Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 36
FRÆÐIGREINAR / OFNÆMI OG ÓÞOL
fæðutegunda en jafnframt oftar en aðrir einkenni um
lyfjaóþol og ætlað mígreni. Ólíklegt er að bráða-
ofnæmi skýri fæðutengd einkenni, nema að mjög litlu
leyti.
Inngangur
Ofnæmissjúkdómar eru meðal algengustu sjúkdóma
hinna efnaðri þjóðfélaga jarðarinnar. í nýlegri
könnun mældist algengi bráðaofnæmis (type I
allergy) á 37 rannsóknarsvæðum í 16 þjóðlöndum og
þremur heimsálfum á bilinu 16-45%, skilgreint sem
jákvæð RAST svörun fyrir einhverjum af fjórum
ofnæmisvökum (köttum, vallarfoxgrasi, D. ptero-
nyssinus og Cladosporium) (1). I þessari rannsókn,
sem miðaðist við aldurshópinn 20-44 ára, var algengi
ofnæmis næst lægst á Islandi. Sé litið til einkenna frá
öndunarfærum í þessum sama rannsóknarhópi, svo
sem surgs fyrir brjósti eða astma, þá höfðu 18%
íslendinga fengið surg og 2,2% astmaköst síðustu 12
mánuði (2). I þessum sama hópi Islendinga töldu
17,8% sig hafa ofnæmi í nefi. Þegar algengi þessara
einkenna meðal íslendinga eru borin saman við
niðurstöður frá öðrum þjóðum er útkoman vel fýrir
neðan meðallag á íslandi (2). í heildina tekið voru
einkenni frá öndunarfærum algengari í Astralíu,
Nýja-Sjálandi, Bretlandi og Bandaríkjunum en á
Norðurlöndum og meginlandi Evrópu.
I annarri umfangsmikilli rannsókn, sem
framkvæmd var á bömum á aldrinum 13-14 ára, voru
niðurstöðurnar að því leyti svipaðar, að astma-
einkenni vom algengust í þeim löndum sem nefnd
voru hér að ofan en sjaldgæfari í löndum Austur-
Evrópu, Indonesíu, Grikklandi, Kína, Usbekistan,
Indlandi og Eþíópíu (3). Islendingar voru ekki aðilar
að þeirri rannsókn.
Varðandi tengsl fæðu við ofnæmissjúkdóma,
einkum astma, er margt ennþá óljóst og faralds-
fræðilegar rannsóknir hafa gefið misvísandi niður-
stöður (4). Þær benda þó til að þátttakendur ofáætli
margfalt þætti eins og aukaefnaóþol (4). Rannsóknir
á tengslum fæðu og einkenna eru afar tímafrekar og
val á mæliaðferðum, til að meta slík tengsl,
vandasamt. Til dæmis er ekki víst að fæða sem eykur
á einkenni astma valdi breytingum á blásturprófum
við þolpróf þótt hún auki auðreitni í öndunarfærum
(5). Sömu vandamál koma upp þegar kanna á
bætandi áhrif fæðutegunda á einhver einkenni (6).
Margir astmasjúklingar telja að fæðuval hafi
þýðingu fyrir astma. Því til staðfestingar er rannsókn
á 135 astmasjúklingum í Melbourne í Ástralíu, en
73% þeirra töldu að fæðan skipti máli og 61% höfðu
gert tilraunir með breytt mataræði til að minnka
astmaeinkennin (7).
Þótt fólk tengi óæskileg einkenni (adverse
reactions) einhverju sem það borðar er ekki endilega
um ofnæmi að ræða. Fjölbreytt einkenni svo sem
mígreni, ofsakláði, glútenóþol, Crohnssjúkdómur,
ristilkrampi og liðverkir hafa verið tengd neyslu
matar (8). Óæskileg einkenni af mat eru flokkuð í
eitranir (toxic reactons) annars vegar og viðbrögð af
öðrum toga (non-toxic reactions) hins vegar, eftir
eðli þeirra (9). Viðbrögðum af öðrum toga eru svo
flokkuð eftir því hvort þau eru vegna ofnæmis (food
allergy) eða óþols (food intolerance). Loks má skipta
fæðuviðbrögðum vegna ofnæmis í bráðaofnæmi og
ofnæmi af öðrum toga.
Þegar frá eru talin pikkpróf og sértæk IgE mæling
í sermi til að greina bráðaofnæmi og sérstakar
rannsóknir til að greina glútenóþol, laktósuóþol og
óþol fyrir öðrum fjölsykrungum er tvíblint
fæðuþolpróf (double-blind placebo-controlled food
challenges) sú aðferð sem oftast er notuð til að sýna
fram á ofnæmi og óþol. Oft má þó stytta sér leið með
opnum þolprófum (10). Ef eingöngu er stuðst við
einkenni, þegar niðurstöður úr fæðuþolprófum eru
metnar, greinir prófið ekki á milli ofnæmis og óþols.
Því hafa ýmsir gert tilraunir til að komast nær eðli
einkennanna með mælingum í mjógirni og saur á
efnum, sem myndast við þolprófin eða með
vefjarannsóknum á slímhúð úr mjógirni (11-13). Slík
þolpróf gera miklar kröfur varðandi framkvæmdina
og tækni við úrvinnslu og hafa því ekki náð fótfestu í
klínísku starfi.
Eins og áður var nefnt er tilhneiging til að ofáætla
þátt fæðu og aukaefna í einkennum. Við könnun á
börnum upp að þriggja ára aldri töldu bandarískir
foreldar 28% barna sinna með fæðuofnæmi og -óþol.
ítarlegar rannsóknir, meðal annars með tvíblindum
þolprófum, lækkaði töluna niður í 8% (14). í könnun
í Bretlandi, meðal fólks á ýmsum aldri, töldu 20%
aðspurðra að þeir hefðu fæðuóþol (15). Eftir ítarlegt
mat lækna fór sú tala niður í 1,4-1,8%. í svipaðri
rannsókn á 18-70 ára Hollendingum lækkaði talan úr
12,4% að mati þátttakenda í 0,8-2,4% að mati
rannsóknaraðilanna (16).
Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hversu
algengt sé að Islendingar á aldrinum 20-44 ára telji að
þeim verði illt af mat og ennfremur að kanna hver
einkennin séu og hvaða matvælum sé kennt um.
Einnig er kannað algengi IgE-mótefna fyrir sex
algengum fæðutegundum og samband kvartana af
mat við bráðaofnæmi, ofnæmissjúkdóma, auðreitni í
berkjum, mígreni og meint lyfjaofnæmi.
Þær niðurstöður, sem hér eru kynntar, eru
byggðar á íslenskri gagnasöfnun sem fram fór í
tengslum við fjölþjóðlega rannsókn á astma og
ofnæmissjúkdómum (the European Community
Respiratory Health Survey (ECRHS)).
Efniviður og aðferðir
Rannsóknarhópur: Rannsóknarvinnunni var skipt í
tvo áfanga. I fyrri áfanganum var 1800 konum og
1800 körlum á aldrinum 20-44 ára boðið til þátttöku.
Úrtakið náði til íbúa búsettra á svæðinu frá
852
Læknablaðið 2000/86
A