Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2013, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 18.12.2013, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013 Óskum viðskiptavinum okkar gleði legrar hát íðar og þökkum viðskipt in á ár inu. Reyk jav í k ı Ak ranes ı Í sa f jö rðu r ı B lönduós ı Sauðá rk róku r Aku rey r i ı Eg i l s s tað i r ı Reyða r f jö rðu r ı Se l foss ı Ves tmannaey ja r Jón Haukur Hauksson hdl. jonhaukur@pacta.is K i r k jub rau t 12 ı 300 Ak ranes ı s ím i 440 7900 ı www.pac ta . i s Síðustu vikurnar hefur þeim farið fjölgandi fyrirtækjunum sem hafa áhuga á athafnasvæðum á Grund- artanga. Frá haustinu hafa bæst við tvö fyrirtæki sem óska eftir lóð til starfsemi á Grundartanga, að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra Faxa- flóahafna. Það er fyrirtæki sem framleiðir sólarkísil en áður hafði dótturfyrirtæki Elkem sýnt þeirri framleiðslu áhuga. Þá hafa for- svarsmenn fyrirtækis sem hyggja á framleiðslu álvíra sett sig í sam- band, að sögn Gísla. Þessa dagana er verið að skipa upp stálþili vegna stækkunar hafnarinnar á næsta ári og lengingu viðlegukants um 120 metra. Fyrr á árinu voru það félög og fyrirtæki sem sýndu m.a. áhuga á framleiðslu eldsneytis úr timbri og trjákurli og framleiðslu lífdísils sem óskuðu eftir afhafnasvæði. Gísli segir að vegna áhuga fyrirtækja á athafnarými á Grundartanga séu Faxaflóahafnir í samningaviðræð- um um stækkun athafna- og iðn- aðarsvæðisins í Katastaðalandi sem er í eigu Faxaflóahafna. Hann segir að þau verkefni sem áhugaverð eru í þessu sambandi séu öll þess eðl- is að um þau gætu orðið í góðri sátt út frá umhverfissjónarmiðum. Gísli segir fyrirspurnir frá mörgum að- ilum um athafnasvæði á Grund- artanga sýni að ýmsir horfi hýru auga á Tangann sem ákjósanleg- an stað fyrir hafnsækna starfsemi. „Við verðum að taka mið af þessu þó ljóst sé að ekki verða allar hug- myndir af veruleika,“ segir Gísli. þá Á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar 12. desember sl. var eftir- farandi bókun samþykkt samhljóða: „Sveitarstjórn Borgarbyggðar ítrek- ar enn mikilvægi þess að Landbún- aðarháskóli Íslands haldi sjálfstæði sínu og að skólanum verði tryggðar fjárveitingar til að geta sinnt hlut- verki sínu áfram sem sjálfstæður skóli. Sveitarstjórn Borgarbyggðar leggst alfarið gegn þeim hugmynd- um að Landbúnaðarháskólinn fari undir stjórn Háskóla Íslands og óttast að með því dragi verulega úr umfangi starfseminnar á Hvann- eyri og þar með væri vegið að at- vinnulífi í Borgarbyggð og mennt- unarmöguleikum þjóðarinnar. Ný- leg gæðaúttekt sýnir óyggjandi að gæði námsins á Hvanneyri standist alla staðla og því falla þau rök sem hafa verið nefnd að fagmennsku skorti. Einnig hefur verið sýnt fram á að fjárhagslegur ávinningur er enginn, frekar að það komi til við- bótarkostnaðar. Því hafnar sveit- arstjórn alfarið hugmyndum um sameiningu LBHÍ og HÍ og hvet- ur mennta- og menningarmálaráð- herra til að hlusta á þau fjölmörgu rök sem fram hafa komið og endur- skoða afstöðu sína.“ mm Í nýju frumvarpi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra er lagt til að sýslumannsembætt- um verður fækkað úr tuttugu og fjórum í níu og lög- reglustjóraemb- ættum úr fimmtán í átta. Í frumvarp- inu er gert ráð fyr- ir að taka bæði lög- gæslu og ákæruvald frá sýslumönnum. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvern- ig sameiningunum verður háttað, en það er ekki útlistað í frumvarp- inu. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur í samtöl- um í fjölmiðlum sagt að hún búist ekki við að til uppsagna komi til að byrja með. Starfssvið sýslumanna muni taka miklum breytingum og stefnt er að hagræðingu. Ráð- herra segir að embættin þurfi að efla og nauðsynlegt að stækka þau til að það markmið ná- ist. Með tillögum í framvarpinu sé tek- ið mið af þeim breyt- ingum sem orðið hafa í landinu síð- ustu árin, bættum samgöngum, meiri tölutækni og fleiru sem auðveldi samskipti á stærri svæðum. Kjörað- stæður séu til að fara í þessi stærri verkefni segir Hanna Birna og tel- ur starfssvæði sýslumanna meðal þeirra. þá Jóladægurlögin sem allir þekkja, saman komin á glæsilegum jólatón- leikum þar sem andi Frank Sinatra og Bing Crosby svífur yfir vötnum verður á dagskrá jólahátíðar Kal- mans listafélags. Hinn stórgóði söngvari, Þór Breiðfjörð verður að- algestur listafélagsins og með hon- um koma þeir Kjartan Valdemarsson píanóleikari og Jón Rafnsson kontra- bassaleikari. Kór Kalmans verður í stóru hlutverki og fleiri góðir gestir koma í heimsókn. Ingþór Bergmann Þórhallsson verður kynnir og spjall- stjórnandi kvöldsins enda er hann einstaklega viðræðugóður eins og Þór Breiðfjörð. Hólmarinn Þór Breiðfjörð er einn af þessum gullbörkum sem við Ís- lendingar eigum. Hann var valinn söngvari ársins árið 2012 fyrir hlut- verk sitt í Vesalingunum og nú ný- verið kom út geisladiskur með hon- um sem nefnist Á ljúfu kvöldi. Tónleikarnir fara fram í Bíóhöll- inni á Akranesi laugardaginn 28. desember og hefjast klukkan 17:00. Aðgangseyrir er kr. 2.500 en Kal- mansvinir greiða 2.000 kr. Forsala er hafin í versluninni Bjargi við Still- holt og í Vinaminni. Einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst á kalmanlistafelag@gma- il.com. Kalman bendir á að þetta er alveg tilvalin jólagjöf. Gefðu jólagjöf sem gleður! -fréttatilkynning Kalman listafélag heldur jólahátíð í Bíóhöllinni 28. desember Í undirbúningi að fækka embætt- um sýslumanns og lögreglustjóra Fjárhagslegur ávinningur enginn af sameiningu Frá Grundartanga. Ljósm. Áskell Þórisson. Aukin spurn eftir athafnasvæðum á Grundartanga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.