Skessuhorn - 18.12.2013, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Tyllt sér á jötubandið
Leiðari
Tími ljóss og friðar gengur nú í garð. Helgasti tími ársins þegar kristnir
menn minnast fæðingu frelsarans og fjölskyldur verja meiri tíma sam-
an en ella. Hvort sem fólk er kristinnar trúar eða ekki, hygg ég að flestir
njóti hátíðarinnar. Hinir vantrúuðu velja einfaldlega það úr sem þeir kjósa,
fara kannski ekki til messu, en borða örugglega góðan mat, eiga notalegar
stundir með sínum nánustu, lesa í góðri bók, nú eða bara sofa út þegar hlé
verður á annríki hversdagsins.
Ég ætla að njóta jólanna og ég ætla líka að njóta þeirra daga sem í hönd
fara fram að þeim. Jólin æra nefnilega upp í mér barnið – og skammast ég
mín ekkert fyrir það. Maður rifjar ómeðvitað upp bernskunnar jól. Hugs-
ar til genginna forfeðra og góðra stunda með þeim með því að vitja leiða
þeirra. Í mínum uppvexti voru jólin og undirbúningur þeirra sérstök há-
tíðarstund eins og ég hygg að flestir minnist þeirra. Í aðdraganda jóla var
til dæmis búið að fara ferð í skóggirðinguna ofan við bæinn og velja lítið
grenitré úr trjálundi sem gjarnan þurfti að grisja til að gefa öðrum trjám
aukið rými. Það var allt í lagi þótt greinar vantaði á eina hlið að hluta, tréð
var hvort sem er haft úti í horni svo það kom sér vel. Hluti af jólaundir-
búningnum á mínu heimili var einnig árleg ferð í kirkjuna þar sem móð-
ir mín skreytti kertastjaka sem þar voru til skrauts. Hafði hún reyndar haft
það hlutverk í árafjöld löngu áður en ég kom til sögunnar. Strákurinn fékk
að dittlast með í þessar ferðir og hlusta á kórinn æfa sálmana.
Þar sem ég ólst upp í sveit fannst mér sem barni sérstaklega hátíðlegt að
ganga til gegninga á aðfangadag. Það var eins og ákveðin en óútskýrð kyrrð
færðist yfir kýrnar í fjósinu og að þær skynjuðu að dagurinn væri ekki eins
og allir hinir. Auðvitað fengu þær besta heyið úr stabbanum þennan dag og
kannski sérstakan aukaskammt af fóðurbæti. Í fjárhúsunum kvað aðeins við
annan tón. Þá fylgdi þessum árstíma jú að hrútarnir voru nýlega farnir að
fá leyfi til að líta til ánna. Á góðum aðfangadegi gat því verið býsna mik-
il hopp og hí og trallala áður en kvöldmatartíminn hófst. En eftir að hrút-
arnir höfðu sinnt skylduverkum sínum færðist smám saman ró yfir hóp-
inn. Ærnar fengu að sjálfsögðu líkt og kýrnar besta heyið sem í boði var
og blöndu af fiski- og maísmjöli að auki til að frjósemin yrði betri. Sællar
minningar settist maður á jötubandið eftir að gjöfinni á aðfangadagskvöldi
lauk og naut þess að hlusta á ærnar éta sitt hey, það heyrðist sérstakt áthljóð
sem þeir þekkja sem heyrt hafa. Þær þögðu á meðan enda kannski sælli og
glaðari en flesta aðra daga. Kannski var þessi nálægð við jötuna og dýrin,
líkt og þar sem frelsarinn var forðum lagður, þessi tenging sem kom í veg
fyrir að maður yrði efasemdarmaður í trúnni, hver veit.
Það góða við gegningar á helgum dögum var svo hin undurgóða matar-
lyst sem þeim fylgdi eftir að inn var komið að kveldi. Hlustað var á mess-
una í útvarpinu og farið í jólabaðið svo að hægt væri að taka fram alspari-
fötin. Þegar ég var ungur var svínakjöt hátíðarmatur. Matur, sem í dag er í
röðum þess ódýrasta í stórmörkuðunum, var hátíðarmatur í minni bernsku
enda svínarækt ekki stundum í stórum stíl. Þverhandarþykkar sneiðar af
nýju svínakjöti voru steiktar eftir kúnstarinnar reglum með eggi og raspi í
smjöri, kryddað og sett í ofninn. Með þessu var borið fram allskyns með-
læti. Í eftirrétt var síðan rjómalagaður hrísgrjónagrautur með karamellu-
sósu sem gerð var úr heimalöguðu sýrópi. Hvílíkt hnossgæti! En það þýddi
ekkert að slá slöku við og dvelja við hlutina. Uppvaskið skyldi klára áður en
pakkarnir voru snertir. Allt snerist um að ljúka þurfti þessum verkum öll-
um áður en haldið yrði til aftansöngs í Reykholtskirkju. Þar söng kórinn
við raust: „Í dag er glatt í döprum hjörtum, því Drottins ljóma jól...“ Þá
fannst mér jólin vera komin.
Ég vil að endingu óska lesendum Skessuhorns og velvildarfólki blaðsins
gleðilegrar hátíðar, ljóss og friðar. Hafið öll kæra þökk fyrir árið sem brátt
kveður. Njótum þess að vera til og verum góð við náungann.
