Skessuhorn - 18.12.2013, Page 70
70 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
fjölgaði þingmönnum sínum úr 9 í 19. Sjálfstæðisflokkurinn
hlaut flest atkvæði í kosningunum samtals 26,7% atkvæða og
19 þingmenn, en úrslitin eru þau næstverstu í sögu flokksins.
Þá hlutu tvö ný framboð brautargengi í kosningunum, Björt
framtíð sem hlaut 8,2% og 6 þingmenn og Píratar sem fengu
5,1% og 3 þingmenn. Aðrir flokkar fengu minna. Eftir stutt-
ar stjórnarmyndunarviðræður í kjölfar kosninga tók ný ríkis-
stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks við völdum í maí
undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Kjörsókn í Norðvesturkjördæmi reyndist sú mesta á land-
inu, um 83,6%. Flest atkvæði í kjördæminu hlaut Framsókn-
arflokkurinn, um 35,2% og fjölgaði flokkurinn þingmönn-
um sínum úr tveimur í fjóra. Sjálfstæðisflokkurinn kom næst-
ur á eftir með 24,7% og hélt flokkurinn sínum tveimur þing-
mönnum. Samfylkingin hlaut síðan 12,2% atkvæða og einn
þingmann kjörinn og Vinstri grænir 8,5% og sömuleiðis einn
þingmann. Vegna ákvæða kosningalaga færðist einn þingmað-
ur úr NV-kjördæmi yfir í Suðvesturkjördæmi í þessum kosn-
ingum og eru þingmenn kjördæmisins því einungis átta.
Hvalveiðar aftur af stað
Í maíbyrjun staðfesti Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. að
hvalveiðar færu af stað í sumar. Að kvöldi sunnudagsins 17.
júní héldu síðan Hvalur 8 og 9 úr höfn áleiðis á Faxaflóa þar
sem Hvalur 8 veiddi fyrsta langreyði vertíðarinnar daginn eft-
ir. Hvalvertíðin stóð yfir fram til septemberloka og veiddust
134 dýr að þessu sinni. Um 150 manns hafa haft atvinnu af
veiðunum, bæði á sjó og í landi. Árið í ár er síðasta af fimm
ára leyfi sem í gildi hefur verið frá 2009 og er undir núverandi
ríkisstjórn komið hvort leyfið verður endurnýjað.
Gróska í ferðaþjónustu
Ferðaþjónustan er einn helsti vaxtarbroddur í efnahagslífi
landsmanna og styttist nú í að greinin skipi fyrsta sæti í út-
flutningsverðmætum landsmanna á eftir sjávarútvegi og stór-
iðju. Mátti sjá vísbendingar um aukningu í ferðaþjónustu víða
um Vesturland á árinu. Í gamla bænum í Borgarnesi var veit-
inga- og kaffihúsið Edduveröld opnað í mars, gististaðurinn
Egils guesthouse var stækkaður um helming og þá var sveita-
markaðurinn Ljómalind opnaður í efri hluta bæjarins svo eitt-
hvað sé nefnt. Þess utan var lokið við að stækka Icelandair
Hótel Hamar við golfvöll bæjarins og veitingastað Landnáms-
seturs Íslands. Í Borgarfirði var hinn sögufrægi Hreðavatns-
skáli opnaður á nýjan leik auk þess sem kaffi- og veitingasalan
Sveitakaffi var opnuð í Nesi í Reykholtsdal. Á Vegamótum á
Snæfellsnesi hófust framkvæmdir í sumar við byggingu nýrr-
ar gistiaðstöðu og þá var gistiheimilið Harbour hostel opnað í
Stykkishólmi. Í Dölum var sveitasetrið Vogur Country Lodge
opnað í Vogi á Fellsströnd í ársbyrjun. Ýmis áform eru loks
uppi um frekari framkvæmdir hjá ferðaþjónustuaðilum og má
ætla að einhver af þeim verði sett af stað á nýju ári.
Ný stjórn Ferðamálasamtaka
Vesturlands
Gustmikill aðalfundur Ferðamálasamtaka Vesturlands fór
fram í maílok á Bifröst þar sem dagur ferðaþjónustunnar í
landshlutanum var haldinn. Nokkrar umræður spunnust á
fundinum um fjárreiður samtakanna, atkvæðisrétt fundar-
manna og þá var fyrirkomulag hans og tímasetning gagnrýnd.
Í stjórnarkjöri voru Hansína B. Einarsdóttir formaður og tveir
aðrir stjórnarmenn felldir. Þrír nýir stjórnarmenn komu inn
í stjórnina.
