Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2000, Page 30

Læknablaðið - 15.12.2000, Page 30
zópíklón Sovel (Omega Farma, 980361) Töflur; N 05 C F 01 R 0 Hver tafla inniheldur: Zopiclonum INN 7,5 mg. Ábendingar: Tímabundiö eöa tilfallandi svefnleysi. Svefnleysi, sem er afleiöing geörænna truflana, enda séu þær líka meöhöndlaöar og meö fullnægjandi hætti. Skammtar og lyfjagjöf: Venjulegur skammtur fýrir fulloröna er ein tafla fyrir svefn. Ekki ætti aö gefa stærri skammta en tvær töflur (15 mg zópíklón). Gefa á öldruöum og þróttlitlum sjúklingum minni upphafsskammta (3,75 mg zópíklón), sem og sjúklingum meö alvarlega skerta lifrar- eöa nýrnastarfsemi. Hjá sjúklingum, sem eru fyrir á langtíma meöferö meö bensódíasepínum, er ráölagt aö minnka skammta bensódíasepína smám saman á 1-2 vikum, á sama tíma og zópíklón er notaö í ráölögöum skömmtum. Frábendingar: Alvarleg lifrarbilun. Vöövaslensfár (Myasthenina gravis). Alvarlegur kæfisvefn (apnoea). Þekkt ofnæmi fyrir zópíklóni. Varnaöarorö og varúöarreglur: Viöhafa ber sérstaka varúö þegar zópíklón er gefiö öldruöum sjúklingum og sjúklingum meö alvarlega skerta lifrar- eöa nýrnastarfsemi (sjá kafla um skammta). Eins og gildir um öll önnur svefnlyf ber aö viöhafa sérstaka aögát þegar meöhöndlaöir eru sjúklingar meö sögu um geörænar truflanir, sem og sjúklingar meö tilhneigingu til lyfjamisnotkunar. Viöhafa ber sérstaka varkárni ef zópíklón er gefiö sjúklingum meö bráöa öndunarbilun (acute respiratory insufficiency). Vegna þess hve zópíklón er skjótvirkt ætti sjúklingurinn aö vera tilbúinn aö ganga til náöa þegar lyfiö er tekiö inn. Ekki er mælt meö langtíma (lengri en 4 vikur) samfelldri meöferö. Meöferö ætti aö miöa aö því aö nota minnstu virka skammta. Ekki er mælt meö því aö zópíklón sé gefiö börnum. Milliverkanir við lyf eða annaö: Áfengi eykur slævandi áhrif og skeröingu á skynhreyfivirkni (psychomotor) af völdum zópíklóns. Svo sem viö á um önnur svefnlyf ætti aö foröast samtímis notkun zópíklóns og áfengis. Aukin bæling miötaugakerfis getur komiö fram viö samtímis notkun annarra lyfja sem bæla miötaugakerfiö, til dæmis geölyfja, svefnlyfja, kvíöastillandi lyfja, þunglyndislyfja, svæfingalyfja, flogaveikilyfja og sterkra verkjalyfja. Lyf sem trufla magatæmingu geta haft áhrif á svæfandi verkun zópíklóns. Erýtrómýsín hraöar frásogi zópíklóns, sem getur leitt til þess aö svæfandi áhrif komi fyrr fram. Meöganga og brjóstagjöf: Þrátt fyrir aö í dýratilraunum hafi ekki veriö sýnt fram á aö zópíklón hafi fósturskemmandi áhrif, ætti aö foröast aö gefa zópíklón þunguöum konum, þar sem reynsla af því er takmörkuö. Zópíklón skilst aö nokkru leyti út í brjóstamjólk. Ekki er mælt meö notkun lyfsins handa konum meö barn á brjósti. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Zópíklón getur skert hæfni til starfa sem krefjast andlegrar árvekni eöa líkamlegrar samhæfingar (til dæmis akstur bifreiöa eöa stjórnun vinnuvéla). Sjúklingur ætti því aö foröast slík störf þar til Ijós eru áhrif lyfsins á hann. Aukaverkanir: U.þ.b. 10% sjúklinga fá einhverjar aukaverkanir. Algengast er biturt bragö í munni (4%). Algengar (>1%): Almennar: Biturt bragö í munni. Munnþurrkur. Miötaugakerfi: Sljóleiki. