Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 89
KYNNING − AUGLÝSING Kirkjur30. NÓVEMBER 2013 LAUGARDAGUR 3
Guðþjónusta er stefnumót Guðs og manns. Í kirkjunni er því ekki bara Guð heldur líka menn og því má ekki gleyma. Það er
okkar stefna og við erum stöðugt vakandi fyrir
því,“ segir Gunnar Gunnarsson, organisti Frí-
kirkjunnar í Reykjavík. Gunnar segir nútíma-
lega kirkju þurfa að vera í takt við tíðarandann.
„Fríkirkjan leggur áherslu á víðsýni og um-
burðarlyndi og tónlistin þarf að endurspegla
viðhorf kirkjunnar. Um árabil hefur stefna Frí-
kirkjunnar verið að opna kirkjuna fyrir ólíkum
straumum, andlegum og tónlistarlegum og því
gengur ekki að tónlistin sé íhaldssöm eða loki
augum fyrir nýrri straumum og stefnum.“
Gunnar hefur á undanförnum árum útsett
sálma fyrir litlar djasshljómsveitir og fengið
kirkjukórum nýtt hlutverk við óhefðbundinn
kirkjusöng.
„Í Fríkirkjunni er stórt orgel sem smíðað var
1926 og er með elstu orgelum landsins. Orgel-
ið er síðrómantískt, fagurt og hljómar ekki eins
og neitt annað. Við höfum verið óhrædd við
að gefa þessu gamla hljóðfæri kost á að hljóma
með öðrum, óhefðbundnum hljóðfærum, eins
og rafmagnsgítar og saxófón, og á gamlárs-
kvöld ætlum við að búa til fallega stemningu
með djassmunnhörpuleikara í kringum þetta
stórkostlega orgel. Við höldum því í hefðirn-
ar en látum þetta springa út á nýjan hátt,“ segir
Gunnar.
Í Fríkirkjunni er einnig fimmtíu ára gamalt
Hammond-orgel, f lygill og Rhodes-píanó sem
gefur fjölbreyti leikanum byr undir báða vængi.
„Með breyttum tíðaranda og breyttu helgi-
haldi kirkna hefur starf organistans breyst. Í
sumum kirkjum er farið að kalla þá tónlistar-
stjóra vegna þess að starf þeirra hefur útvíkk-
ast mikið. Organistinn útsetur messurnar með
nýju sniði og allt frá því séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson kom til starfa sem prestur hefur hann
opnað Fríkirkjuna fyrir alls konar tónlist, enda
á kirkjan að vera opin og lifandi.“
Annað sunnudagskvöld í mánuði eru haldn-
ar sérstakar djassmessur í Fríkirkjunni.
„Kvöldmessur með djasshljómsveit er hug-
mynd sem hefur fylgt mér um árabil og er
skemmtileg viðbót við starf organistans að út-
setja gamla og nýja sálma fyrir f leiri hljóðfæri.
Jazzhátíð Reykjavíkur hefur nýtt sér Fríkirkj-
una undir tónleikahald og hafa djasstónlistar-
menn sagt að í kirkjunni sé einstakur hljómur
fyrir djasstónlist,“ segir Gunnar.
Í Fríkirkjunni starfar lítill og einstakur
kirkjukór.
„Kórinn samanstendur af ungu fólki sem
er allt tónlistarmenntað og sumir eru sjálf-
stætt starfandi tónlistarmenn. Hann stendur
með mér vaktina og setur ferskan blæ á nýjar
sálmaútsetningar sem ég hef gert fyrir nán-
ast hvern sunnudag síðan ég byrjaði hér,“ segir
Gunnar.
Í Fríkirkjunni er ekki sunginn hefðbundinn
messusöngur eða messutón.
„Okkur þykir hann oft skrýtinn og hamlandi
og kirkjan þarf ekki á slíku að halda. Hún á að
vera nútímaleg og síung.“
Stefnumót Guðs og manns
Fríkirkjan í Reykjavík er síung og nútímaleg þótt hún standi á gömlum merg. Söfnuðurinn var stofnaður 1899 og kirkjan byggð
1902. Í Fríkirkjunni er síðrómantískt orgel frá árinu 1926 sem í höndum organistans Gunnars Gunnarssonar fær að hljóma í
nýjum sálmaútfærslum, djassi, rokki og poppi.
Séra
Hjörtur Magni
Jóhannsson
og Gunnar
Gunnarsson
organisti við
síðrómantískt
og ein-
stakt orgel
Fríkirkjunnar í
Reykjavík. Þess
má geta að líf-
legur barnakór
er starfandi
við Fríkirkjuna
undir stjórn
Álfheiðar
Björgvins-
dóttur á
fimmtudögum
og starf
KFUM- og K
er í kirkjunni á
mánudögum.
