Fréttablaðið - 30.11.2013, Side 140
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR | MENNING | 100
KÆRLEIKSKÚLUR
Í GEGNUM ÁRIN
Kærleikskúlan 2013 var afh júpuð við hátíðlega athöfn í Listasafni
Reykja víkur á miðvikudagsmorgun. Þetta er í elleft a sinn sem Styrktar-
félag lamaðra og fatlaðra gefur út Kærleikskúlu en tilgangurinn með
sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna, með því að efl a
starfsemi Reykjadals. Ragnar Kjartansson er listamaður Kærleikskúlu ársins
2013. Hér að neðan má líta allar kærleikskúlur frá árinu 2003, þegar átakið
hóf göngu sína með fyrstu Kærleikskúlunni frá listamanninum Erró.
„Lokkandi er rómantískur óður til líkama
og sálar, minnisvarði minninga. Innan um
skilningarvitin laumast allt og dvelur
inni í flóknu landslagi holds og hugar
einsog ilmurinn úr eldhúsinu.
Hárflækjan, ímyndað landslag
tilfinninga og taugaboða sem
lokka okkur inn í króka og kima
hugans, er samofin öllu– ein-
stök og endalaus.“
„Við erum í sífellu að snerta
hluti sem á vegi okkar verða.
Manneskjan skilur eftir sig slóð
af fingraförum í gegnum lífið.
Við snertum fólk og það okkur.
Snerting er notuð í lækninga- og
líknarskyni. Við tökum upp hluti,
réttum þá öðrum, búum til hluti,
breytum hlutum. Immanuel
Kant sagði að hendurnar væru
hinn ytri heili mannsins.“
„Fyrir Ísland með ástarkveðju:
Teiknaðu ímyndað kort á svarthvítan hnött.
Kastaðu vængjaðri pílu á handahófskenndan stað á hnettinum.
Litaðu svæðið þar sem pílan lendir með lit að eigin vali.
Kastaðu pílunni aftur og sjáðu hvar hún lendir.
Litaðu svæðið þar sem hún lenti að þinni egin ósk.
Haltu áfram að lita svæðið þar sem pílan lendir.
Haltu áfram að lita þar til heimurinn er allur í lit.“
„Uppspretta verksins er augað. Augun eru stórkostlegt
verkfæri, þau eru farvegur fyrir samskipti, þau hafa áhrif
á skilning okkar og skoðanir á okkur sjálfum, öðrum,
umhverfinu– heiminum! Ég hef mikla ánægju af því að
leika mér með eitthvað sem mér þykir fallegt. Fegurð er
varasamt orð vegna þess að það er búið að staðla það
og gera að einhverri klisju. Því ættum við kannski að tala
um fagurfræði frekar en fegurð. Oft getur eitthvað sem er mjög ljótt við ákveðnar
aðstæður orðið ótrúlega fallegt við aðrar. Svo fegurð er ekki einangrað fyrirbæri, hún
er frekar spurning um eitthvað sem er einhvers virði og virði má alltaf semja um.”
„Þegar ég horfði inn í kúluna í fyrstu, þá sá ég fyrir
mér þekkt minni; lítinn heim innan í kúlunni og
endamörk hans, glerið sjálft eins og sjóndeildarhring
þess sem horfir innan úr miðju hans. Kúlan er
alheimur í sjálfum sér, en í hönd manns er þessi litla
veröld bara ögn í stærri alheimi– sem kannski er líka
ögn í enn stærri alheimi, lítill viðkvæmur hlutur í hönd
einhvers sem starir innan í hann. Fjöllin sem prentuð
eru á kúluna eru dregin upp af ljósmyndum sem ég
tók eða safnaði af íslenskum fjöllum á árinu 2010.“
„ Kærleikskúlan er blásin upp af því
dýrmætasta sem hverri lifandi mann-
eskju er gefið, andardrætti. Andinn í
kúlunni er táknrænn fyrir hið ósnert-
anlega og andlega, langanir og þrár.
Kúlan er kysst þremur kossum sem
fela í sér tjáningu ástar, vináttu og
þakklætis. Kyssum hvert annað.“
„Óteljandi agnir mynda landslag sem breiðir úr sér og
þekur jörðina. Þar vaxa áferðarmiklir og kynlegir kvistir.
