Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 65
Ordabok.is er orðabókavefur sem hefur að geyma mjög stórar ensk-íslenskar og íslensk-enskar
orðabækur. Þær eru ein besta heimild
sem til er yfir orðaforða nútímans þegar
kemur að pörun þessara tveggja tungu-
mála,“ segir Matthías Magnússon, rit-
stjóri Orðabókar.is.
„Þetta eru ekki orðabækur sem bjóða
upp á orðaforða sem var í notkun upp
úr miðri síðustu öld heldur hefur verið
lögð áhersla á að safna þeim orðum
sem mest eru notuð í dag og síðustu
tvo til þrjá áratugi, enda er þarna um að
ræða tímabil þar sem gífurlegar þjóð-
félags-, fjármála-, efnahags- og tækni-
breytingar hafa orðið. Orðabækurnar á
ordabok.is endurspegla þessar breyt-
ingar hvað orðaforða varðar, en hafa
auðvitað líka að geyma allan grunnorða-
forða Íslendinga,“ útskýrir Matthías.
Orðabækurnar á ordabok.is eru um
110.000 uppflettiorð hvor fyrir sig.
„Þær henta mjög vel fyrir skólafólk,
ekki síst á síðustu metrunum fyrir próf,
því þær flýta margfalt fyrir uppflettingum
og bjóða auk þess upp á glósumögu-
leika sem gefur færi á að safna saman
þeim orðum sem þörf er á að læra.
Þannig stuðla þær að auknum slagkrafti
í frammistöðu á prófum,“ segir Matthías
um orðabækurnar sem henta einnig vel
fyrir fyrirtæki, þýðendur og alla sem vilja
fletta upp orðum með lítilli fyrirhöfn.
Nefna má að flest stærstu fyrirtæki á
Íslandi eru með ordabok.is í sinni þjón-
ustu, svo og fjölmargar ríkisstofnanir.
Aðspurður um þýðingatól eins
og Google Translate á netinu svarar
Matthías:
„Við uppflettingar og þýðingar er
mikilvægt að hafa við höndina nokkur
uppsláttartæki, því ekkert eitt rit eða
tæki getur svarað öllum spurningum.
Um leið þarf að átta sig á gæðum hvers
um sig. Venjulegar orðabækur, í bók eða
í tölvutæku formi, eru oftast gerðar og
yfirfarnar af manneskjum. En þýðingar-
tól eins og Google Translate safnar
gögnum á vélrænan hátt og þarf að
taka niðurstöðum þess með fyrirvara.
Á þetta einkum við um hin nýrri orð í
tungumálunum.“
Matthías nefnir dæmi um leit að
„hálspillu“ á Google Translate.
„Þá kemur þýðingin „neck pill“ og
„stjórnlaganefnd“ er þýtt sem „Board
Legal Committee“. Hjá ordabok.is eru
þýðingarnar aftur á móti „lozenge,
pastille“ og fleira og „constitutional
commission“, sem eru hin réttu hugtök
í þessu sambandi.“
Hægt er að fara inn á ordabok.is til
að kynna sér hvaða áskriftarmöguleikar
eru í boði.
„Flestum kemur þægilega á óvart
hversu hagstætt verðið er, enda eru
áskrifendur margir og þá þarf hver
áskrift ekki að kosta mikið,“ segir
Matthías.
Sjá nánar á www.ordabok.is
Í TAKT VIÐ TÍMANN
ORDABOK.IS KYNNIR Ordabok.is hefur að geyma ný orð og nútímaleg. Hún
er ein besta heimild yfir orðaforða nútímans og inniheldur allan grunnorða-
forða Íslendinga. Ordabok.is eykur slagkraft í frammistöðu á prófum.
Á ENGAN SINN LÍKA
Matthías Magnússon
er ritstjóri ordabok.is.
Hann segir orðabæk-
urnar henta námsfólki
vel á síðustu metrunum
fyrir próf því þær flýti
margfalt fyrir uppflett-
ingum og bjóði upp á
þægilegan glósumögu-
leika.
MYND/VALLI
UPPLESTUR OG GRÝLUGLEÐI
Góðir gestir verða í Skriðuklaustri um helgina. Í dag lesa
Jón Kalman, Vigdís Gríms, Andri Snær, Bjarki Bjarna og
Sigríður Þorgríms upp úr bókum sínum. Á morgun er
árviss Grýlugleði með jólakökuhlaðborði á eftir.
www.skriduklaustur.is
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur
NÁM Á HÁSKÓLASTIGI • UNIVERSITY LEVEL
Nánari upplýsingar á www.cesarritz.is
og á skrifstofu skólans í síma 594 4000
WWW.MK.IS
Spennandi námsmöguleiki fyrir nemendur
sem lokið hafa stúdentsprófi
og/eða iðnnámi í matvælagreinum.
Nemendur útskrifast með alþjóðlegt
skírteini í hótelstjórnun og geta í
framhaldi lokið BA námi í Sviss.
Námið fer fram á ensku.
An exciting new option for those who
hold a university entrance certificate or
a vocational certificate in the hospitality
industry. Students graduate with a
certificate in Hotel and Restaurant
Operations and may continue their studies
towards a BA degree at César Ritz Colleges
in Switzerland.
HÓTEL
STJÓRNUN
HOTEL MANAGEMENT
for further information
visit www.cesarritz.is
or phone the office at
594 4000
Viltu starfa á alþjóða vettvangi?
Do you want to work abroad?
INNRITUN STENDUR YFIR! ENROL NOW!INNRITUN FYRIR VORÖNN STENDUR YFIR / ENROLLMENT FOR SPRING SEMESTER IS NOW
AFNÝ SENDING
!JÓLAFÖTUM
NÚTSALA HAFI
Á ÚLPUM
Skipholti 29b • S. 551 0770
Opið Laugardaga 12-15