Magnús Magnússon.
Hjá Akraneskaupstað verða engar
gjaldskrárhækkanir árið 2014 nema
hækkun á sorphirðugjöldum. Þann-
ig verður gjald í leikskólum, fæðis-
gjald í skólum, frístundaheimilum,
gjaldskrá tónlistarskóla,
bókasafns, heimaþjón-
ustu, íþróttamannvirkja og
fleira óbreytt á milli ára.
Að sögn Regínu Ásvalds-
dóttur bæjarstjóra þýð-
ir þetta rúmlega átta millj-
óna króna tekjuskerðingu
sveitarfélagsins, miðað
við áætlaða hækkun sam-
kvæmt neysluverðsvísitölu
sem er 3%. Fjárhagsáætl-
un fyrir árið 2014 var sam-
þykkt á fundi bæjarstjórnar
Akraness í gær. Ennfrem-
ur var þriggja ára áætlun vegna ár-
anna 2015 til 2017 samþykkt. Mið-
að við fjárhagsáætlunina fyrir næsta
ár mun þjónustustig Akraneskaup-
staðar haldast óbreytt. Til niður-
greiðslu lána verður varið 297,2
milljónum á næsta ári. Gert er ráð
fyrir 290 milljónum króna til fram-
kvæmda. Áætlunin gerir ráð fyr-
ir rekstrarafgangi hjá A og B hluta
samstæðunnar upp á 46,5 milljón-
ir og að handbært fé í árslok 2014
verði 291,5 milljónir króna. Reg-
ína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri seg-
ir stöðu Akraneskaupstaðar góða,
skuldahlutfall er 89,11% og veltu-
fé frá rekstri 11,31%.
Það skal tekið fram að skuldahlut-
fall Akraneskaupstaðar er í fjár-
hagsáætlunr reiknað með sama
hætti og gert var við fjár-
hagsáætlunargerð fyrir árin
2013 til 2016, en þar var
skuldahlutfallið reiknað
samkvæmt 14. grein reglu-
gerðar nr. 502/2012. Fyrir
lesendur kann það að vera
villandi að tvær aðferðir eru
í gangi við mat á heildar-
skuldum sveitarfélaga. Hin
aðferðin byggir á að allar
lífeyrisskuldbindingar eru
reiknaðar til skulda. Í 14.
grein, sem Akraneskaup-
staður styðst við, þá eru líf-
eyrisskuldbindingar eftir 15 ár ekki
reiknaðar með. Sé þeim hins vegar
bætt við væri skuldahlutfall Akra-
neskaupstaðar 130%.
þá/mm
Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar
fyrir árið 2014 var samþykkt eftir
aðra umræðu á fundi sveitarstjórn-
ar sl. fimmtudag. Þar kemur fram
að rekstarniðurstaða verður já-
kvæð, skuldir halda áfram að lækka
og sköttum og þjónustugjöldum er
að mestu haldið óbreyttum. Álagn-
ingaprósenta fasteignaskatts og
lóðaleigu er óbreytt, sömuleiðis
öll gjöld er tengjast félagsþjónustu,
grunn-, leik- og tónlistarskólum
sem og æskulýðs- og tómstunda-
málum. Auknu fjármagni verður
varið til viðhalds eigna, gatna og
gangstétta og áætlað er að verja um
150 milljónum í nýjar framkvæmd-
ir og fjárfestingar. Þær verða fjár-
magnaðar með handbæru fé og
langtímaláni að upphæð 70 millj-
ónir kr. Eignir sveitarfélagsins eru
áætlaðar í árslok 2014 að andvirði
6.094 milljónir króna.
Heildartekjur sveitarsjóðs Borg-
arbyggðar og B-hluta fyrirtækja
eru áætlaðar 2.967 milljónir króna
á árinu 2014 en rekstrarútgjöld án
fjármagnsliða 2.716 milljónir kr.
Framlegð sveitarfélagsins verði
því um 13%. Fjármagnsgjöld er
áætluð 242 milljónir kr. Saman-
tekin rekst rarniðurstaða Borgar-
byggðar á árinu 2013 verður sam-
kvæmt fjárhagsáætluninni jákvæð
um níu milljónir króna. Skuldavið-
mið Borgarbyggðar verður sam-
kvæmt áætlun 128% í árslok 2014.
Heildarskuldir og skuldbindingar
eru áætlaðar 4.559 milljónir í árs-
lok 2014. Afborganir langtímalána
nema 225 milljónum og skuldir
lækka um 63 milljónir á milli ára.
Eigið fé sveitarfélagsins verður
1.532 milljónir kr. eða 25%.
Á fundinum var samþykkt lang-
tímaáætlun fyrir árin 2015-2017.
Jafnvægi verður í rekstri sveit-
arfélagsins samkvæmt langtíma-
áætlun og óverulegar breytingar á
skuldastöðu þrátt fyrir að Borgar-
byggð muni verja 400 milljónum
til að endurbæta og byggja við hús-
næði Grunnskólans í Borgarnesi.
þá
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Heilslukoddar
Dúnsængur
Rúmföt og lök
Í mjúka
jóla-
pakkann
Stefnt að áframhaldandi
traustum rekstri Borgarbyggðar
Akraneskaupstaður hækkar
einungis sorphirðugjöldin