Skessuhorn - 18.12.2013, Blaðsíða 110
110 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Hvað finnst þér
mikilvægast um jólin?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Rannveig Sturlaugsdóttir
Fjölskyldan skiptir mann mestu
máli.
Hlín Sigurðardóttir
Samveran með fjölskyldunni.
Maður metur hana mikils.
Reynir Reynisson
Að allir hafi það gott.
Einar Logi Einarsson
Það er laufabrauðið.
Hlynur Sigurdórsson
Að fá krakkana heim frá Dan-
mörku.
Lokamót hausttvímennings Bridds-
félags Akraness fór fram á fimmtu-
daginn. Um var að ræða síðasta
keppniskvöld af fimm en bestu skor
þriggja kvölda giltu til úrslita. Sig-
ur úr bítum báru bræðurnir Guð-
jón og Þorvaldur Guðmundssynir
með meðalskorið 56,64% en í öðru
sæti urðu þeir Haukur Þórisson og
Böðvar Björnsson með meðalskor-
ið 54,44%. Í þriðja sæti urðu Ingi
Steinar Gunnlaugsson og Ólaf-
ur Grétar Ólafson með 54,39%,
í því fjórða Tryggvi Bjarnason og
Þorgeir Jósepsson með 54,21%,
fimmtu urðu Alfreð Viktorsson og
Þórður Elíasson með 53,10% og
loks í sjötta sæti nafnarnir Hörð-
ur Jóhannesson og Hörður Pálsson
með 52,62%. Alls tóku níu lið þátt
í keppninni.
Nóg er á döfinni í starfi bridds-
félagsins á næstunni. Á morgun,
fimmtudaginn 19. desem ber, fer
fram síðasta spilakvöld fyrir jól.
Létt og góð stemning verður sem
fyrr og verður spilurum boðið upp
á veitingar. Milli jóla og nýárs fer
síðan fram hefðbundinn jólatví-
menningur og verður spilað föstu-
daginn 27. desember. Spilað er sem
fyrr að Kirkjubraut 40 á Akranesi.
Eftir áramót tekur loks við hefð-
bundin spiladagskrá og þátttaka
briddsfélaga í Bridgehátíð Vestur-
lands á Hótel Hamri í Borgarnesi
fyrstu helgina í janúar.
hlh
Stjórn körfuknattleiksdeildar
Skalla gríms sagði um miðja síðustu
viku upp þjálfara liðsins, Pálma
Þór Sævarssyni. Sú uppsögn gilti
þó ekki lengi því að kvöldi næsta
dags var búið að draga uppsögnina
til baka og verður Pálmi því áfram
þjálfari meistaraflokks karla hjá fé-
laginu. Þetta tilkynnti stjórnin á
heimasíðu Skallagríms að kvöldi sl.
miðvikudags. Um leið var tilkynnt
að Páll Axel Vilbergsson kæmi inn í
þjálfarateymi liðsins sem aðstoðar-
þjálfari og að Finnur Jónsson sem
hingað til hefur verið aðstoðar-
þjálfari verði liðsstjóri. „Málin hafa
verið rædd hreint út og er það mat
stjórnar að með þessari niðurstöðu
sé búið að hreinsa loftið og Skalla-
grímsliðið sé tilbúið í slaginn fram-
undan og stefnan sett á að komast í
úrslitakeppni átta bestu liða lands-
ins í vor,“ segir í fréttatilkynningu
stjórnar.
Í samtali við Skessuhorn sagði
Björn Bjarki Þorsteinsson formað-
ur Kkd. Skallagríms að eftir að
ákveðið hafi verið að Pálmi hætti
sl. þriðjudagsmorgunn hafi mál-
in verið rædd enn frekar því auðvi-
tað vildu menn reyna að finna nið-
urstöðu sem nýttist liðinu og gengi
þess sem best. „Eftir hreinskiptar
og góðar umræður í stjórninni og
fund með þjálfarateyminu nýja varð
lendingin sú að halda í Pálma og
telur stjórnin að sú ákvörðun sé sú
besta fyrir liðið,“ segir Bjarki sem
segir stjórnina hafa mikinn metnað
fyrir hönd liðsins. „Okkar mat var
að staða liðsins væri ekki ásættan-
leg fyrir okkar frábæru stuðnings-
menn en vonandi verður þessi at-
burðarás vendipunktur.“
„Lánið hefur vitaskuld ekki leik-
ið við okkur framan af vetri og
meiðsli verið að hrjá lykilmenn
svo dæmi sé tekið. Við höfum hins
vegar fulla trú á liðinu og er gengi
þess í okkar huga númer, eitt, tvö
og þrjú. Vonumst við til að núver-
andi niðurstaða verði því til góða
og að við endurtökum leikinn frá
síðasta keppnistímabili og kom-
umst í úrslitakeppni átta bestu liða
landsins,“ bætir Bjarki við og hvet-
ur stuðningsmenn og aðra Fjósa-
menn að fylkja sér á bakvið liðið og
láta heyra í sér í stúkunni. „Stefnan
er sett á úrslitakeppnina. Þar eig-
um við heima.“
Sverðin brýnd
Pálmi Þór Sævarsson sagði við
Skessuhorn á fimmtudagsmorg-
un að engan bilbug væri að finna
á liðinu þrátt fyrir atburðarás dag-
ana þar á undan og væru menn
staðráðnir í því að þjappa sér sam-
an og gera betur. „Tímabilið hef-
ur hingað til ekki gengið að óskum
miðað við það sem menn stefndu
að í upphafi. Enn er þó nóg eftir af
því og eru liðið staðráðið í að nota
atburði síðustu daga til að brýna
sverðin og gera betur. Nú eru allir,
stjórn, þjálfarateymi og leikmenn,
á sömu blaðsíðu og tilbúnir til að
leggja hart að sér til að ná betri ár-
angri,“ sagði Pálmi Þór sl. fimmtu-
dagsmorgun í samtali við Skessu-
horn.
