Fréttablaðið - 30.11.2013, Side 56
www.umslag.is
LITRÓF
umhverfisvottuð prentsmiðja
Sími 563 6000 · Vatnagörðum 14 · 104 Reykjavík · www.litrof.is
Framkvæmdastjóri: Jónas Þ. Þórisson
Margt smátt, 4. tbl. 25. árg. 2O13
Ábyrgðarmaður: Bjarni Gíslason
Prentvinnsla:
Umbrot: PIPAR\TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Sérhver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu,
ekki með ólund eða með nauðung, því að Guð elskar
glaðan gjafara.
Þessi vers úr síðara Korintubréfi 9:7 koma mér í hug
þegar ég hugsa til jólasöfnunar Hjálparstarfs kirkjunnar.
Hjálparstarfið hefur í gegnum árin einmitt treyst á
gjafmildi og hlýtt hjarta Íslendinga. Manneskja með
hlýtt hjarta gefur eins og hún getur með glöðu geði.
Þetta tengist einnig því að setja sig í spor annarra,
taka til sín neyð annarra og finna löngun til að leggja
lið öðrum til hagsbóta. Gleðin og samkenndin á sér
heimili á sama stað, nefnilega í hjarta mannsins.
Ef þar er engin samkennd verður gleðin einnig minni.
Í þessu blaði getur þú lesið um fjölbreytt verkefni
Hjálparstarfsins, heima og að heiman. Faglegt starf
sem er unnið með sjálfbærni að leiðarljósi. Slagorðið
„hjálp til sjálfshjálpar“ er í fullu gildi. Unnið er með
fólki af virðingu og á jafnréttisgrundvelli. Tölur frá
Sameinuðu þjóðunum staðfesta góðan árangur í að
bæta aðgengi að hreinu vatni á heimsvísu en þegar
svæði og lönd eru skoðuð kemur í ljós að mörg lönd
Afríku liggja langt á eftir og þar hafa 345 milljónir
manna ekki aðgang að hreinu vatni. Jólasöfnunin er til
styrktar vatnsverkefnum í Eþíópíu, Úganda og Malaví.
Í þessum löndum er mikið verk óunnið, víða langt að
fara að sækja vatn, erfiði og óhreint vatn lama
starfsþrek og lífsþrótt. Veðurfarsbreytingar færast í
aukana, rigningar koma seint eða snemma eða ekki.
Lestu í blaðinu um hvernig brunnur með hreinu vatni
gerir kraftaverk, bætir heilsu og möguleika á fjöl-
breyttari fæðu. Fræðslu er miðlað til íbúa um hreinlæti
og smitleiðir sjúkdóma. Nýjar þurrkþolnari frætegundir
og geita- og hænsnarækt eru kynntar til sögunnar og
bæta lífsafkomu til muna.
Vonandi hefur þú ásett þér í hjarta þínu að taka þátt í
jólasöfnun Hjálparstarfsins. Það getur þú gert með því
að greiða valgreiðslu í heimabankanum þínum, hringja
í söfnunarsíma eða leggja inn á söfnunarreikning,
nánari upplýsingar eru í
þessu blaði. Gefum með
gleði, Guð elskar glaðan
gjafara!
Jónas Þórir Þórisson,
framkvæmdastjóri
Hjálparstarfsins
Fermingarbörn stóðu sig vel eins og endranær í 15.
fermingarbarnasöfnunni fyrir vatnsverkefni Hjálpar-
starfs kirkjunnar sem fór fram 4.–12. september.
Endanleg tala liggur ekki fyrir en nú þegar er talan
komin í 7,3 milljónir króna sem er frábært.
Eftir að hafa fengið fræðslu um vatnsskort í Afríku og
hvernig verkefni Hjálparstarfsins bæta aðstæður
bönkuðu fermingarbörn um allt land upp á hjá
landsmönnum með merkta bauka Hjálparstarfsins.
Hjálparstarf kirkjunnar þakkar fermingarbörnum fyrir
dugnað og elju og öllum sem þátt tóku í söfnuninni.
Framlagið mun nýtast til að bæta lífsafkomu á verk-
efnasvæði í Eþíópíu, Úganda og Malaví.
Gefum með gleði Fermingarbörn standa sig vel
2 – Margt smátt ...
Börn við brunn í Malaví.