Skessuhorn - 18.12.2013, Qupperneq 65
65MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Landbúnaðarháskóli
Íslands óskar nemendum,
starfsmönnum og
Vestlendingum öllum gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári
Bestu óskir um gleðileg jól og
farsælt komandi ár.
Þökkum vináttu, góð kynni og farsælt
samstarf á árinu sem er að líða.
Einar Kristinn Guðfinnsson
Haraldur Benediktsson
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
3
Sjálfstæðisflokkurinn
Efnilegt badmintonfólk
Íslandsmót unglinga var haldið dagana 15.-17. mars á Akra-
nesi. Voru yfir 200 keppendur skráðir til leiks. Mótið tókst
mjög vel. Besti árangur Skagamanns á mótinu var að Andri
Snær Axelsson varð þrefaldur Íslandsmeistari í U-13. Harpa
Hilmisdóttir UMF Skallagrími sigraði einnig í U-15 í einliða-
leik. Í lok mars fóru hópar ÍA og UMF Skallagríms í keppn-
isferð til Danmerkur. Ferðinni var heitið til Vejen að taka
þar þátt í ISCA móti. Krökkunum gekk mjög vel á mótinu
og fengu tíu gullverðlaun, sjö silfurverðlaun og fjögur brons-
verðlaun. Meistaramót Íslands var haldið í Hafnarfirði í apríl
og fóru margir keppendur af Skaganum. Mótið er fullorðins-
mót en ungir krakkar voru sendir til leiks frá BA ásamt elstu
spilurum. Egill G. Guðlaugsson, badmintonmaður ársins hjá
ÍA, náði bestum árangri í meistaraflokki. Hann lék í undan-
úrslitum í einliðaleik og tvíliðaleik með Ragnari Harðarsyni.
Harpa Hilmisdóttir UMF Skallagrími sigraði í A-flokknum í
einliðaleik. Í lok apríl var valinn landsliðshópur fyrir Nordic
Camp í Noregi. Í þeim hópi voru fjórir spilarar af sex frá ÍA
og UMF Skallagrími. Atlamót ÍA var haldið dagana 29.-30.
september. Mættu tæplega 60 keppendur til leiks. Þar bar til
tíðinda að Ragnar Harðarson meistaraflokksspilari í ÍA fékk
silfur í einliðaleik. Badmintonfólk frá ÍA stóð sig vel á mótinu
og komust nokkrir á pall. Þetta var fyrsta mót vetrarins. Ár-
angurinn er góðs viti fyrir það sem koma skal í vetur.
Efnilegt sundfólk á leiðinni
Árið var allgjöfult hjá Sundfélagi Akraness, þar sem ungt og
efnilegt fólk er að taka við merkinu. Félagið eignaðist einn Ís-
landsmeistara í fullorðinsflokki, Ágúst Júlíusson, sem varð Ís-
landsmeistari í 50 metra flugsundi. Þá unnu sundmenn félags-
ins til fimm verðlauna á Unglingameistaramóti Íslands sem
haldið var í Hafnarfirði í júní og 15 verðlauna á Aldursflokka-
meistaramóti Íslands sem haldið var á Akureyri í júní. Þar var
lið SA í 8. sæti stigakeppninnar en 16 sundfélög tóku þátt.
Lið Skagamanna er í efstu deild í sundi. Í Bikarkeppnina var
mætt með ungt lið. Varð félagið í fjórða sæti í stigakeppn-
inni, bæði í karla og kvennaflokki. Afrekshópur Sundfélags
Akraness fór í ferð til Noregs þar sem stundaðar voru æfing-
ar með nokkrum sundfélögum á svæðinu í kringum Þránd-
heim. Félagið veitir árlega viðurkenningar fyrir góðan árang-
ur. Að þessu sinni var sundmaður ársins valinn Ágúst Júlíus-
son. Efnilegasti sundmaðurinn þótti Una Lára Lárusdóttir.
Laufey María Vilhelmsdóttir var valin besti félaginn. Árlega
taka sundmenn eldri en 25 ára þátt í Íslandsmóti garpa sem
að þessu sinni var haldið í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Þar unnu
tveir Skagamenn til Íslandsmeistaratitla, Hugi Harðarson og
Vignir Barkarson. Hugi vann einnig til Norðurlandameistara-
titils í garpasundi. Mótið fór að þessu sinni fram í Reykjavík.
Hjá Sundfélagi Akraness eru um þessar mundir 230 iðkendur
frá þriggja mánaða aldri upp í fólk á sextugsaldri. Félagið er
með tvo fastráðna þjálfara og fimm aðra í hlutastörfum.
Borgfirðingar dansa af list
Dansarar úr Borgarfirði sem keppa undir merkjum Dans-
íþróttafélags Borgarfjarðar og UMSB stóðu sig glæsilega á
árinu. Á Reykjavíkurleikana sem haldnir voru í fimmta sinn í
byrjun febrúar fóru ellefu pör úr Dansskóla Evu Karenar, sex
pör í A, tvö pör í K og þrjú pör í F. Flest paranna komust á
verðlaunapall. Náðu þau Jóhann Páll Oddsson og Rakel Eir
Erlingsdóttir í gull í latíndönsum, sem og þær Margrét Stein-
unn Ingadóttir og Jóhanna Lilja Gautadóttir. Á Lottómót í
byrjun nóvember fóru þrjú pör frá Dansíþróttafélagi Borgar-
fjarðar. Þeim til viðbótar fóru fjögur önnur borgfirsk pör. Öll
pörin komust á verðlaunapall.
ÍA Íslandsmeistari í keilu
Keiluíþróttin er í mikill sókn á Akranesi. Í byrjun maí fagn-
aði ÍA Íslandsmeistaratitli í liðakeppni. Fjórða og síðasta um-
ferð Íslandsmóts félaga í keilu fór fram í Keiluhöllinni Öskju-
hlíð fimmtudaginn 2. maí sl. Eftir hörkuspennandi keppni
var það ÍA sem stóð uppi sem sigurvegari og tryggði sér titil-
inn Íslandsmeistari félaga í opnum flokki árið 2013. Þá keppti
ÍA liðið einnig í bikarúrslitum liða laugardaginn 4. maí og
beið lægri hlut gegn ÍR-KLS sem hirti bikarinn fjórða árið
í röð. Engu að síður frábær árangur. „Þá komust einnig tvö
lið í undanúrslit bikarkeppninnar og annað þeirra fór alla leið
í úrslit. Unglingarnir okkar lentu í öðru sæti í Íslandsmeist-
aramóti liða fyrir skemmstu en höfðu áður tryggt sér deild-
armeistaratitilinn. Að lokum eignuðumst við þrjá Íslands-
meistara unglinga. Starfið hefur því gengið alveg bærilega,“
sagði Guðmundur Sigurðsson formaður Keilufélags Akra-
ness í samtali við Skessuhorn. Karlalið ÍA bætti svo um betur
og sigraði í keppninni meistarar meistaranna við upphaf yfir-
standandi keppnistímabils.
þá
Bjarki Pétursson íþróttamaður UMSB og Borgarbyggðar stóð sig vel í
golfinu á árinu.
Borgfirsk danspör sýndu mikinn glæsileika á árinu og stóðu sig vel
á mótum.