Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 93
LAUSAR STÖÐUR
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI
Sérfræðingur f fæðinga- og
kvensjúkdómalækningum
Lausertil umsóknar staða sérfraeðings í faeðinga- og kvensjúkdómalaekningum við kvennadeild. Umsækjandi skal hafa fullgild
réttindi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Starfinu fylgir vaktskylda á kvennadeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta
og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknavinnu.
Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norður- og Austurlandi.
Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur Andrésson, forstöðulæknir í síma 463 0130.
Sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningum
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í þvagfæraskurðlækningum með mikla reynslu í almennum skurðlækningum við
handlækningadeild. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í þvagfæraskurðlækningum.
Starfinu fylgir vaktskylda á handlækningadeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk
þátttöku í rannsóknavinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norður- og Austurlandi.
Nánari upplýsingar veitir Shree Datye, forstöðulæknir, í síma 463 0100.
Sérfræðingar í geðlækningum
Lausar eru til umsóknar tvær stöður sérfræðinga í geðlækningum við geðdeild. Umsækjendur skulu hafa fullgild réttindi í
geðlækningum. Starfinu fylgir vaktskylda á geðdeild og vinnuskylda á göngudeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og
þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknavinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norður- og
Austurlandi.
Deildarlæknir við geðdeild
Laus er staða deildarlæknis við geðdeild. Staðan er veitt til lengri eða skemmri tíma og getur nýst til sérfræðináms í geðlækn-
ingum og heimilislækningum að hluta og/eða til endurmenntunar. Starfinu fylgir bakvaktaskylda.
Nánari upplýsingar veitir Sigmundur Sigfússon, forstöðulæknir í síma 463 0100.
Stöður aðstoðar- og deildarlækna
Stöður aðstoðar- og deildarlækna við FSA eru lausar til umsóknar. Stöðurnar eru til lengri eða skemmri tíma og geta verið hluti
af kandídatsári viðkomandi eða sérnámi í ákveðnum sérgreinum svo sem heimilislækningum. Umsækjendur skulu hafa lokið
cand.med. prófi frá Háskóla íslands eða sambærilegu prófi og hafa íslenskt lækningaleyfi ef um deildarlæknisstöðu er að
ræða.
Boðið er upp á lyflækninga-, handlækninga-, bæklunar-, kvenna-, geð- eða barnadeild. Stöðurnar geta einnig hentað reyndum
lækni sem hefði áhuga á að öðlast frekari reynslu á vissum sviðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%.
Nánari upplýsingar veitir Eygló Aradóttir, fræðslustjóri lækna í síma 463 0100.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum sjúkrahúslækna.
Stöðurnar veitast frá 1. mars næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnu-
bragða.
Umsóknir, á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt meðfylgjandi gögnum skulu berast í tvíriti, fyrir 15. desember 2000, til
Þorvaldar Ingvarssonar, framkvæmdastjóra lækninga, FSA, 600 Akureyri, tölvupóstur thi@fsa.is og gefur hann jafnframt
nánari upplýsingar.
Öllum umsóknum um ofangreindar stöður verður svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Læknablaðið 2000/86 907