Fréttablaðið - 30.11.2013, Qupperneq 52
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 52
Nordisk Built eru samtök hönnuða og framkvæmdaaðila í byggingariðnaði. Þau stóðu á árinu að sam-
keppni sem kostuð var af Norrænu ráðherranefndinni og Nordic Innovation. Keppnin á að hvetja til
nýsköpunar og þróunar á sjálfbærum, framkvæmanlegum og aðlögunarhæfum hugmyndum um endur-
hönnun algengustu tegunda bygginga á Norðurlöndum í anda Nordic Built-sáttmálans. Verkefnið fólst í að
breyta einni byggingu á hverju Norðurlandanna og umhverfi hennar á sem vistvænastan hátt. Höfðabakki
9 varð fyrir valinu á Íslandi.
Nordic Built-sáttmálinn innheldur tíu boðorð og þeir sem tóku þátt í samkeppninni þurftu að fylgja
þeim. Meðal boðorðanna er að byggingin nýti sem best staðbundnar aðstæður og aðlagist þeim, ásamt
því að vera viðhaldslítil og bjóða upp á fjölbreytta notkun í umhverfi sem hefur náttúruleg gæði.
Vistvæn bygging og umhverfi getur kostað meira í upphafi en sökum minna viðhalds og annars
rekstrarlegs sparnaðar er það hagrænt vistvænt.
NORDISK BUILTbrjóta upp langar línur hennar
og skapa samhengi við stóru bygg-
inguna,“ útskýrir hún og bætir
við: „Almenningssvæði innan- og
utandyra og tengsl við gróður hafa
jákvæð áhrif á vinnuumhverfi og
vellíðan notendanna.“
Gróðurreitir og þakgarðar
Bílastæði eiga að verða undir
hluta af planinu sem nú er og einn-
ig verður bílastæðum komið fyrir
inni í brekkunni á bak við lágu
bygginguna. „Lóðin vinnur með
okkur að þessu leyti,“ segir Anna
Sigríður. „En það er möguleiki að
leggja bílum ofanjarðar fyrir stutt-
ar heimsóknir. Það er ekki verið að
banna bíla,“ tekur hún fram.
Ný vinkilbygging er teiknuð á
lóðina. Hún myndar skjól bæði
fyrir vindi og umferðarhljóði.
Góðar almenningssamgöngur
eru á Höfðabakka 9 og gert er ráð
fyrir hjólaskýlum á nokkrum stöð-
um. Anna Sigríður nefnir að ætla
megi að á svona stórum vinnustað
sé auðvelt að reka litla bílaleigu,
slíkt þekkist erlendis. „Þá kemur
fólk í strætó eða á hjóli en getur
alltaf nálgast bíl á staðnum til að
fara sínar sendiferðir eða á fundi,“
útskýrir hún.
Græn belti umhverfis bygging-
arnar eru þegar komin að hluta
til en VA arkitektar vilja hafa lóð-
ina þannig að hún nýtist meira til
útivistar. Meira að segja er gert
þar ráð fyrir matjurtarækt. „Það
verða gróðurhús, runnar, tré og
þakgarðar. Því meira grænt, því
minni koltvísýringur í andrúms-
loftinu,“ bendir Anna Sigríður á.
„Við ætlum að nota affallsvatn
af götunni til vökvunar gróðurs.
Einnig verða litlar tjarnir á fjöl-
nota torgi framan við aðalbygg-
inguna sem kemur til með að
verða samkomustaður svæðisins
og mætti jafnvel nýta það sem
markaðstorg um helgar.“
Utan á bogabyggingunni er gert
ráð fyrir skermi úr trefjagleri,
festum er á steypta
bita sem eru fyrir á
byggingunni. Það er
gert í margþættum til-
gangi, að sögn Önnu
Sigríðar. „Trefjagler-
ið brýtur sólarljósið
þannig að sterkir geislar þess ná
ekki inn og glampa á skjái, heldur
verður hægt að nota dagsbirtuna
og spara rafljósin. Einnig getum
við verið með opna glugga í nán-
ast hvaða veðri sem er og notað
okkar hreina loft til loftræstingar
sem er mikill plús. Trefjaglerið er
vind- og hávaðahemjandi en samt
ekki lokað, heldur eru alls staðar
göt á því, eins og neti í mismun-
andi grófleika. Með skerminum
er dregið verulega úr viðhalds-
þörf hússins. Partur af því að gera
húsið vistvænt er að auðvelt sé að
taka nýja byggingarhluta niður í
einingum ef með þarf og líka að
hægt sé að fara á bak við skerm-
inn til að þrífa gluggana.“
Allir græða
Höfðabakki 9 er á útsýnisstað
en skermurinn virkar eins og
þunnt tjald. Því verða opin svæði
í byggingunni sem hægt verður að
njóta útsýnis úr og hitta fólk, að
sögn Önnu Sigríðar. Tjörn safnar
rigningarvatninu af þakinu. Það
verður leitt inn í bygginguna og
vökvaðir með því gróðurvegg-
ir sem ná niður allar hæðir. Allt
miðar að því að gera húsið og
umhverfi þess að náttúrulegri vin
í því harða borgarumhverfi sem
umlykur það.
Þótt atvinnurýmið sé fyrst og
fremst hugsað sem skrifstofu-
húsnæði segir Anna Sigríður
það geta hýst mismunandi starf-
semi sem vissulega breytist og
þróist. Það eigi að vera skapandi
umhverfi sem gefi möguleika á
einbeitingu en ýti um leið undir
virk samskipti. Í tillögunni segir
hún reiknað með að þjónustan á
svæðinu sé á þann veg að starfs-
fólk þurfi ekki að leita út fyrir það
á vinnutíma. Þannig sé dregið úr
akstri og umferð.
„Hér erum við með áberandi
byggingu á áberandi stað sem
getur orðið ímynd fyrir umhverf-
isvænt fyrirkomulag. Það er ekki
bara fyrir sérvitringa, heldur nokk-
uð sem allir geta notið. Þegar við
förum að hugsa og vinna þannig
áttum við okkur á því að það er bara
jákvætt og gefandi,“ segir Anna
Sigríður og bætir við að lokum:
„Allir hagnast á vistvænum hugs-
unarhætti, rekstraraðilar, vinnandi
fólk og ekki síst framtíðin.“
ÁSÝNDIN Stóra húsið verður klætt með götóttu trefjagleri sem einangrar og hlífir og brýtur niður skæra sólargeisla sem annars glampa á tölvuskjái. Bak við skerminn verður hægt að hafa opna glugga.
AÐALBYGGINGIN Svona lítur bogabyggingin út núna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIHÖFÐABAKKI 9 Heildaruppdráttur að allri lóðinni eins og VA arkitektar sjá hana.
ÞAKGARÐUR Hér verður gott að njóta útivistar.