Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2013, Page 39

Skessuhorn - 18.12.2013, Page 39
39MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013 miðað við fiskinn og álið var henni í skýrslunni lýst sem „atvinnugrein á unglingsaldri“ sem fari nú að nálg- ast fullorðinsár með „þeirri ábyrgð sem fylgir því að vaxa úr grasi.“ Kjartan og Sirrý segja Land- námssetrið hafa notið góðs af vexti greinarinnar og telja þau að á milli 70-80% gesta séu erlendir ferða- menn. „Flestir gestir okkar eru fólk á bílaleigubílum sem ferðast á eigin vegum en einnig fáum við oft hópa í heimsókn. Miðað við núverandi forsendur á fjöldinn eftir að aukast og erum við að vonast til að aukn- ingin muni dreifast meira yfir árið en verið hefur. Við finnum að ferða- mannatímabilið er hægt og bítandi að lengjast og er það til bóta. Mesti straumurinn er hins vegar ennþá á sumrin. Nýleg stækkun Landnáms- setursins mun gera okkur kleift að taka á móti fleiri gestum, sérstak- lega á álagstímum á sumrin, og get- ur veitingastaðurinn nú tekið á móti allt að 130 manns í mat í einu.” Aukinn stuðningur mun skila árangri Þeirra skoðun er sú að hinn ,,bráð- geri unglingur” sem ferðaþjónust- an er þurfi á góðri stoðþjónustu að halda á næstu árum til að þró- ast í rétta átt, líkt og rótgrónu at- vinnugreinar landsmanna. „Það hefur sýnt sig í gegnum söguna að hið opinbera þarf stundum að ryðja brautina fyrir ný tækifæri með mik- ilvægum innviðaframkvæmdum og stuðningi við rannsóknir innan greina. Í upphafi aldarinnar þeg- ar sjávarútvegurinn var að iðnvæð- ast var hið opinbera tregt til að ráð- ast í innviðaframkvæmdir á borð við hafnargerð sem allir taka und- ir í dag að sé eitt af helstu verk- um þess. Viðhorfin breyttust þegar fyrsta skrefið var stigið í byggingu Reykjavíkurhafnar 1913 og menn fóru að sjá ávinninginn af slíkum framkvæmdum. Lagning góðra vega og nauðsynlegt viðhald á þeim eldri er af sama meiði og sömuleið- is uppbygging góðrar aðstöðu við vinsæla ferðamannastaði. Okkur finnst að yfirvöld mættu taka bet- ur til hendinni í þessum efnum og nálgast málin líkt og um hafnafram- kvæmd væri að ræða fyrir sjávarút- veginn – jafn mikið er í húfi fyrir þjóðarbúið,” segja þau en rétt er að minna á að fyrr á árinu kynntu þau til leiks hugmyndina um svokallaða náttúrupassa sem fékk talsverðan hljómgrunn. Vona að Miðaldaböðin komist á rekspöl Frumkvöðlakrafturinn er enn sterkur í þeim hjónum þrátt fyr- ir átta annasöm ár í Landnáms- setrinu og eiga þau þann draum að hrinda annarri hugmynd í fram- kvæmd sem er stofnun Miðalda- baða í Borgarfirði. „Það er von okkar að verkefnið komist aftur á rekspöl en það hefur verið stopp undanfarna mánuði. Hugmyndin hefur fengið jákvæða umsögn fjár- festa og var hún til að mynda met- in sem eitt af forgangsverkefnum í fjárfestingu í ferðaþjónustu á Ís- landi af breska ráðgjafarfyrirtækinu PKF fyrr á árinu í skýrslu fyrir Ís- landsstofu. PKF telur að Íslending- ar eigi að leggja áherslu á að byggja upp stóra ferðamannasegla í öllum landshlutum á næstu árum til að dreifa ferðamannastraumnum sem víðast um landið og eru Miðalda- böðin dæmi um slíkan segul. Við höfum haft augastað á jörð í ná- grenni við Hraunfossa og Húsafell. Verkefnið hefur hins vegar strand- að á fjárskorti. En við erum ekki al- veg hætt og erum að leita leiða til að mjaka þessu áfram. Mikið er í húfi, ekki síst fyrir héraðið. Í