Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 71
KIRKJUR
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 Kynningarblað
Með leyfi Páls er hér birt-ur hluti ávarpsins en það má lesa í heild sinni á vef
þjóðkirkjunnar, www.kirkjan.is
„Það er mér sérstök ánægja að
standa hér í dag í þessari glæsilegu
kirkju fyrir framan ykkur. Tilefn-
ið er líka einstaklega ánægjulegt.
Biskup Íslands, frú Agnes M. Sig-
urðardóttir, greindi frá því í apríl
síðastliðnum að ákveðið hefði verið
að safna fyrir línuhraðli á Land-
spítalanum, en hún tók þá ákvörð-
un að hvetja söfn-
uði landsins til að
safna fyrir þessu
tæki í samráði við
f yrrverandi for-
stjóra. Línuhraðall
er grundvallartæki
v ið geisla með-
ferð á öllum teg-
undum af krabba-
meini, algjörlega
nauðsynlegt við
nútíma lækning-
ar, en líka ákaflega
dýrt tæki og kostar
hundruð milljóna
króna. Landspít-
alinn einn og sér á
sínum ríkisfjárlög-
um hefur ekki bol-
magn til að fjár-
magna svona tæki
að fullu og þarf
að reiða sig á gjaf-
mildi og hlýhug
borgaranna um
margar nýjung-
ar og þetta er með dýrustu tækja-
kaupum sem ráðist hefur verið í. Því
var það ómetanlegt að biskup skyldi
taka þessa ákvörðun og frábært og
í raun ótrúlegt að verða vitni að því
síðan hvernig kirkjur landsins og
söfnuðir hafa tekið sig saman og
efnt til söfnunar, samskota og átaks
til að leggja málefninu lið.“ […
„Landspítali snýst um almanna-
heill og er lykilhlekkur í heilbrigðis-
kerfinu og þar með í því samfélagi
sem við viljum eiga. En af því að
hann er stór og af því að það kostar
mikla peninga að reka hann og af
því að það er flókið að byggja hann
upp, þá er eins og stjórnvöld veigri
sér stundum við verkinu. Þegar á
stangast vel afmarkaðir sérhags-
munir annars vegar og almanna-
heill hins vegar þá kennir reynsl-
an okkur að almannaheillin víkur
oftar, því miður. Sá niðurskurð-
ur sem þjóðarsjúkrahúsið hefur
þurft að þola undanfarinn ára-
tug er með ólíkindum og okkur
sem þjóðfélagi til skammar. Spítal-
inn hefur sparað ríkinu 41,7 millj-
arða króna með niðurskurði und-
anfarin 6 ár og er nú kominn að
fótum fram – er það það sem við,
fólkið í þessu landi, vildum? Þrátt
fyrir tiltekin áform í aðdraganda
kosninga þá tala verkin og það er
ljóst að stefnumörkun stjórnvalda
í raun undanfarinn áratug hefur
orðið sú að veikja þjóðarsjúkra-
húsið og draga úr þjónustu þess. Ég
vona svo sannarlega að botninum
sé náð og komið sé að því að veita
Landspítalanum þá viðspyrnu og
það fé sem hann þarf til að rækja
sitt hlutverk af sóma, með stoltu og
vel höldnu starfsfólki, sem sinnir
hinum sjúku í nútíma byggingum
með nútíma tæki.
Þess vegna, í
þessu ljósi, er ein-
staklega ánægju-
leg t að sk y nja
þann velvilja og
skilning sem söfn-
uðir landsins sýna
hlutverki Land-
s pít a l a n s s e m
þjóðarsjúkrahúss
sem vinnur að al-
mannaheill.
Ég hef lengi haft
m i k i n n á hug a
á haming junni
í öl lum sínum
myndum. Þar er
ég eflaust ekki frá-
brugðinn öðrum
hér inni, en ég hef
í starfi mínu sem
geðlæknir reynt
að nálgast ham-
ingjuna með gler-
augum vísinda-
og fræðimanns-
ins. Þannig hélt ég,
m.a. í nokkrum kirkjum landsins,
töluvert af fyrirlestrum um áhrifa-
þætti hamingjunnar í lífi fólks
mánuðina eftir hrunið mikla haust-
ið 2008, í von um að geta hjálpað
fólki að setja áföllin í samhengi.
Mér hefur alltaf þótt það sérlega
áhugavert að skoða hvað það er sem
einkennir hamingjusamt fólk, fólk
sem er „sátt við Guð og menn“ eins
og sagt er. Það er tvennt sem er sér-
staklega áberandi í fari þeirra sem
hamingjusamastir eru: Annað er
trúin. Sterk og heit trú og ríkt trúar-
líf einkennir mjög þá sem sáttast-
ir eru. Fyrir því eru vafalaust ýmsar
ástæður; trúin boðar fagnaðarer-
indið og gefur fólki leið til að sjá líf
sitt og hlutverk í samhengi. Trúin er
líka tæki til að hjálpa fólki að fyrir-
gefa og sætta sig við hluti sem maður
fær ekki breytt en það að geta fyrir-
gefið er eitt öflugasta tækið til að
komast yfir erfiða hluti, sérstaklega
ef maður hefur verið beittur órétti
eins og kemur fyrir alla einhvern
tímann. Sú auðmýkt sem trúin
boðar er ábyggilega líka stór þáttur í
því að ná sátt – við sjálfan sig, en líka
við aðra. Síðast en ekki síst þá er það
samfélag hinna trúuðu. Fólk sem er
virkt í safnaðarstarfi hittir aðra og
það er svo sannarlega svo að maður
er manns gaman, það er vel þekkt
að fólk sem á í miklum samskiptum
við aðra er hamingjusamara en þeir
sem einmana eru. Þannig er trúin
ákaflega mikilvæg og áberandi hjá
þeim sem hamingjusamir eru. Hitt
atriðið sem einkennir þá hamingju-
sömu getur verið óháð trú, en það
er að taka þátt í óeigingjörnu sam-
félagsstarfi sem leiðir gott af sér. Það
er hamingjuaukandi.
Þá kem ég að kjarna málsins –
það frábæra átak sem biskup boðaði
á vordögum og sem söfnuðir lands-
ins hafa rækt áfram með óeigin-
gjörnu söfnunarstarfi er dæmi um
gefandi samfélagsstarf. Þetta frá-
bæra átak verður ekki aðeins til
góðs fyrir Landspítalann og þar
með almannaheill heldur vona ég
að það verði líka hamingjuaukandi
fyrir allt það góða fólk sem að söfn-
uninni hefur staðið og sem við
stöndum í þakkarskuld við.“
Sterk og heit
trú og ríkt
trúarlíf einkennir mjög
þá sem sáttastir eru.
Páll Matthíasson
Ríkt trúarlíf einkennir hamingjusama
Biskup Íslands hvatti til söfnunar innan þjóðkirkjunnar um síðustu áramót til að styrkja kaup á línuhraðli fyrir Landspítalann. Sú
söfnun hefur staðið yfir í kirkjum landsins síðan og lauk á sunnudag. Af því tilefni flutti Páll Matthíasson, forstjóri spítalans,
áhrifamikið ávarp. Þar þakkaði hann biskupi og söfnuðum landsins fyrir. Hann sagði sömuleiðis frá hamingjurannsóknum sem hafa
verið honum hugleiknar en niðurstöður þeirra gefa til kynna að ríkt trúarlíf einkenni þá sem hamingjusamastir eru
MYND/GVA