Fréttablaðið - 30.11.2013, Síða 122
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 82TÍMAMÓT
Leiðir hljómsveitarmeðlima lágu
saman árið 2006 þegar þeir voru ungir
strákar á myndlistarbraut í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. Ákafir og með
með stóra drauma ákváðu þeir að
stofna hljómsveitina Sudden Weather
Change. Í upphafi voru hljómsveitar-
meðlimir fimm talsins. Það voru þeir
Loji Höskuldsson, Magnús Dagur Sæv-
arsson, Oddur Guðmundsson, Benja-
mín Maark Stacey og Bergur Thomas
Anderson. „Við vorum byrjaðir að spila
áður en Bergur kom í bandið og við
vorum svo lélegir að ég meira að segja
grét eitt sinn eftir tónleika,“ segir Loji
Höskuldsson, söngvari og gítarleikari.
Hann segir að hljómsveitin hafi orðið
heil þegar Bergur Thomas Anderson
byrjaði í bandinu. Á sjö ára ferli hefur
hljómsveitin gefið út sex plötur en árið
2010 vann hún til verðlaunanna Bjart-
asta vonin á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum. „Í heilt ár á eftir tók ég upp efni
og gerði heimildarmynd sem fjallar um
það hvernig það er að vera Bjartasta
vonin. Myndin var kaldhæðnisleg og
sýnir hve eðlilegir við vorum þar sem
við vorum engar stórstjörnur,“ segir
Loji. Hann lýsir tónlist þeirra félaga
sem melódísku hávaðarokki þar sem
lögin fjalla ekki endilega um neitt sér-
stakt heldur séu blanda af sérvöldum
góðum orðum.
Band öfganna
Hljómsveitarmeðlimir hafa verið
þekktir fyrir líflega og kröftuga
sviðsframkomu og segir Loji að það
hafi alltaf verið tryllt stemning á tón-
leikum þeirra. Loji segir að tónlist-
arlífið hafi verið spennandi og eitt
sumarið pökkuðu þeir saman í rútu
ásamt FM Belfast og fleiri böndum
og fóru í tónleikaferðalag um landið.
„Allar sögusagnir sem maður hefur
heyrt um rokkbönd rættust þá. Einn
meðlimurinn í bandinu þurfti meira
að segja að hætta að drekka í hálft
ár því hann var nánast búinn að
eyðileggja í sér lifrina. Þetta var
brjálaður tími.“
Sudden Weather Change spilaði á
Airwaves í nokkur skipti og áfram
héldu liðsmenn í vonina að þeir
myndu verða uppgötvaðir erlendis.
„Við vonuðum að eitthvað kæmi upp í
hendurnar á okkur en við erum alveg
ömurlegir þegar kemur að svona
pappírsvinnu, þá erum alveg með tíu
þumalputta,“ segir Loji hlæjandi.
Árið 2011 voru þeir komnir á góðan
stað og hófu samstarf með ástralska
tónlistarmanninum Ben Frost. Þeir
voru þá allir í námi í Listaháskól-
anum. Mitt á milli þess að hrærast í
myndlist og lestri í listabókum tóku
þeir upp plötuna Varrior. Draumurinn
um útrás varð þó að veruleika fyrr en
varði þegar þeir kynntust umboðs-
manninum Megan. Hún útvegaði þeim
gigg í Bandaríkjunum og þeir ferðuð-
ust meðal annars til Los Angeles, San
Fransisco og New York. Þegar þeir
komu til baka var ævintýrið úti og
þeir ákváðu að hætta að spila saman.
„Það var orðið skrítið andrúmsloft
og við skildum í fýlu. Tíminn læknar
þó flest sár og því höfum við ákveð-
ið að spila í síðasta sinn í kvöld og
kveðja þannig vini, ættingja og alla
sem hafa stutt okkur í gegnum tíðina
og ljúka þessu sáttir með allt á góðu
nótunum.“
Tónleikarnir verða á Gamla
Gauk og verður húsið opnað kl. 22.
Aðgangseyrir er þúsund krónur.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, sonur og afi,
ÞORBJÖRN RÚNAR SIGURÐSSON
tannsmiður
Tungubakka 24, Reykjavík,
lést laugardaginn 23. nóvember. Útförin
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3.
desember kl. 13.00.