end- anlegri viðskiptaáætlun verkefnis- ins er nefnilega gert ráð fyrir að á milli 80-100 manns starfi við Mið- aldaböðin, þar af 25 í föstu starfi. Miðaldaböðin er hugmynd af óvenjulegum toga við fyrstu sýn og þess vegna eru menn kannski skilj- anlega eilítið hikandi við að leggja verkefninu til fé. En við þurfum ekki annað en að líta til Bláa Lóns- ins og Jarðbaðanna við Mývatn til að sjá að ferðamenn eru vitlausir í að komast í náttúruböð og tilbúnir að greiða hátt verð fyrir. Manni finnst því einboðið að þar sem nóg er af heitu vatni sé reynt að nota tækifærið og gera eitthvað með það. Tíminn verður þó að leiða í ljós hvað gerist. Við trúum allavega á þetta verkefni og erum sannfærð um að af þessu verði þó við náum kannski ekki að upplifa það. En við erum ekki verklaus þó bið verði á Miðaldaböðum, því rekstur og framþróun í Landnámssetrinu er feikinóg verkefni,“ segja þau Kjart- an og Sirrý að lokum. hlh Kjartan og Sirrý ásamt gömlu og nýju samstarfsfólki í Landnámssetrinu. F.v. Margrét Helga Þórhallsdóttir, Sylvía Aðalsteinsdóttir, Sirrý, Áslaug Þorvaldsdóttir, Kjartan Ragnarsson, Eiríkur Þór Theódórsson og Eygló Lind Egilsdóttir, en hún var fyrsti starfs- maður Landnámssetursins. Myndin er tekin í nýja veitingasal setursins. er tekin í nýja veitingasal setursins. www.omnis.isAkranesi Dalbraut 1 Borgarnesi Borgarbraut 61 ReykjanesbæTjarnargötu 7 Jólagjafir fyrir þig kr. 15.990 kr. 12.990 kr. 16.990 kr. 9.990 kr. 12.990 kr. 29.990kr. 24.990 kr. 39.990 kr. 16.990 Vörunr.: EP20101 Vörunr.: EP01396 Vörunr.: EP01278 Vörunr.: EP01422 Vörunr.: EP20103 Vörunr.: EP20100Vörunr.: ep20105 Vörunr.: EP20104 Vörunr.: EP20103 • Örsmá Action myndavél • 1280x720p video með hljóði • 120° víðlinsa • 3m vatnshelt hús • 3MP kyrrmyndir • Lithium batterí innbyggt • HD Action Cam með 5cm snertiskjá • 1280x720p video með hljóði • 3m vatnshelt hús • 5MP kyrrmyndir • 4x digital zoom Ódýr og einfaldur filmu- og slidesskanni. Núna geturðu komið öllum filmunum og slides myndunum í tölvu- tækt form á einfaldann hátt. Handhægur skanni, þarf ekki að tengja við tölvu skannar beint inn á Micro SD kort Hvað er kisa að gera á daginn? Hvað er Snati að gera einn heima? • Xtreme Robust Full HD Action myndavél • 1080p30, 720p60, H.264  video með hljóði • 10m vatnsheld • 1m höggþol • 5MP kyrrmyndir • Full HD Action myndavél með WiFi • 1920x1080p video með hljóði • 3m vatnshelt hús • 1m höggþol • Lithium batterí innbyggt • Full HD Action Cam • 5cm TFT skjár • 1080P/30fps video með hljóði • 80m vatnshelt hús • 12MP kyrrmyndir • LED indicator light • Vatnsheld myndavél • 10 meters vantsheldni • 1 meter höggþol • -10 gráðu frostolin • 5 MP CMOS • 12 MP kyrrmyndir • 2.7”/ 6.8 cm LTPS LCD • 8x digital zoom GoXtreme Race Red CyberScanner Basic EasyScan Easypet Cam gæludýramyndavél GoXtreme Nano GoXtreme XTasy FullHD GoXtreme HD wifi GoXtreme DeepSea W510 neon kr. 34.990 Blaupunkt Soundbar með bassaboxi • 80 wött RMS • Tengi: optical/coax/RCA • Mál á soundbar 100,5 x 6,4 x 5 cm • Mál á bassaboxi 24 x 24 x 30 cm • Upplausn 1366x768 punktar • Skerpa: 4000:1 Birta: 500 cd/m2 • Sjónsvið (H/V): 170°/160° • Stafrænn móttakari DVB-T+C • Multimedia USB - Spilar : DivX, MKV, MP3 og JPEG kr. 69.990 Vörunr.: FIN-32FLY189B Finlux 32” HD LED með DVB-T+X kr. 1.990 kr. 12.990 Skullcandy Jib In-Ear Skullcandy Hesh 2.0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.