Skessuhorn - 18.12.2013, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Nemendur við Háskólann á Bif-
röst stofnuðu á dögunum femín-
istafélag sem ætlað er að stuðla að
auknu jafnrétti innan skólans og
samfélagins. Félagið heitir „Femín-
istafélag Bifrastar“ og er stjórn þess
skipuð eftirfarandi einstaklingum:
Gauti Skúlason er formaður, Stella
Sif Jónsdóttir varaformaður, Ása
María Guðmundsdóttir gjaldkeri,
Jón Steinar Guðmundsson og Þór-
dís Halla Guðmundsdóttir með-
stjórnendur. Aðspurður um mark-
mið félagsins sagði Gauta Skúlason
formaður félagsins þetta: „Mark-
mið félagsins er að auka jafnrétti og
bæta þekkingu Bifrestinga á fem-
inisma með því að halda málfundi
og pallborðsumræður um hin ýmsu
mál er fjalla um jafnrétti kynjanna.“
Félagið hefur stofnað hóp á Fa-
cebook undir heitinu Femínista-
félag Bifrastar og býður það alla
velkomna að gerast aðilar að hópn-
um og fylgjast þannig með starfi
þess og einnig til þess að hafa áhrif
innan þess. En fram kemur að fé-
lagið er almennt og óháð félag sem
starfar á lýðræðislegum grunni með
það að leiðarljósi að allir félagar
hafi jafnan rétt til áhrifa. mm
Finnur Árnason rekstrarhagfræð-
ingur hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Þörungaverksmiðj-
unnar á Reykhólum og hefur hann
þegar tekið til starfa. Finnur er
fæddur árið 1958. Hann er stúdent
frá Menntaskólanum við Hamra-
hlíð og búfræðingur frá Land-
búnaðarháskólanum á Hvanneyri.
Hann lauk B.Sc. námi í efnafræði
við Háskóla Íslands árið 1985 og
Fil. Cand. prófi í rekstrarhagfræði
frá Háskólanum í Gautaborg árið
1988. Finnur hefur unnið fjölbreytt
störf til sjávar og sveita og komið
víða að stjórn og rekstri fyrirtækja,
svo sem í sútun og harðviðarþurrk-
un auk þess sem hann var um árabil
framleiðslustjóri hjá Slippfélaginu,
málningarverksmiðju.
Finnur starfaði um þrettán ára
skeið sem fjárfestingarstjóri hjá
Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins
og sat í stjórnum fjölmargra fyrir-
tækja f.h. sjóðsins, s.s. Sjávarleð-
urs, Genís, Mentis Cura, Primex
og fleiri. Hann hefur undanfar-
in misseri starfað við sérfræðiráð-
gjöf hjá ráðgjafarfyrirtækinu Kon-
takt ehf. í verkefnum er lúta að leit
að litlum iðnfyrirtækjum á Norð-
urlöndum sem fýsilegt geti verið að
kaupa og flytja til Íslands. Finnur er
þriggja barna faðir, kvæntur Maríu
H. Maack, líffræðingi og umhverf-
isstjóra hjá Íslenskri Nýorku. mm
Afar mikið verðfall hefur orðið á
gráspleppuhrognum á þessu ári.
Þau byrjuðu að lækka í verði í lok
vertíðar 2012 og menn upplifðu
eftir það nánast verðhrun á mörk-
uðum með tilheyrandi sölutregðu.
Þetta sést glöggt í útflutnings-
tölum Hagstofunnar. Fyrstu tíu
mánuði þessa árs er verð á söltuð-
um grásleppuhrognum 42% lægra
en það var á sama tímabili í fyrra.
Útflutningsverðmæti hrognanna
á tímabilinu janúar til október er
554 milljónir á móti 1,1 milljarði
á sama tímabili í fyrra. Það bætir
ekki úr skák að magnið hefur dreg-
ist saman um eitt þúsund tunnur en
það eitt og sér skýrir þó engan veg-
inn þetta mikla fall í verðmætum.