Kristrún Haraldsdóttir
Haraldur Þorbjörnsson Kristín Hrönn Þráinsdóttir
Daði Þorbjörnsson Eydís Salome Eiríksdóttir
Svanbjörg Sigurjónsdóttir Sigurður Jóhann Þorbjörnsson
Björk, Rúnar, Baldur, Brynjar og Arnaldur
Þökkum þeim sem sýndu okkur samúð og
styrktu góð málefni vegna andláts
ÖNNU RÖGNU LEIFSDÓTTUR
frá Þingeyri við Dýrafjörð,
síðast til heimilis að Gautlandi 15.
Þökkum sérstaklega starfsfólki í Múlabæ
fyrir góða umönnun svo og öðrum sem
aðstoðuðu hana heima fyrir og annars staðar.
Álfheiður Erla Sigurðardóttir Guðbrandur G. Björnsson
Sigurður F. Guðbrandsson Katja Dinse
Ásta G. Guðbrandsdóttir Gunnlaugur Vésteinsson
Ragna B. Guðbrandsdóttir Manuel Plasencia Gutierrez
og barnabarnabörn.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda
samúð og allan hlýhug við fráfall
elskulegrar systur minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Kristbjargar Bjarnadóttur
frá Víðistöðum,
Hvassaleiti 18 og Eir í Reykjavík,
sem lést hinn 18. október sl. Sérstakar þakkir til starfsfólks
á 2. hæð suður á Eir fyrir alla alúð og góða umönnun.
S. Kristín Bjarnadóttir
Bjarni Guðmundsson
Magnús Guðmundsson Helga Jónsdóttir
Guðmundur Ó. Bjarnason
Guðrún María Bjarnadóttir
Telma Kristín Bjarnadóttir
Jón Bjarni Magnússon Erla Sigríður Hallgrímsdóttir
Árni Magnússon Thelma Dögg Haraldsdóttir
Helga Júlíana Jónsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, tengdasonur og afi,
EINAR SIGURÐSSON
matreiðslumeistari,
Svöluási 1a, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 3. desember kl. 13.00.
Fanney Ottósdóttir
Halldóra Einarsdóttir Hólmar Egilsson
Einar Einarsson Björg Össurardóttir
Helgi Einarsson Helga Íris Ingólfsdóttir
Halldóra M. Sæmundsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
RICHARD HAUKUR
ÓLSEN FELIXSON
bifreiðarstjóri,
Hábergi 30,
andaðist 20. nóvember sl. á hjúkrunarheimilinu Eir. Útför fór
fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og
vinarhug. Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun fá heimahjúkrun
og hjúkrunarheimilið Eir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erna Petrea Þórarinsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR INGÓLFSSONAR
Háeyrarvöllum 34, Eyrarbakka.
Alúðarþakkir færum við þeim sem önnuðust
hann, veittu hjálparhönd og umhyggju í
veikindum hans.
Ingunn Hinriksdóttir Sævar Sigurðsson
Sigríður Guðlaug Björnsdóttir Jón Birgir Kristjánsson
Halldór Björnsson Hafdís Edda Sigfúsdóttir
og afabörnin.
MERKISATBURÐIR
1700 Sænskur 8.500 manna her
sigrar fjórum sinnum stærri her
Rússa í orrustunni við Narva.
1878 Þjóðsöngur Ástralíu, Ad-
vance Australia Fair, er fyrst
fluttur í Sydney.
1835 bandaríski rithöfundurinn
Mark Twain fæðist.
1886 Tvö skip frá Reykjavík
farast í ofsaveðri og þrettán
drukkna.
1916 Goðafoss strandar í hríð-
arveðri við Straumnes fyrir
norðan Aðalvík á Hornströnd-
um. Mannbjörg verður.
1939 Vetrarstríðið hefst með
því að Sovétríkin gera innrás í Finnland.
1960 Ungmennafélagið Stjarnan er stofnað í Garðabæ.
1995 Javier Solana er skipaður yfirmaður NATO.
2005 Skurðlæknar í Frakklandi græða nýtt andlit á manneskju í
fyrsta sinn í sögunni.
2007 Kárahnjúkavirkjun er gangsett við formlega athöfn.
Við ljúkum þessu
á góðu nótunum
Rokkhljómsveitin Sudden Weather Change heldur sína allra síðustu tónleika á Gamla
Gauknum í kvöld. Strákarnir hafa spilað saman síðan í FB árið 2006.
SUDDEN
WEATHER
CHANGE
Spileríið hófst
í Fjölbraut
í Breiðholti
fyrir sjö árum
og þeir eru
enn að.
Það var orðið skrítið andrúmsloft og við skildum í fýlu.
Tíminn læknar þó flest sár og því höfum við ákveðið
að spila í síðasta sinn í kvöld og kveðja þannig vini, ættingja
og alla sem hafa stutt okkur í gegnum tíðina.