Fréttablaðið - 30.11.2013, Side 118
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 78
Bragi Halldórsson
72
SVAR: 7 sinnum.
„Jæja, strákar,“ sagði Kata kotroskin. „Ég var að lesa nokkuð ansi skemmtilegt í
bók.“ Konráð horfði á hana spyrjandi. Kata snéri upp á sig. „Heldur þú að ég lesi
aldrei?“ sagði hún reið. “ Að ég sé bara alltaf í fótbolta?“ „Nei, nei,“ sagði Konráð.
„Ég er bara forvitinn um hvað þú last.“ „Jæja,“ sagði Kata og var orðin rólegri.
„Vitið þið hversu oft er hægt að brjóta saman blað í miðju?“ Róbert klóraði sér í
hausnum. „Hvað meinar þú?“ sagði hann. „Jú,“ sagði Kata. „Brjóta það saman einu
sinni, svo aftur og aftur, þangað til að það er ekki hægt að brjóta það saman
oftar.“ Konráð hugsaði sig um. „Það hlýtur að fara eftir því hvað blaðið er stórt,“
sagði hann. „Nei,“ sagði Kata. „Það er nefnilega það skrítna við það, það er alveg
sama hvað blaðið er stórt, það er bara hægt að brjóta hvaða blað sem er visst
Prófað þú að brjóta saman blað og vittu hve oft þú getur brotið það saman.
Hvenær komið þið jólasvein-
arnir til byggða? Við, Hurða-
skellir og Stúfur, komum alltaf
í nóvember til að pakka því inn
sem við setjum í skóna og til að
kaupa kartöflur í skóinn handa
þeim börnum sem eru óþekk.
Magnús Ólafsson leikari og Þor-
geir Ástvaldsson útvarpsmaður
taka alltaf á móti okkur og við
gistum hjá þeim.
Rífist þið bræðurnir stund-
um? Já, við erum stundum
orðnir svo óþolinmóðir þegar
jólin nálgast og rífumst um það
hverjir eiga að fara fyrstir til
byggða, en Grýla og Leppalúði,
foreldrar okkar, ráða þessu og
segja okkur að hætta að rífast.
Hvað hefurðu gefið margar
kartöflur í skóinn í gegnum
tíðina? Við erum nú orðnir svo
gamlir, ég og Stúfur, eða um
700 ára, að við erum búnir að
setja í það heila einn fjörutíu
feta gám af kartöflum í skó
landsmanna. Börnin eru nú
alltaf að verða betri og betri svo
þetta fer minnkandi, sem betur
fer.
Hvert er uppáhaldsjólalagið
þitt? Það er lagið sem hann
Stúfur samdi og heitir Í bæinn
við brunum, Stúfur og Hurða-
skellir og var á einni af jólaplöt-
unum okkar.
Hefurðu skellt hurð svo fast
að hún hefur brotnað? Já, einu
sinni skellti ég svo hressilega að
húsið hrundi!
Hvort er skemmtilegra að
hræða börn eða skemmta
þeim? Við látum Grýlu og
Leppalúða um að hræða börn-
in, en við gleðjum þau með
söng, gríni og gleði og Stúfur
spilar undir á harmóníkuna.
Hver er besti vinur þinn og af
hverju? Við Stúfur erum bestu
vinir, enda erum við bræður og
okkur þykir ofboðslega vænt
um öll íslensk börn.
Langar þig stundum til að
eignast systur? Já, við bræð-
urnir erum alltaf að biðja Grýlu
og Leppalúða um systur, en þau
eru bara orðin svo gömul og
komin úr barneign. Þau eru að
tala um að ættleiða eina systur
frá Kína.
Festist maturinn nokkurn tíma
í skegginu þínu? Já, eftir allar
jólakræsingarnar erum við að
borða úr skegginu á okkur fram
að næstu jólum!
Hver er jólagjöfin í ár? Ást og
umhyggja, og að hjálpa þeim
sem minna mega sín svo að allir
eigi gleðileg jól.
Rífumst um hverjir
fara fyrstir til byggða
Krakkasíðan náði tali af Hurðaskelli sem er staddur í bænum til að undirbúa
jólin ásamt Stúfi bróður sínum. Hurðaskellir segir þá bræður hafa gefi ð íslensk-
um börnum heilan fj örutíu feta gám af kartöfl um í skóinn í gegnum tíðina.
BRÆÐUR OG BESTU VINIR Hurðaskellir og Stúfur biðja foreldra sína oft um systur.
Brandarar
Þrír ánamaðkar komu upp úr moldinni eftir rigningu og einn sagði við
annan: „Þú ert svo sætur! Ég elska þig!“
Þá sagði sá þriðji: „Ertu eitthvað ruglaður? Þú ert að tala við afturend-
ann á þér!“
Einu sinni voru tvö bláber sem voru hjón. Karlinn sagði: „Mér er kalt.“
„Já, auðvitað,“ sagði konan þá. „Þú ert ber!“
Hver er munurinn á lauk og fiðlu?
Það grætur enginn þegar fiðlan er skorin.
Það er öruggt að á barnabóka-
deildinni á þínu bókasafni eru
bækur eftir rithöfund að nafni
Enid Blyton í röðum. Bækurnar
hennar heita spennandi nöfn-
um. Til dæmis Ævintýrabæk-
urnar, sem fjalla um fjögur börn
og páfagaukinn Kíki sem lenda
í spennandi svaðilförum. Og
Fimmbækurnar sem eru 21 tals-
ins og fjalla líka um fjögur börn
og hundinn þeirra sem rann-
saka dularfull mál. Svo má ekki
gleyma bókunum Leynifélagið sjö
saman og Ráðgátubókunum.
Sumir halda að Enid Blyton sé
karlmannsnafn en svo er ekki.
Enid Mary Blyton er kona sem
fæddist árið 1897 í Bretlandi og
var einn vinsælasti barnabóka-
rithöfundur 20. aldari. Bækurnar
hennar hafa selst í mörg hundruð
milljónum eintaka. Flestar hafa
verið þýddar á íslensku og notið
mikilla vinsælda hér á landi.
Mörgum finnst reyndar þau
viðhorf sem koma fram í bókum
Enid Blyton heldur gamaldags.
Vondu karlarnir eru oftast af
lægri stéttum eða útlendingar.
Og ósjaldan líta stúlkurnar til
drengjanna með aðdá-
unarglampa í augum.
Útgefendur hafa
stundum brey t t
textanum í bókum
hennar til að gera
hann nútímalegri.
Enid Blyton er
engu að síður
skyldulesning
fyrir alla fróð-
leiksfúsa krakka sem
dreymir um að lenda í
ævintýrum eða leysa ráð-
gátur– eða vilja bara njóta
þess að lesa spennandi bók
á dimmum vetrardegi.
Dularfullar ráðgátur og ævintýri
Enid Blyton er einn frægasti barnabókahöfundur allra tíma.
ENID BLYTON RITHÖFUNDUR Hefur
notið ótrúlegra vinsælda um allan heim.
SKEMMTILEG ÆVINTÝRI Hægt er
að nálgast bækur Enid Blyton á öllum
bókasöfnum.
GULLFALLEG OG
BRÁÐSKEMMTILEG SAGA!
Geisladiskur
með upplest
ri á
sögunni fylg
ir