Megin ástæðan er verðfallið.
Margþætt skýring
á verðhruni
Ýmsar skýringar eru á þessu mikla
verðfalli. Snöggar og miklar verð-
hækkanir urðu á tímabilinu 2009
til 2010 sem leiddi meðal annars
til stóraukinna veiða. Afleiðing-
arnar urðu offramboð á hrognum.
Markaðurinn tók við sér fram yfir
mitt ár 2012, en þá fóru kaupendur
að kippa að sér höndum. Það dró
verulega úr sölu, verð lækkaði og
birgðir söfnuðust upp. Verðlækk-
un til sjómanna hefur einnig kom-
ið fram í lægra verði á fullunnum
grásleppuhrognum til neytenda.
Nú virðist hins vegar dæmið vera
að snúast við í grásleppukavíarn-
um. Landssamband smábátasjó-
manna telur að lægra verð til neyt-
enda sé nú farið að skila sér í auk-
inni sölu. „Vonir standa því til að
botninum sé náð og farið að grylla
í betri horfur á markaði fyrir grá-
sleppuhrogn. Þetta veltur þó allt á
að veiði á næstu vertíð verði á hóf-
legum nótum og hrognaframleiðsla
ekki umfram eftirspurn,“ segir á vef
samtakanna. „Verslanir virðast hafa
keypt inn meira af kavíar nú fyrir
þessi jól en í fyrra. Kavíarinn gæti
alveg orðið eins konar tilboðsvara
og það þarf í sjálfu sér alls ekki að
vera neikvætt. Það myndi minnka
birgðir og þannig hjálpa til við að
koma betra jafnvægi milli fram-
boðs og eftirspurnar,“ segir Örn
Pálsson framkvæmdastjóri Lands-
sambands smábátaeigenda.
Samdráttur í veiðum og
vilja hagræða
Grásleppuvertíðin var í slakara lagi
hjá grásleppusjómönnum á sunn-
an- og vestanverðu landinu í vor,
bæði hvað varðar verð og afla-
brögð. Svipaða sögu var að segja
annars staðar á landinu. Íslend-
ingar veiddu alls um 8.700 tunn-
ur af hrognum á þessari vertíð.
Árið 2012 skilaði grásleppuvertíð-
in 12.200 tunnum hér á landi. Örn
Pálsson segir að Landssamband
smábátasjómanna hafi nú lagt fram
tillögu við stjórnvöld að mönnum
verði heimilað að sameina veiði-
leyfi á grásleppu. „Það er í grófum
dráttum þannig að menn geti sam-
einað tvö leyfi á einn bát. Hvert
leyfi þýðir 32 dagar sem menn
mega stunda veiðar. Ef veiðileyfi
yrðu sameinuð þá kæmi á móti
helmings skerðing á dagafjölda
seinna leyfisins. Tvö 32 daga leyfi
myndu þannig skila einu leyfi sem
yrði þá 45 dagar. Með þessu von-
um við að hægt verði að ná meiri
hagræðingu í greininni. Þó að grá-
sleppuveiðin hér á landi hafi dreg-
ist saman um 29% á þessu ári mið-
að við fyrra ár þá verður hið sama
ekki sagt um helsta samkeppnis-
aðila Íslands sem er Grænland.
„Þeir hafa verið að veiða stöðugt
um 9.000 tunnur á ári. Hins vegar
hefur nánast engin veiði verið við
Nýfundnaland síðustu fimm árin.
Það er líka óveruleg veiði við Nor-
eg en það skýrist kannski mikið af
því að þeir hafa nóg að gera þar
núna við að veiða þorskinn,“ seg-
ir Örn Pálsson. mþh
Heimili og skóli, SAFT og Vímu-
laus æska - foreldrahús héldu
fræðslufund í sal Fjölbrautaskóla
Snæfellinga nýverið. Þar fóru þau
Sólveig Karlsdóttir, Björn Rúnar
Egilsson og Guðrún Björg Ágústs-
dóttir yfir hættur sem leynast í
samfélaginu fyrir börn og unglinga.