Umdeildar skipulagsbreytingar
Akraneskaupstaður kynnti nokkrar tillögur að aðalskipulags-
breytingum á árinu. Tvær tillögur féllu í grýttan jarðveg hjá
bæjarbúum, annars vegar tillaga um 70 þúsund fermetra land-
fyllingu í Steinsvör og út að Breið og hins vegar tillaga að
breyttri landnotkun á bakkanum við Langasand, frá Faxabraut
að útisturtum við sandinn. Þar hugðist fjárfestir byggja veit-
ingastað. Íbúar mótmæltu tillögunum og að endingu hvarf
Akraneskaupstaður frá áformum sínum um að leyfa breytta
landnotkun á þessum stað. Aðrar tillögur Akraneskaupstað-
ar hlutu hins vegar góðan hljómgrunn hjá bæjarbúum, m.a.
skipulagsbreyting á Akratorgi í hjarta bæjarins þar sem fram-
kvæmdir hófust í lok október. Þá var nýverið samþykkt breyt-
ing um uppbyggingu ferðaþjónustu á Akurstúni.
Ein stærsta verslun landsins
Um áramót var Hyrnunni í Borgarnesi lokað eftir að leigu-
samningur Samkaupa við N1 rann út. Hyrnan hafði þá ver-
ið í rekstri í 22 ár og orðin kunn sem ein stærsta bensínstöð
landsins. N1 réðist strax í framkvæmdir í húsinu sem var end-
urhannað hér um bil frá grunni. Föstudaginn 31. maí var loks
ný og glæsileg þjónustustöð N1 opnuð með pompi og prakt
og lögðu um 2.000 gestir leið sína í stöðina á opnunardaginn.
Við opnunina sagði Eggert B. Guðmundsson forstjóri N1 að
Borgarnesstöðin væri sú stærsta og glæsilegasta hjá fyrirtæk-
inu og væri til vitnis um vilja þess til að bjóða viðskiptavinum
upp á góða þjónustu í Borgarnesi.
Þórsnes II strandar
Fjölveiðiskipið Þórsnes II frá Stykkishólmi strandaði á skeri
við Skoreyjar skammt frá Stykkishólmi fimmtudaginn 27.
júní. Níu skipverjar voru um borð og björguðust þeir allir.
Afleiðingarnar fyrir skip og umhverfi urðu þó minniháttar.
Skipið settist á skerið og var þar allan fimmtudaginn, en náð-
ist á flot aftur á kvöldflóðinu með öllu óskemmt. Var því síðan
siglt til heimahafnar í kjölfarið. Þetta var í annað sinn á árinu
sem Þórsness II komst í hann krapann en í maí þurfti varð-
skipið Þór að koma skipinu til aðstoðar eftir að það hafði orð-
ið vélarvana norðvestur af Flatey á Breiðafirði. Útgerð Þórs-
ness fór í framhaldi strandsins í þrot.
Tvíburafolöld fæddust
Sá sjaldgæfi atburður varð á bænum Nýjabæ í Bæjarsveit að-
fararnótt þriðjudagsins 25. júní að þar kastaði ellefu vetra
hryssan Glódís frá Nýjabæ tveimur folöldum. Folöldin eru
undan stóðhestinum Skálmari frá Nýjabæ.
Opna verksmiðju í Ólafsvík
Fyrirtækið Ægir sjávarfang í Grindavík festi kaup á atvinnu-
húsnæði við höfnina í Ólafsvík í sumar sem áður hýsti hluta af
rekstri Valafells ehf. Ægir sjávarfang sérhæfir sig í framleiðslu
á vörum úr þorsklifur og er ætlun starfsstöðvarinnar í Ólafs-
vík að niðursjóða þorsklifur. Verið er að leggja lokahönd á
frágang hússins fyrir framleiðsluna og er stefnt að því að taka
það í notkun eftir áramót. Gert er ráð fyrir að 12 manns muni
starfa við framleiðsluna í Ólafsvík.
Aukin umsvif hjá HB Granda
Sjávarútvegsfyrirtækið HB Grandi jók umsvif sín umtalsvert á
Akranesi á árinu. Nýjar vinnslulínur fyrir ferskan þorsk voru
t.d. settar upp í verksmiðju fyrirtækisins í bænum og má gera
ráð fyrir að vel yfir 6.000 tonn komi til vinnslu í stað um 3.500
í fyrra. Þá var ráðist í tæknibreytingar í fiskimjölsverksmiðju
fyrirtækisins auk þess sem togarinn Helga María AK var
breytt úr frystitogara í ísfisksskip. Vegna breytinganna mun
starfsfólki HB Granda á Akranesi fjölga töluvert. HB Grandi
tengdist loks tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum í bænum sterk-
um böndum á árinu. Í vor tilkynnti Laugarfiskur ehf. á Akra-
nesi að það myndi sameinast HB Granda og í haust keypti fyr-
irtækið hrognavinnsluna Vigni G. Jónsson hf. HB Grandi er
eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins með 11,2% af út-
gefnum heildarkvóta.
Framhald á næstu opnu