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Höfuöverkur og svimi. Miötaugakerfi: Órói. Breytt draumamynstur. Meltingarfæri: Ógleöi. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Miötaugakerfl: Hræöslutilfinning. Ofskynjanir. Rugl. Einbeitingarskortur og minnistruflanir. Húö: Útbrot. Ofskömmtun: Ofskömmtun auökennist venjulega af mismunandi mikilli bælingu á miötaugakerfi. Ofskömmtun ætti ekki aö vera lífshættuleg nema ef önnur efni sem bæla miötaugakerfiö (þar á meöal áfengi) séu tekin samtímis. Veita skal einkenna- og stuöningsmeöferö, auk eftirlits meö ástandi öndunar, hjartastarfsemi og miötaugakerfis. Framköllun uppkasta, magaskolun og notkun lyfjakola getur dregiö úr frásogi zópíklóns, sé gripiö til þessara ráöa skömmu eftir inntöku lyfsins. Nota má flúmazeníl til aö snúa viö bælandi áhrifum zópíklóns á miötaugakerfi og öndun. Himnuskilun er tilgangslaus. Lyfhrif: Zópíklón er svefnlyf sem er ekki af flokki bensódíasepína en tilheyrir flokki sýklópýrrólóna, sem eru byggingarlega séö frábrugönir öörum svefnlyfjum. Eins og bensódíasepín næst verkun þess fyrir milligöngu aukinnar virkni amínósmjörsýru (GABA) í heilanum. Þaö binst á staö sem er nálægt, en líklega óskyldur, bindistaö bensódíasepína á GABA viötaka hópnum. Verkun zópíklóns kemur fram innan 30 mínútna. Zópíklón getur flýtt verulega fyrir svefni, dregiö úr svefnrofi yfir nóttina og aukiö svefngæöi. Sumar rannsóknir hafa leitt í Ijós aö zópíklón hefur lágmarks áhrif á lífeölisfræöilega eiginleika svefns. Þaö lengir hægbylgju svefn (stig 3 og 4) án þess aö hafa nokkur áhrif á REM svefn. Meöferöarskammtar af zópíklóni valda lágmarks skeröingu á skynhreyfivirkni (psychomotor) og andlegri árvekni morguninn eftir lyfjagjöf. Lyfjahvörf: Eftir inntöku frásogast zópíklón hratt og lyfjahvörf þess eru línuleg- Einstaklingsbundinn munur er á lyfjahvörfum zópíklóns og fer vaxandi meö aldri. Eftir inntöku 7,5 mg af zópíklóni næst hámarksstyrkur í plasma á 0,5 n 4 klst. Aögengi er um 80% sem bendir til þess aö forumbrot (presystemic metabolism) sé ekki mikiö. í plasma eru 45-80% zópíklóns próteinbundin og helmingunartími í plasma er 3,5 n 6 klst. Helmingunartími í plasma getur lengst í allt aö 8 klst. hjá öldruöum sjúklingum og hjá sjúklingum meö skerta lifrarstarfsemi. Zópíklón er aö mestu leyti umbrotiö í lifur eftir þremur megin leiöum. N-oxíö umbrotsefni (hefur litla verkun sem hefur enga klíniska þýöingu) og N-desmetýl umbrotsefni (óvirkt) eru skilin út meö þvagi. Umbrotsefni þar sem karboxýlhópur hefur veriö fjarlægöur (óvirkt) skilst út meö útöndunarlofti. Aöeins um 5% af lyfinu skiljast út óbreytt meö þvagi. Zópíklón skilst einnig út meö munnvatni og í brjóstamjólk. Útskilnaöur í munnvatni getur veriö skýring á beisku bragöi í munni eftir inntöku. Útlit: Hvítar, sporöskjulaga, 5x10 mm meö deilistriki. Pakkningar: Töflur 7,5 mg: 10 stk., 30 stk. 100 stk. Hámarksmagn sem ávísa má meö lyfseöli er 30 töflur. Pakkningar og verö: Töflur 7,5 mg: 10 stk.kr. 255.- Töflur 7,5 mg: 30 stk.kr. 642.- Töflur 7,5 mg: 100 stk.kr. 2.351.- Hámarksmagn sem ávísa má meö lyfseöli er 30 töflur. GÓÐUR DAGUR EFTIR GÓÐA NÓTT Omega Farma www.omega.is

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.