Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 120
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 80
KROSSGÁTA
LÁRÉTT
1. Sá er hnýsist í pappíra afkomanda er ekki
flekklaus (11)
11. Hankavar hlífir sneplum tveim og hlustum (10)
12. Lagði ljósavélar hjá samtengdum ljósa-
vélum (11)
13. Liðsfjötrar beygja höfuðþræði (10)
14. Salamiskammturinn var nagaður af
Frankfúrtara (11)
15. Kemur þá vesæll vængurinn í hús (8)
16. Hylja ólgu og þyrilsnúða (9)
18. Þessi stjarna er algjör loftkroppur (11)
21. Sprautast úr þar til gerðum hálsum (9)
22. Kreistum Völu með grjóthörðum rándýrum
(11)
26. Sama á ný meðal bakskanka (10)
28. Einn blautan eftir sex í spili (11)
29. Segja Jóni og Jóni frá samheiti titlavísinda
(10)
30. Lin moltan er býsna góð með sig (9)
32. Gestrisni Huga má rekja til stórmennsku
(12)
35. Finnst rétt ég leiki kjána í fíflalátum (9)
36. Fóstra sveitalög við Knarrarsjó (10)
37. Einstaklingur og armar hans finna
bragarhátt Shakespeares (10)
38. Fljót fetsins vísar til frekjunnar (9)
39. Tæki þeirra sem lært hafa á tækin (11
LÓÐRÉTT
1. Styttist reisurnar enn enda þær sem
sendiferðir (15)
2. Borga öllum jafnt fyrir línu í launamálum
(15)
3. Ljós sem blóm af lauki bróður Eysteins (11)
4. Bar hinn þolni og leðurlíki (7)
5. Sérðu snáðana með sílin? (7)
6. Tveir plús tveir er jafnt og kúnst (10)
7. Valta yfir velunnara náttúrunnar (10)
8. Ljúga um allt er að lóðbrettum lýtur (10)
9. Tásudrif knýr bólstrasvif (8)
10. Stelum nótu frá músíkölskum (8)
17. Aftansöngur alifuglanna og leiðindaskarf-
anna (14)
19. Hef rúllað ríkidæmi, létt er það (7)
20. Fýlufjölskylda hefur það sem þarf til að
finna sjálfa sig (7)
22. Kæra dæmdan karl (8)
23. Slaka metani undir fjögur augu (11)
24. Fersk með klaka og tæmd drossía– þær eru
nýmæli á Fróni (11)
25. Píla sendingar sveif stuttan spöl (11)
27. Dópa frjálsa og ódópaða (10)
31. Andstyggileg, erfið og verulega íþyngjandi
(7)
33. Innreið stuðsöngva (6)
34. Skálda þráð (6)
VEGLEG VERÐLAUN
LAUSNARORÐ
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist mikilvægur öryggisbúnaður.
Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 4. desember næstkomandi á krossgata@frettabladid.is
merkt „30. nóvember“.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Mánastein eftir Sjón frá
Forlaginu. Vinningshafi síðustu
viku var Jón Guðmundsson
Reykjavík
Lausnarorð síðustu viku var
S N Y R T I M E N N S K A
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11
12
13
14
15
16 17
18 19 20
21
22 23 24 25
26 27
28
29
30 31
32 33 34
35
36
37
38
39
S E G L S K Ú T U R S P A N G Ó L A R
P R I T A Ö K R Ý E
Ö R E I G A M E N N I N G U A R G
R I U Á G G R A S S Í A N
V Í N A R S N I T S E L B T S V
A D G A Ý I L L V I R K J A
R A U Ð L I Ð I N N Ð E F R T
L E A E H B I T A B A R N
A F H Ý Ð A T E K L É
F E I H U N D I N G J A H Á T T
G E R A N D I Á Ð U Þ T
R T N T Í M A R A M M A R V
E I R L I T A I U O L J Á F A R
I U E Y Ð I M E L U M Ð X
D E K K A Ð I N D Á U I
D K T N N H V A T A M E N N
U T A N Y F I R S K Ó A T I Æ
A R N A R K Ö L L U M
F Ð G L Y S D O P P A Í A
Ú T B Í A Ð U T A R I T F Æ R
Árið 1972 voru Ólympíuleikarnir haldnir í München í Þýskalandi. Aðeins 27 ár
voru liðin frá lokum seinni heimsstyrjaldar og var Þjóðverjum mikið í mun að
leikarnir gæfu góða mynd af ástandinu í þýsku samfélagi. Af þeim sökum var
öryggisgæsla höfð í lágmarki, verðirnir í Ólympíuþorpinu voru óvopnaðir og
heimurinn átti að hafa þá mynd af Þýskalandi að þar væru allir öruggir.
Svo var þó ekki. Hinn 5. september brutu átta Palestínumenn sér leið inn í
Ólympíuþorpið. Þetta voru meðlimir hryðjuverkasamtakanna Svarta september,
klofningshreyfingar úr PLO. Þeir réðust á ísraelsku íþróttamennina sem sváfu
værum blundi í Ólympíuþorpinu. Tveir ísraelskir íþróttamenn voru drepnir og níu
teknir í gíslingu.
Gíslatakan vakti heimsathygli. Hryðjuverkamennirnir kröfðust þess að 234
palestínskum föngum í Ísrael yrði sleppt auk þess sem þeir vildu að RAF-með-
limunum Andreas Baader og Ulrike Meinhof yrði sleppt úr haldi í Þýskalandi.
Þetta var fyrir tíma bandarísku möntrunnar um að engir samningar séu gerðir við
hryðjuverkamenn. Þýsk stjórnvöld buðu þeim háar peningafjárhæðir til að leysa
gíslana úr haldi en það bar ekki árangur. Þá voru gerðar tilraunir til að lauma
þýskri sérsveit inn í Ólympíuþorpið en aðgerðir lögreglunnar voru allar í beinni
útsendingu og því vissu hryðjuverkamennirnir upp á hár hvað var að gerast.
Gíslatakan endaði með skelfingu. Þýsk yfirvöld urðu við þeirri beiðni að útvega
hryðjuverkamönnunum flugvél en á Fürstenfeldbruck-flugvellinum í útjaðri
München biðu leyniskyttur lögreglunnar. Lögreglan misreiknaði hins vegar fjölda
hryðjuverkamannanna sem veittu mikla mótspyrnu. Fimm hryðjuverkamenn
voru drepnir en þrír sluppu lifandi og voru teknir höndum. En allir gíslarnir létu
lífið í aðgerðunum sem töldust algerlega misheppnaðar.
Hryðjuverkamönnunum þremur var nokkru síðar sleppt úr haldi eftir að þýsk
farþegaflugvél var tekin í gíslingu og var fagnað sem hetjum í sínu heimalandi.
Gíslatakan á Ólympíuleikunum árið 1972 var áfall fyrir ísraelsku þjóðina
og heiminn allan, sem fylgdist með í beinni útsendingu. Tvær áhugaverðar
kvikmyndir hafa verið gerðar um þessa atburði og nálgast þær söguna frá ólíkum
hliðum. Önnur er heimildarmyndin One day in September sem hlaut Óskars-
verðlaun árið 1999. Hin er Munich eftir Steven Spielberg frá árinu 2005 sem lýsir
eftirleik gíslatökunnar og eltingarleik ísraelsku leyniþjónustunnar við þá sem
báru ábyrgð á henni. -SB
FRÓÐLEIKURINN Palestínskir hryðjuverkamenn tóku
hóp ísraelskra íþróttamanna í gíslingu og drápu þá alla.
Óhugguleg gíslataka