Landslag sem mótar og nærir hin margvíslegu lífsform
og andann sem innan og utan þess býr. Það er lífsvilji
sálarinnar og vonin sem mynda samfélög heims ins. Að
viðurkenna, varðveita og virða hið skapandi afl marg-
breytileikans er krydd lífsins– SALT JARÐAR.“
Verkið heitir „2 málarar“
og er úr röð verka sem Erró
gerði árið 1984. Það er eins
og flest verka hans byggð á
tilvísunum í myndir annarra,
að þessu sinni eru það verk
meistaranna Picasso og Léger.
Orðin þrjú „PAIX - LIBERTÉ -
SOLIDARITÉ“ eru boðskapur
myndarinnar.
„Eftir vetur kemur vor, síðan sumar, haust og aftur vetur. Af
gróðrinum lesum við framrás tímans. Sortulyngið ber blóm
að vori. Blómið verður að beri sem þroskast yfir sumar-
tímann og um haustið er berið orðið skærrautt. Lyngið
dvelur undir snjónum og birtist aftur vorgrænt og blómgast
á ný. Fræin skjóta rótum.Lífskeðjan er óslitinn hringur.“
„Það var jólanótt árið 1998 og ég sat niðri í stofu með föður
mínum. Aðrir voru farnir í háttinn, kertin voru að brenna
upp og það rigndi ofan í jólasnjóinn. Faðir minn verður
yfirleitt svolítið drukkinn á jólunum og honum finnst
mikilvægt að nota hátíðleikann til að lesa syni
sínum lífsreglurnar. Þessi jól var hann í sérstaklega
miklu stuði. Við reyktum vindla og hann var með
koníaksglas í hendinni. Skyndilega sagði hann
með þungum andardrætti: „Ragnar, ég þarf að
segja þér eitthvað það mikilvægasta sem ég mun
nokkurn tíma segja þér.“ Hann lokaði augunum og
það var löng þögn. Svo sagði hann: „Það er fallegt
en sorglegt að vera manneskja“. Þetta hafði djúp-
stæð áhrif á mig. Nú prýðir þessi sanna mótsögn
Kærleikskúluna. Það er einmitt mótsögnin sem alltaf
situr í mér, sérstaklega á jólunum þegar við hlustum á
prestinn tala í útvarpinu, poppararnir syngja um kærleik
og frið og við hugsum um stóra hluti. En lífið er aldrei
„annaðhvort eða“– aldrei annaðhvort harmþrungið eða gleði-
legt, aldrei svart eða hvítt. Við lifum og deyjum á gráa svæðinu. Þar byggjum
við okkar bústað. Hlutskipti okkar, hvers og eins, er bæði sorglegt og fallegt.“
„Orðin vísa til þess að kærleikurinn á sér hvorki
upphaf né endi. Hann er óskilyrtur– óendanlegur
– hann er. Eins er með fossinn– hann rennur án
afláts– hann er. Jörðin er ein samfelld heild. Einn af
hinum máttugu fossum landsins birtist í brothættu,
svífandi listaverkinu, sem örsmáum heimi, sem
aftur kallast á við og speglar alheim þar sem jörðin
svífur um í ómælisgeimi.”
2013
HUGVEKJA
RAGNAR KJARTANSSON
2012
LOKKANDI
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR
2011
SKAPAÐU
ÞINN HEIM
YOKO ONO
2010
FJARLÆGÐ
KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR
2008
ALLT SEM
ANDANN DREGUR
GJÖRNINGA-
KLÚBBURINN
2007
HRINGUR
EGGERT PÉTURSSON
2006
SALT JARÐAR
GABRÍELA FRIÐRIKSDÓTTIR
2009
SNERTING
HREINN FRIÐFINNSON
2005
ÁN UPPHAFS– ÁN ENDIS
RÚRÍ
2004
AUGAÐ
ÓLAFUR ELÍASSON
2003
2 MÁLARAR
ERRÓ
Frá 18. nóvember
Tapas barsins
Hefst með Faustino freyðivíni í fordrykk
7 gómsætir jólatapas fylgja síðan í kjölfarið
Tvíreykt hangikjöts tartar með balsamik vinaigrette
Rauðrófu- og piparrótargrafinn lax
Spænsk marineruð síld með koriander og mangó
Léttreykt andabringa með malt- og appelsínsósu
Kalkúnabringa með spænskri „stuffing“ og calvados villisveppasósu
Steiktur saltfiskur með sætri kartöflumús
Hægelduð grísasíða með heimatilbúnu rauðkáli, fíkjum og fjallagrasasósu
Og í lokin tveir ljúfir eftirréttir
Rise a la mande með berjasaft
Ekta súkkulaðiterta
Vesturgata 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is
RESTAURANT- BAR