af ótta.
Það er gert með sérstökum leik
þar sem 42 menntaskólanemar
eru látnir berjast til síðasta manns á eyjunni. Bókin, og síðar bíómyndin,
vakti gríðarlega athygli fyrir ofbeldi. Nemarnir eru með hálsbönd sem
springa ef þeir reyna að flýja eyjuna. Battle Royale eru Hungurleikarnir í
sinni strípuðustu mynd. Hér er engin ástarsaga eða væmni, aðeins börn
að berjast fyrir lífi sínu.
MÖGULEGUR INNBLÁSTUR SUZANNE COLLINS
BLÓÐUG BARÁTTA Battle Royale fékkst
í upphafi ekki útgefin og bíómynd in var
víða bönnuð út af miklu ofbeldi.