Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 70
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPUSAMSTARF LÆKNA
Katrín
Fjeldsted
Höfundur er sérfræðingur í
heimilislækningum og fulltrúi
LÍ í Comité Permanent.
Aðalfundur Comité Permanent árið 2000
Aðalfundur Comité Permanent (CP) var haldinn í
Brussel dagana 10. og 11. nóvember 2000. CP, eða
Comité Permanent/ Standing Committee, fundar að
jafnaði tvisvar á ári, að vori og hausti, fyrir utan
aðalfund í nóvember ár hvert. Stjóm LÍ fól undirritaðri
að vera fulltrúi félagsins hjá CP fyrir rúmu ári og birti
Læknablaðið grein um starfsemi samtakanna á síðasta
vetri (Læknablaðið 2000; 86:445-6).
Á aðalfundinum nú voru mættir fulltrúar 16 landa
af 17, en írski fulltrúinn var fjarverandi. Samþykkt
var að veita tveimur nýjum löndum aukaaðild, en það
voru Ungverjaland og Eistland, sem verið hafa
áheyrnarfulltrúar um nokkurt skeið.
Lagabreytingar
Alllangur tími fór í að ræða lagabreytingar, en þær
koma fram í skjali merktu CP/2000 Rev3 og er þar
um að ræða breytingar bæði á lögum CP (statutes) og
reglugerð (rules of procedure). í fyrsta lagi var fellt
niður lagaákvæði um að skylt væri að Belgar ættu sæti
í fastanefndinni, en slíkt hafði verið í belgískum
landslögum um erlend félög síðan 1919 en þeim
lögum var breytt 30. júní síðastliðinn. Pá var ákvæði
um áheymarfulltrúa breytt og munu þeir eftirleiðis
eiga aukaaðild að CP (associate members eða
associate associations í stað observers). í þriðja lagi
var kveðið nánar á um það hvernig framselja megi
atkvæði frá einu aðildarríki til annars. í reglugerð
voru gerðar breytingar til samræmis en að auki tekið
til hendinni í vandasömu, langvarandi deilumáli:
hvernig fara eigi með hjásetu í atkvæðagreiðslu. í CP
hefur nefnilega gilt sú regla að hjáseta hefur verið
reiknuð inn í heildaratkvæðatölu og þurft hefur þrjá
fjórðu hluta atkvæða til að samþykkja mál Á þann
hátt hafa tillögur fallið hver um aðra þvera á síðustu
árum, samanber tillögu CP 2000/51 sem sagt var frá í
síðustu skýrslu í Læknablaðinu. Par féllu atkvæði
þannig að 12 voru meðmæltir, einn á móti en fjórir
sátu hjá. Þá var reiknað út að tillagan hefði fengið 12
atkvæði af 17 en það eru rúm 70% en ekki þrír fjórðu.
Eftir breytinguna eru atkvæði með og á móti talin,
sömuleiðis hjásetur en þær ekki taldar með lengur.
Ofangreind tillaga um að breyta þessu var samþykkt
með 12 atkvæðum gegn fjórum og náði því fram að
ganga. Mjótt var þó á mununum. Loks átti að greiða
atkvæði um hvort lengja ætti kjörtímabil forseta CP
úr tveimur í þrjú ár en tillagan var dregin til baka og
stendur ákvæðið því óbreytt.
Fjárhagur CP
Þegar nýir endurskoðendur, PriceWaterhouse -
Coopers, fóru að rýna í reikninga CP fyrir árin 1998
og 1999 voru nokkur atriði óljós, einkum vantaði
kvittanir vegna ferðakostnaðar stjórnar og túlka-
þjónustu á nokkrum stöðum og var því ekki hægt að
loka þeim fjárhagsárum. Þetta olli nokkuð miklu
uppnámi á fundinum eins og gefur að skilja og urðu
langar umræður sem lauk með því að málið verður
skoðað nánar og lagt fyrir á ný í apríl á aukaaðal-
fundi, í tengslum við reglulegan fund þó. Ekki
batnaði málið þegar fram kom að í fjárhagsáætlun
fyrir 2001 (CP 2000/149) var farið fram á hækkun á
framlögum um ein 5% milli ára og kom þar meðal
annars fram áætlun um að ferðakostnaður stjórnar
ykist um 202% milli 2000 og 2001!!! Þetta á sér án efa
þær skýringar að forsetinn býr í Finnlandi og þarf að
fara til Brussel aðra hvora viku, en að auki hefur
starfsemin aukist verulega, mun meiri samskipti eru
við Evrópustofnanir svo sem Evrópuráðið og
Evrópuþingið en áður. Þar við bætist að ákveðið var
á sínum tíma að skrifstofa samtakanna yrði í Brussel
og hefði þar sitt fasta starfslið en starfsemin yrði ekki
lengur í heimalandi forsetans. Niðurstaðan aðal-
fundar varð sú að fjárhagsáætlun stjórnar um 5%
hækkun var felld, sömuleiðis tillögur um 4% hækkun
og 2,5% hækkun. Þarna var fyrst og fremst um að
ræða óánægju með reikninga fyrri ára. Loks var
samþykkt samhljóða að halda áfram á grundvelli
núverandi fjárhagsáætlunar en að aflað skyldi nægra
upplýsinga um fyrri vandamál svo að allt gæti komist
á hreint, bæði í augum innri endurskoðenda CP svo
og PriceWaterhouse Cooper þannig að hægt væri að
ljúka við að afgreiða fjárhagsáætlun ársins 2001 á
fundinum í apríl.
Skýrslur frá nefndum
Formenn undirnefnda gerðu grein fyrir starfi
nefndanna frá sfðasta aðalfundi (vinnu sem fram fór á
fundum í apríl 2000 og ágúst 2000 en einnig með
tölvupósti).
Mörg mál voru kynnt og nokkrar tillögur voru
samþykktar. Hér á eftir verða nokkrar þeirra reifaðar
og fylgir númer viðeigandi skjals ef einhver hefur
áhuga á að kynna sér efni þeirra nánar:
1. í CP 2000/148 er komið inn á úrskurð Evrópu-
dómstólsins frá 5. október 2000 sem nam úr gildi
Evróputilskipun 98/43 um auglýsingar á tóbaki. CP
harmar að Evrópusambandið skuli enn á ný seinka
því að banna tóbaksauglýsingar innan ESB landanna,
en tóbaksreykingar valdi ótímabærum dauða 500.000
manna árlega í Evrópu. CP hvetur Evrópuráðið að
senda sem fyrst frá sér nýja tilskipun sem banni
tóbaksauglýsingar eins og kostur er en einnig hvetja
samtökin ráðherraráð Evrópu og Evrópuþingið til að
setja slíka tilskipun í forgang og lögleiða ákvæði þar
að lútandi sem allra fyrst.
884 Læknablaðið 2000/86