Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 56

Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 56
www.umslag.is LITRÓF umhverfisvottuð prentsmiðja Sími 563 6000 · Vatnagörðum 14 · 104 Reykjavík · www.litrof.is Framkvæmdastjóri: Jónas Þ. Þórisson Margt smátt, 4. tbl. 25. árg. 2O13 Ábyrgðarmaður: Bjarni Gíslason Prentvinnsla: Umbrot: PIPAR\TBWA Prentun: Ísafoldarprentsmiðja Sérhver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu, ekki með ólund eða með nauðung, því að Guð elskar glaðan gjafara. Þessi vers úr síðara Korintubréfi 9:7 koma mér í hug þegar ég hugsa til jólasöfnunar Hjálparstarfs kirkjunnar. Hjálparstarfið hefur í gegnum árin einmitt treyst á gjafmildi og hlýtt hjarta Íslendinga. Manneskja með hlýtt hjarta gefur eins og hún getur með glöðu geði. Þetta tengist einnig því að setja sig í spor annarra, taka til sín neyð annarra og finna löngun til að leggja lið öðrum til hagsbóta. Gleðin og samkenndin á sér heimili á sama stað, nefnilega í hjarta mannsins. Ef þar er engin samkennd verður gleðin einnig minni. Í þessu blaði getur þú lesið um fjölbreytt verkefni Hjálparstarfsins, heima og að heiman. Faglegt starf sem er unnið með sjálfbærni að leiðarljósi. Slagorðið „hjálp til sjálfshjálpar“ er í fullu gildi. Unnið er með fólki af virðingu og á jafnréttisgrundvelli. Tölur frá Sameinuðu þjóðunum staðfesta góðan árangur í að bæta aðgengi að hreinu vatni á heimsvísu en þegar svæði og lönd eru skoðuð kemur í ljós að mörg lönd Afríku liggja langt á eftir og þar hafa 345 milljónir manna ekki aðgang að hreinu vatni. Jólasöfnunin er til styrktar vatnsverkefnum í Eþíópíu, Úganda og Malaví. Í þessum löndum er mikið verk óunnið, víða langt að fara að sækja vatn, erfiði og óhreint vatn lama starfsþrek og lífsþrótt. Veðurfarsbreytingar færast í aukana, rigningar koma seint eða snemma eða ekki. Lestu í blaðinu um hvernig brunnur með hreinu vatni gerir kraftaverk, bætir heilsu og möguleika á fjöl- breyttari fæðu. Fræðslu er miðlað til íbúa um hreinlæti og smitleiðir sjúkdóma. Nýjar þurrkþolnari frætegundir og geita- og hænsnarækt eru kynntar til sögunnar og bæta lífsafkomu til muna. Vonandi hefur þú ásett þér í hjarta þínu að taka þátt í jólasöfnun Hjálparstarfsins. Það getur þú gert með því að greiða valgreiðslu í heimabankanum þínum, hringja í söfnunarsíma eða leggja inn á söfnunarreikning, nánari upplýsingar eru í þessu blaði. Gefum með gleði, Guð elskar glaðan gjafara! Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins Fermingarbörn stóðu sig vel eins og endranær í 15. fermingarbarnasöfnunni fyrir vatnsverkefni Hjálpar- starfs kirkjunnar sem fór fram 4.–12. september. Endanleg tala liggur ekki fyrir en nú þegar er talan komin í 7,3 milljónir króna sem er frábært. Eftir að hafa fengið fræðslu um vatnsskort í Afríku og hvernig verkefni Hjálparstarfsins bæta aðstæður bönkuðu fermingarbörn um allt land upp á hjá landsmönnum með merkta bauka Hjálparstarfsins. Hjálparstarf kirkjunnar þakkar fermingarbörnum fyrir dugnað og elju og öllum sem þátt tóku í söfnuninni. Framlagið mun nýtast til að bæta lífsafkomu á verk- efnasvæði í Eþíópíu, Úganda og Malaví. Gefum með gleði Fermingarbörn standa sig vel 2 – Margt smátt ... Börn við brunn í Malaví.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.