Farið var vel yfir Internetnotkun
barna og fleira í þeim dúr. Þessir
aðilar eru nú á ferð um landið með
þennan ágæta fyrirlestur enda leyn-
ast hætturnar víða á uppvaxtarárun-
um.
tfk
Páll S. Brynj-
arsson sveitar-
stjóri í Borgar-
byggð upplýsti
hlustendur Út-
varps Óðals í
Borgarnesi sl.
föstudag um að
hann hygðist
ekki gefa kost
á sér til starfa
eftir kosningar
í vor. Páll hef-
ur verið sveit-
arstjóri í Borg-
arbyggð sam-
fleytt í þrjú
kjörtímabil. „Mér finnst þetta vera
ákveðin tímamót í vor en þá hef ég
verið sveitarstjóri í tólf ár. Það gæti
verið gott bæði
fyrir mig og
samfélagið að
ég dragi mig út
úr þessu starfi.
Mér og fjöl-
skyldunni hef-
ur líkað ágæt-
lega hér enda
er gott að búa í
Borgarbyggð,“
sagði Páll í
samtali við
S k e s s u h o r n .
Hann kvaðst
aðspurður ekki
hafa gert það
upp við sig hvað tæki við hjá hon-
um eftir næsta vor.
mm
Bæjarráð Grundarfjarðar sam-
þykkti á fundi sínum nýverið að
standa áfram að samstarfssamn-
ingi sveitarfélaga á Vesturlandi
um menningarmál. Það verði gert
á sambærilegum grunni og upp-
haflegur samningur frá árinu 2005
kveður á um. Bæjarráð telur að um-
sjón með framkvæmd samnings-
ins eigi að vera í höndum menn-
ingarfulltrúa í 60% starfi, en fjár-
málaumsýsla verði hjá skrifstofu
SSV. Bæjarráð tekur í ályktun sinni
undir niðurstöðu úttektar á fram-
kvæmd menningarsamninga árin
2011-2013 sem Capacent vann
fyrir mennta- og menningarmála-
ráðuneytið. Þar segir að „það sé
farsælt að stýra styrkveitingum rík-
is og sveitarfélaga til menningar-
starfs í einn farveg. Þá telja þeir, út-
tektaraðilar, að úthlutun fjármagns
heima í héraði á grundvelli stefnu-
mörkunar og úthlutunarreglna auki
fagmennsku og byggi þannig undir
sátt um ráðstöfun fjármuna.“ Einn-
ig segir í úttekt Capacent að menn-
ingarsamningarnir hafi stuðlað að
auknu samstarfi á sviði menningar-
mála á svæðunum sjö í landinu, þ.e.
innan hvers svæðis. Stuðlað hafi
verið að aukinni nýsköpun og fjöl-
breytni í menningu og menning-
artengdri ferðaþjónustu. Á hverju
svæði séu dæmi um verkefni, sem
ekki hefði verið mögulegt að fram-
kvæma nema með þeim stuðningi
sem fékkst fyrir tilstuðlan menn-
ingarsamninganna.
þá
Jóhannes Eyleifsson á Leifa AK frá Akranesi með væna grásleppu.
Grásleppusjómenn vonast til að hafa
náð uppspyrnu í botni markaðar
Björn Rúnar Egilsson flytur erindi sitt.
Héldu fyrirlestur um hættur netheima
Femínistafélag stofnað á Bifröst
Vilja áfram samstarf um
menningarmál innan SSV
Finnur Árnason ráðinn
framkvæmdastjóri Þörunga-
verksmiðjunnar
Páll hyggst ekki gefa kost á
sér eftir næstu kosningar