hlh
Reynsluboltinn Hafþór Ingi Gunn-
arsson hefur tilkynnt að hann sé
hættur körfuboltaiðkun vegna þrá-
látra meiðsla í hné. Hafþór Ingi
er 32 ára gamall og er borinn og
barnfæddur Borgnesingur. Hann
hefur leikið með Snæfelli síðustu
þrjú keppnistímabil en þar áður lék
hann með Skallagrími, utan eins
tímabils með Snæfelli 2003-2004.
Hafþór á að baki yfir 300 leiki í úr-
valsdeild með Snæfelli og Skalla-
grími þar sem hann hefur leikið
stöðu bakvarðar með mjög góðum
árangri.
hlh
Karlalið Snæfells mætti tveim-
ur Suðurnesjaliðum í liðinni viku
í Dominos deildinni í körfubolta.
Fyrri leikurinn var heima í Stykk-
ishólmi gegn Njarðvíkingum sl.
fimmtudagskvöld þar sem heima-
menn unnu góðan sigur 77:90. Síð-
ari leikurinn fór fram í Keflavík á
laugardaginn. Eftir jafnar upp-
hafsmínútur skutust heimamenn
tuttugu stigum fram úr lánlausum
Snæfellingum í lok fyrsta leikhluta,
34:14. Munurinn hélst að mestu í
öðrum leikhluta og var staðan 53:36
í hálfleik. Keflvíkingar gáfu ekk-
ert eftir í seinni hálfleik og juku við
forskot sitt enn frekar, mest þrjátíu
stigum um miðjan fjórða leikhluta,
101:71. Snæfell minnkaði þó eilít-
ið muninn í lokin. Lokastaðan að
endingu 103:77 fyrir Keflvíkinga.
Sigurður Þorvaldsson var stiga-
hæstur Hólmara í leiknum með 24
stig en á eftir honum kom Stefán
Karel Torfason með 12 stig. Pálmi
Freyr Sigurgeirsson var með 9 stig
og Kristján Andrésson og Vance
Cooksey með 8 hvor. Þá var Jón
Ólafur Jónsson með 6 stig, Finnur
A. Magnússon, Snjólfur Björnsson
og Sveinn Davíðsson allir með 3 og
Jóhann Sævarsson með 2.
Hólmarar vilja sjálfsagt gleyma
leiknum í Keflavík sem fyrst en lið-
ið vermir 8. sæti deildarinnar með
10 stig nú þegar tímabilið er hálf-
nað. Gengið hefur upp og ofan hjá
liðinu það sem af er vetri og hef-
ur meiðsladraugurinn hrellt það
líkt og granna þeirra í Borgarnesi.
Síðan munar verulega um að missa
Hafþór Ingi Gunnarsson úr liðinu.
Fyrsti leikur Hólmara á nýju ári er
gegn Þór frá Þorlákshöfn. Leikið
verður 10. janúar og fer leikurinn
fram í Þorlákshöfn. hlh
Snæfellskonur gerðu
góða ferð til Keflavík-
ur sl. sunnudag og skut-
ust á toppinn í Dominos-
deildinni í körfunni. Þær gerðu sér
lítið fyrir og sigruðu Íslandsmeist-
ara Keflavíkur örugglega 84:58.
Snæfellskonur fara því í jólafríið
með 22 stig, tveimur fleiri en Kefla-
vík. Haukar eru í þriðja sætinu með
18 stig en hin liðin þar talsvert á eft-
ir í stigatöflunni.
Leikurinn byrjaði fjörlega og
Snæfell var komið tveimur stig-
um yfir þegar fyrsta leikhluta lauk,
20:18. Snæfell tók af skarið í öðr-
um leikhluta og var 13 stigum yfir
í hálfleik, 44:31. Áfram héldu Snæ-
fellskonur á sömu braut í byrjun
seinni hálfleiks. Munurinn var orð-
inn 16 stig fyrir lokafjórðunginn
og sigurinn þá tryggður í rauninni.
Chynna Brown skoraði 21 og tók 9
fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir
var með 20 stig og 14 fráköst, Hild-
ur Sigurðardóttir 15 stig, 8 fráköst
og 8 stoðsendingar, Eva Margrét
Kristjánsdóttir 9 stig og 8 fráköst,
Hugrún Eva Valdimarsdóttir 8 stig
og 7 fráköst, Guðrún Gróa Þor-
steinsdóttir 6 stig og Helga Hjördís
Björgvinsdóttir 5 stig. Hlé verður
á keppni í Dominosdeildinni fram
yfir áramót. þá
Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skallagríms.
Dramatísk vika þjappaði hópnum saman
Hafþór Ingi Gunnarsson. Ljósm. þe.
Hafþór leggur skóna á
hilluna vegna meiðsla
Bræður sigruðu í
hausttvímenningnum
Snæfellskonur
skutust á toppinn
Stefán Karel Torfason leggur boltann ofan í körfuna. Ljósm. Sumarliði.
Sigur og tap hjá Snæfelli