Fréttablaðið - 30.11.2013, Qupperneq 130
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 90
Listakonan Ásdís Sif Gunnarsdótt-
ir mun á laugardagskvöld breyta
umhverfi Skaftfells og húsum í
kring á Seyðisfirði í listaverk.
Hún sýnir stóra myndbandsinn-
setningu utandyra en hún hefur
á síðustu vikum unnið að draum-
kenndum myndbandsverkum sem
hún hyggst varpa á snjóinn.
Reyndar kom smábabb í bátinn
þegar snjóa leysti óvænt í lok vik-
unnar.
„Já, það er enginn snjór,“ segir
Ásdís hlæjandi. „Svo þetta verð-
ur aðeins öðruvísi en ég planaði.
Maður verður bara að hugsa í
lausnum!“
Verk Ásdísar er byggt á ljóðum
sem hún hefur samið síðustu vikur
í Skaftfelli en þar geta listamenn
sótt um vinnustofur. „Þessi ljóð
byggjast í raun bara á mínum eigin
tilfinningum. Hvernig mér líður á
daginn eða hvernig birtan er. Ég
kann því vel að spinna af fingrum
fram,“ segir Ásdís.
Ásdís notast við skjávarpa og
varpar myndefni út um glugga í
Skaftfelli á umhverfið. Innsetn-
ingin, eða gjörningurinn, verður
svo send út beint á netinu.
„Þetta verður um kortérs
útsending og ég vona bara að það
verði þúsundir sem fylgjast með.
Það er mikil stemning hér á Seyð-
isfirði og ýmislegt að gerast þetta
kvöld, ljóðaupplestur og fleira.“
Ásdís hefur töluvert unnið með
kvikmyndamiðilinn í verkum
sínum. Hún hefur unnið fjölda
stórra innsetninga og framið
gjörninga auk þess að flytja ljóð
og sýna ljósmyndir.
Vídeó-gjörningur Ásdísar nefn-
ist „Varanleg“ og hefst klukkan 17
á Seyðisfirði og verður sendur út á
„livestream“ klukkan 18.
simon@frettabladid.is
Snjórinn gufaði upp
Listakonan Ásdís Sif fl ytur vídeó-gjörning í beinni
útsendingu á netinu.
ÁSDÍS SIF GUNNARSDÓTTIR Myndlistarkonan bjó til óvenjulegt listaverk í Skaft-
felli sem flutt verður á laugardaginn.
„Við ætlum að flytja nokkurn veginn þá efnis-
skrá sem er á nýju plötunni okkar. Það eru glæný
aðventu- og jólalög sem lítið eða ekkert hafa heyrst,
í bland við vel þekkt lög sem eru kannski í öðruvísi
útsetningum og með öðruvísi undirspili en venju-
lega,“ segir Eyþór Ingi Jónsson, stjórnandi kamm-
erkórsins Hymnodiu, um jólatónleika kórsins í
Háteigskirkju í dag. Hann segir kórinn og hljóð-
færaleikarana spinna milli atriða, því verði aldrei
þögn heldur sé flutningurinn ein heild. Auk þess
sé lýsingu haldið í lágmarki. „Við ætlum að koma
tónleikagestum í hátíðarskap og ekki vera alltof
skrítin,“ lofar hann.
Hymnodia hefur verið að syngja með Skálmöld
og Sinfóníuhljómsveit Íslands dag eftir dag á risa-
tónleikum í Hörpu síðustu daga. „Þetta er kór sem
reynir að fara frumlegar leiðir í efnisvali og fram-
komu,“ segir Eyþór Ingi. „Við gerum mikið að því að
flytja nýja músík og spinna, tökum að okkur nýstár-
leg hlutverk eins og nú með Skálmöld og sinfóníunni
en hápunkturinn á ferlinum var að flytja stjórnar-
skrána á Feneyjatvíæringnum á síðasta ári.“
Jólatónleikar í Akureyrarkirkju rétt fyrir jólin,
ásamt völdum hljóðfæraleikurum, hafa verið fast-
ur punktur í starfsemi kórsins síðustu ár. Sú hefð
verður ekki rofin á þessari aðventu heldur bresta
þeir á 21. desember, að sögn Eyþórs Inga sem auk
þess að vera kórstjóri er organisti Akureyrarkirkju.
Tíu ár eru liðin frá því að Hymnodia var stofnuð
og hélt hún upp á tímamótin með því að halda tíu
hálftíma tónleika á tíu tímum í tíu kirkjum í Eyja-
firði. Segja má að hinn nýútkomni diskur, Það ljós
inn skein, tengist tíu ára afmælinu líka og tónleik-
arnir í framhaldi af honum. gun@frettabladid.is
Ekki alltof skrítin
Jólatónleikar kammerkórsins Hymnodiu í Háteigskirkju í dag mynda klukku-
stundar langa spuna- og draumkennda heild með nýjum lögum í bland við þekkt.
HYMNODIA „Þetta er kór sem reynir að fara frumlegar leiðir í efnisvali og framkomu,“ segir stjórnandinn Eyþór Ingi Jónsson.
Sól í Tógó stendur fyrir myndverkauppboði í dag klukk-
an 14 í salnum í Hannesarholti.
Meðal þeirra listamanna sem gefa verk á uppboðið eru
margar af helstu stórkanónum íslenskrar myndlistar:
Ólafur Elíasson, Eggert Pétursson og Ragnar Kjartans-
son, Gjörningaklúbburinn, Elín Hansdóttir og Gabríela
Friðriksdóttir. Uppboðið er því mikill viðburður og
þarft og brýnt verkefni. Alþingismaðurinn Óttarr
Proppé stýrir uppboðinu. Ágóðinn rennur til bygg-
ingar heimilis fyrir munaðarlaus börn í Anehó í Tógó.
STJÓRNANDINN Alþingismaðurinn Óttarr Proppé stýrir
uppboðinu.
Listamenn styrkja Sól í Tógó
Uppboð á myndverkum í Hannesarholti.
www.tjarnarbio.isMiðasalan er opin frá kl. 15:00-18:00 þri-fösmidasala@tjarnarbio.is / 527-2100 / midi.is
MENNING