MYND/GVA
Á fyrri hluta síðustu aldar tilheyrði hátt í helm-
ingur Reykvíkinga Fríkirkjunni við Tjörnina. Þús-
undir voru síðan teknar af skrá Fríkirkjunnar og
skráðar inn í þjóðkirkjuna án vitundar eða sam-
þykkis fólksins. Það var lítil reglugerð hins opin-
bera sem olli þessum straumhvörfum án þess að
fólk tæki eftir.
Þegar fríkirkjufólk færði lögheimili sitt var það
sjálfkrafa skráð í þjóðkirkjuna og þangað runnu
síðan trúfélagsgjöldin.
Athugið með trúfélagaskráningu ykkar! Frí-
kirkjan vill stuðla að trúverðugri og lýðræðislegri
umgjörð trúmála og lífsskoðana í landinu.
■ 62. gr. Stjórnarskrárinnar um hina evangelísk-
lútersku kirkju fjallar um Fríkirkjuna í Reykjavík!
■ Fríkirkjan er frjást, lúterskt trúfélag og var á
sínum tíma samofin sjálfstæðisbaráttu lands-
manna.
■ Fríkirkjan hefur leitast við að hafa víðsýni, um-
burðarlyndi og frjálslyndi að leiðarljósi.
■ Fríkirkjan metur mannréttindi ofar trúarlegum
kreddum.
■ Geymið þessa síðu!
Fríkirkjan í Reykjavík er á Fríkirkjuvegi 5.
Sjá nánar á www.frikirkjan.is og á Facebook.
Netfang: frikirkjan@frikirkjan.is
Fríkirkjan í Reykjavík í örum vexti
■ 1. desember kl. 14. Guðþjónusta á fyrsta sunnudegi í aðventu.
■ 1. desember kl. 20. Tónleikar með Mark Lanegan.
■ 2. desember kl. 20. Tónleikar Kórs Kvennaskólans í Reykja-
vík.
■ 4. desember kl. 20. Hádegistónleikar, Ljáðu okkur eyra.
■ 8. desember kl. 14. Aðventutónleikar Suzuki.
■ 8. desember kl. 20. Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tón-
listarkvöld. Ræðumenn kvöldsins verða rithöfundurinn Jón-
ína Leósdóttir og séra Hjörtur Magni. Söngvarar: Bjarni
Arason, Svavar Knútur, Kristjana Stefánsdóttir, Ragnheið-
ur Gröndal, Sönghópur Fríkirkjunnar og Barnakór Fríkirkj-
unnar undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Tónlist er f lutt
af Gunnari Gunnarssyni, Tómasi R. Einarssyni og Matthíasi
Hemstock.
■ 15. desember kl. 14. Guðþjónusta á þriðja sunnudegi í að-
ventu.
■ 15. desember kl. 20. Tónleikar, Reykjavík 5.
■ 16. desember kl. 20.30. Tónleikar, Ester Jökulsdóttir syngur
lög Mahaliu Jackson.
■ 18. desember kl. 20. Útgáfutónleikar Sigríðar Thorlacius.
■ 22. desember kl. 14. Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í
Reykjavík. Hefst með jólastund í kirkjunni, síðan er sungið
og dansað í kringum jólatré með jólasveini í safnaðarheim-
ilinu. Kaffi og meðlæti fyrir alla.
■ 22. desember kl. 17. Heilunarguðþjónusta á vegum Sálar-
rannsóknarfélags Íslands.
■ 22. desember kl. 20. Jólatónleikar Blásarakvintetts Reykja-
víkur.
■ 23. desember kl. 21. Jólatónleikar Árstíða.
■ 24. desember kl. 18. Aftansöngur á aðfangadagskvöldi. Söng-
hópur Fríkirkjunnar syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng
undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Séra Hjörtur Magni
þjónar.
■ 24. desember kl. 23. Miðnætursamvera á jólanótt. Páll Óskar
og Monika Abendroth ásamt strengjasveit. Sr. Hjörtur Magni
talar til viðstaddra. Sönghópur Fríkirkjunnar ásamt Gunnari
Gunnarssyni. Mætið tímanlega til að fá góð sæti!
■ 25. desember kl. 14. Hátíðarguðþjónusta á jóladag. Ljósanna
hátíð fagnað með rísandi sól. Egill Ólafsson syngur og spjall-
ar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur Magni. Sönghópur Frí-
kirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni.
■ 31. desember kl. 14. Hátíðarguðþjónusta á dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund.
■ 31. desember kl. 17. Aftansöngur á gamlárskvöldi. Sérstakur
gestur Þorleifur Gaukur Davíðsson munnhörpuleikari.
Dagskrá á jólum og aðventu